Fréttablaðið - 13.02.2019, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 13.02.2019, Blaðsíða 37
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is AÐALFUNDUR MAREL HF. 2019 Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins. • Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu. • Tillaga um kaupréttarkerfi. • Tillaga um lækkun hlutafjár. – Lækkun á eigin hlutum félagsins vegna undirbúnings mögulegrar tvíhliða skráningar félagsins. • Breytingar á samþykktum félagsins: – Grein 15.1 – heimild stjórnar til útgáfu nýrra hlutabréfa í tengslum við kaupréttarsamninga starfsmanna að nafnverði allt að kr. 35.000.000 endurnýjuð til fimm ára; – Grein 15.2. – heimild stjórnar til útgáfu nýrra hlutabréfa í tengslum við möguleg fyrirtækjakaup félagsins að nafnverði allt að kr. 100.000.000 endurnýjuð til fimm ára; – Nýrri grein 15.3. verði bætt við samþykktir félagsins þess efnis að stjórn félagsins hafi heimild til útgáfu nýrra hlutabréfa að nafnverði allt að kr. 100.000.000 í tengslum við mögulega tvíhliða skráningu félagsins. Hluthafar falli frá forkaupsrétti vegna útgáfunnar. • Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf. • Önnur mál, löglega borin fram. Fundarstörf munu fara fram á ensku. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 föstudaginn 1. mars. Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundi og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 24. febrúar. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsvæði félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafafundinn. Á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2018, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 12. febrúar 2018, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurði um annað. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Óski hluthafi að taka fyrirfram þátt í atkvæðagreiðslu bréflega eru atkvæðaseðlar aðgengilegir á framangreindri vefsíðu aðalfundarins ásamt nánari upplýsingum um framkvæmd bréflegrar atkvæðagreiðslu. Atkvæði þurfa að berast á skrifstofur félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ fyrir kl. 15:30 á aðalfundardag 6. mars. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum vef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja aðalfund fyrir sína hönd. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30. Stjórn Marel hf. Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 6. mars nk., kl. 16:00. Ferskjulituð augu og varir baksviðs hjá Antonio Marras. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Fréttablaðið sagði í byrjun janúar frá leit að konu sem væri komin á steypirinn og gæti hugsað sér að leyfa leikstjóranum Rúnari Rún- arssyni að kvikmynda fæðinguna fyrir atriði í kvikmyndini, Echo. Sara Benediktsdóttir gaf sig fram á elleftu stundu eftir að hafa lesið fréttina og skömmu síðar ól hún dreng, sem hefur fengið nafnið Ragnar Ebbi, á meðan Rúnar festi dýrmæt augnablikin á filmu. „Ég hélt að þetta yrði skrýtið, að hafa kameruna þarna inni í her- berginu en svo var ég náttúrlega í einhverjum allt öðrum pælingum þegar á hólminn var komið og var ekkert að pæla í þeim þegar fæð- ingin var í gangi,“ segir Sara í sam- tali við Fréttablaðið. Hún segir næsta víst að frum- burður hennar sé yngsti kvik- myndaleikari Íslandssögunnar. Hann er alger kvikmyndastjarna,“ segir stolt móðirin sem sér ekki eftir því að hafa ákveðið að varð- veita fæðingu sonarins í bíómynd. – þþ Ragnar Ebbi er yngsti kvikmyndaleikari sögunnar Þorkell Emilsson og Sara Bene- diktsdóttir eru stoltir foreldrar yngsta kvik- myndaleikara landsins, Ragn- ars Ebba, sem dregur andann í fyrsta sinn í næstu bíómynd Rúnars Rúnars- sonar. MYND/ELLI CASSATA FERSKJU-OG APPELS- ÍNUTÓNAR Á AUGU Nú hafa kaldir litatónar í augnskuggum verið úti í kuldanum síðustu árin, svo miklum kulda að hætt verður að framleiða upprunalegu Naked-augnskuggapallettuna frá Urban Decay. Það er engum blöðum um það að fletta að heitir augnskuggar eru einmitt það – sjóðheitir. Í vor verða ferskjulitir og appelsínu- tónar áberandi og þá jafnvel á augum og vörum á sama tíma. On the Run Mini-pallettan frá Urban Decay í litnum Detour er ágætis millilending og inniheldur nokkuð klæðilega skugga sem dýfa tánni ofan í þetta ferska trend. Dýfðu tánni ofan í trendið með þessari klæðilegu augnskuggapallettu frá Urban Decay. L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 1 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 F -0 C F 8 2 2 4 F -0 B B C 2 2 4 F -0 A 8 0 2 2 4 F -0 9 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.