Fréttablaðið - 13.02.2019, Síða 20

Fréttablaðið - 13.02.2019, Síða 20
Það stendur mikið til um helgina í ZikZak en blásið verður í afmælishátíðarlúðr- ana í verslununum. Stutt er síðan verslunin í Kringlunni fékk nýtt og ferskt útlit og er stórglæsileg að sjá. Þá hefur ZikZak breytt áherslum og náð þannig betri hagræðingu svo vöruverð er enn lægra. „Það er okkur hjartans mál að geta boðið viðskiptavinunum fallegar vörur í öllum stærðum og á góðu verði, allar konur ættu því að geta fundið sér eitthvað fallegt hjá okkur. Þar sem við erum þekkt fyrir að veita framúrskarandi þjónustu þá erum við dugleg að gera breytingar sem viðskiptavinurinn hagnast á,“ segir Sigríður Ómarsdóttir, annar af eigendum ZikZak. Það verður brjáluð stemming alla helgina, Bylgjan verður í beinni á morgun ásamt Siggu Kling sem gefur gestum skemmti- legar gjafir. Fyrstu 30 sem versla fá veglegan kaupauka, sem í verður páskaegg frá Nóa Síríusi, bíómiði á The Wife frá Sambíó- unum og hlýrabolur í lit að eigin vali. „Þeir sem hafa ekki tök á að nálgast kaupaukann þurfa ekki að örvænta, við ætlum í samstarfi við Sambíóin að bjóða 50% afslátt með kóðanum „ZikZak“ sem hægt verður að nota í afgreiðslu og á netinu, kóðinn gildir til 21. febrú- ar,“ segir hún. Á afmælishátíðinni verður kynnt glæný og glæsileg vorlína og býður ZikZak 20-50% afmælis- afslátt af öllum vörum. Sigríður segir að skokkar og kjólar séu mjög áberandi í nýju línunni og þá eru falleg og björt munstur einkenn- andi í ár. ZikZak heldur áfram að bjóða frábært vöruúrval í stærð- unum 36-56 á góðu verði. „Versl- unin okkar í Kringlunni hefur nýlega fengið nýtt og ferskt útlit og er hreint út sagt stórglæsileg – sjón er sögu ríkari. Við erum afar stolt af útkomunni og einnig viðskipta- vinirnir okkar,“ bendir hún á. ZikZak er einnig á Akureyri en Norðlendingar hafa tekið búðinni opnum örmum. Sú verslun er einmitt tveggja ára og verður ekki síðri afmælishátíð þar á bæ. „Akureyringar og nærsveitungar hafa kunnað virkilega vel að meta verslunina okkar þar, við ætlum einnig að gleðja gesti þar yfir hátíðina,“ segir Sigríður. Þá er ár síðan ZikZak opnaði netverslun á www.zikzakverslun. is sem hefur fengið glimrandi góðar viðtökur. Viðbótin hefur mælst vel fyrir og fer netverslunin ört vaxandi milli mánaða. „Þessi viðbót hefur gefið okkur enn betra tækifæri til að veita viðskipta- vinum okkar framúrskarandi þjónustu. Það er alveg of boðslega gaman að sjá hvað margir nýta sér netverslunina. Á www.zik- zakverslun.is geta viðskiptavinir okkar séð allt það vöruúrval sem verslunin hefur upp á að bjóða og allar helstu upplýsingar varðandi vörur okkar og þjónustu.“ Sigríður segir að verslunin ætli að gera vel við alla sem versla á www.zikzakverslun.is og bjóða 20-50% afslátt af öllum vörum og ef verslað er yfir sjö þúsund krónur fylgir hlýrabolur með. „Nú geta allir kíkt á www.zikzakverslun. is og skoðað og pantað öll okkar flottu afmælistilboð sem verða í boði yfir afmælishátíðina. Annars bjóðum við alla velkomna að kíkja til okkar og fagna afmælinu með okkur og upplifa frábæra stemm- ingu. Við bjóðum 20-50% afslátt af öllum vörum yfir hátíðina og auðvitað eru afmælistilboðin fáanleg í báðum verslunum okkar, í Kringlunni og á Akureyri,“ segir Sigríður. Sigríður í litríkum og glæsilegum kjól sem verður á 50% afslætti og mun kosta aðeins 2.490 krónur sem er ekki hátt verð fyrir jafn vandaða flík. Svarthvítur og sjóðandi og er að sjálfsögðu á 20% afmælisafslætti. Hlébarðamunstur er alltaf klassískt. Verður á 20% afslætti. Fallegur og töff, sérstaklega með hækkandi sól, á 20% afslætti. Nýja línan sem ZikZak býður upp á er mögn- uð að sjá og ekki skemmir verðið. Þessi verður á 20% afmælisaf- slætti. Kjóll sem hæfir hvaða tilefni sem er. Verður á 20% afmælisafslætti. Grár og geggj- aður og að sjálfsögðu á af- mælisafslætti. Við erum þekkt fyrir að veita framúrskarandi þjón- ustu og þá erum við dugleg að gera breyting- ar sem viðskiptavinur- inn hagnast á. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 1 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 F -1 1 E 8 2 2 4 F -1 0 A C 2 2 4 F -0 F 7 0 2 2 4 F -0 E 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.