Fréttablaðið - 13.02.2019, Síða 23
Í Kenía tók það
okkur meira en ár
að fá fyrirtækið skráð af því
að við vildum ekki greiða
mútur.
Fyrirtæki þurfa að
eiga slæm ár og það
er nánast óumflýjanlegt.
Það gefur þeim tækifæri til
að ráðast í endurnýjun, eins
og við fengum inn nýjan
forstjóra það ár og hann réð
nýtt fólk.
Þrjár konur stýra fyrirtækjum Reynis. Auður Björk Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Two Birds, Lilja Þorsteinsdóttir er
framkvæmdastjóri stafræna markaðsfyrirtækisins Svartagaldurs og Brynja Baldursdóttir er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
starfinu í 20 ár. Starfsemin hafði
breyst mikið, ég náði að einhverju
leyti að breytast með en ef til vill var
ég orðinn þreyttur á þessu. Neistinn
var farinn. Ég var ekki lengur rétti
maðurinn í starfið.“
Þú ert enn þá stjórnarformaður. Er
neistinn kominn aftur?
„Nei, ekki að fullu allavega. Ég er
stjórnarformaður en sinni ekki dag-
legum rekstri. Fyrst reyndi starfs-
fólkið að fara fram hjá forstjóranum
og leita til mín ef eitthvað bjátaði á
en ég var mjög skýr og sagði: Það
þýðir ekkert að tala við mig. Stefano
rekur fyrirtækið.
Ég hélt að það yrði erfitt að sleppa
tökum á rekstrinum. Fólk spyr: Er
þetta ekki barnið þitt? Nei. Þetta
er bara fyrirtæki. Þetta er gott
fyrirtæki og starfsfólki líður vel í
vinnunni. Creditinfo mun farnast
vel hvort sem ég er með puttana í
því eða ekki. Ég hef sinnt því í 20 ár
og er feginn að það geti staðið á eigin
fótum.
Ég passa ekki lengur í menningu
fyrirtækisins. Nú þegar fyrirtækið
er orðið stórt þarf að fylgja alls kyns
gæðastöðlum. Allt fer í ferla, það
er nefnd sem forgangsraðar verk-
efnum, ekki bara innan hvers lands
heldur einnig hvort fjármagnið
nýtist til dæmis betur í Tansaníu
eða Litháen. Þetta er eins og sam-
líkingin með stóra svifaseina skipið
en ég er jet ski maður. Ég vil geta
fengið hugmynd um morguninn og
fólk hefst handa við að hrinda henni
í framkvæmd á hádegi.“
Styttist í sölu Creditinfo
Hvarf lar ekkert að þér að selja 78
prósenta hlut þinn í Creditinfo?
„Það er ekki komið að því en
það styttist í það. Ég þarf þá að
finna betra fjárfestingartækifæri,
við munum tvöfalda hagnaðinn á
árinu. Reksturinn gengur vel, þetta
er ágætis staður fyrir peninginn.“
Það hafa verið töluverð viðskipti
með hlutabréf Creditinfo á undan-
förnum árum.
„Ég keypti hlut Breta árið 2013
sem vildu selja eftir að fjármagns-
höftum var komið á. Við það fór
hlutur minn í 93 prósent. Frá þeim
tíma hef ég selt starfsmönnum
hlutabréf, en þeir eiga um 10 pró-
senta hlut, og breski fjárfestinga-
sjóðurinn Actis keypti 10 prósenta
hlut árið 2016. Hann er sérhæfður
í fjárfestingum í Afríku og minna
þróuðum mörkuðum. Ég á um 80
prósenta hlut en þarf ekki að eiga
svo mikið í fyrirtækinu.“
Er ekki ágætt að fá fjárfesta til liðs
við þig í stjórn sem eru áhugasamir
um rekstur Creditinfo?
„Jú, því annars ber ég í raun einn
endanlega ábyrgðina á rekstrinum.
Ég er sá eini sem skipar stjórnar-
menn. Mér finnst eins og ég hafi
skrifað bókina en eigi eftir loka-
kaflann og þurfi að fá aðstoð frá ein-
hverjum sem kann að selja fyrirtæki
sem þetta og hámarka verðmætin.
Við höfum hægt og bítandi verið að
innleiða ferla til þess að allt sé 100
prósent þegar kemur að sölu.“
Hefur vaxið um 15 prósent á ári
Reynir segir að fyrirtækið hafi vaxið
um 15 prósent á ári býsna lengi.
Hann bendir á að það taki innan
við fjögur ár að tvöfalda umsvifin
ef vöxturinn er 20 prósent á ári.
„Það er ansi hratt að vaxa um 15
prósent á ári. Við höfum þurft að
glíma við þann vanda sem skap-
ast þegar vöxturinn er of hraður.
Reksturinn var skorinn niður árið
2007 og nokkur fyrirtæki seld en
þá voru starfsmenn orðnir 550 og í
27 löndum. Þetta er eins og tré sem
spretta hratt – þau verða léleg. Þau
líta vel út allt þar til það fer að blása
en þá brotna þau.
Þegar vöxturinn er mikill tekst
ekki að skipta út fólki nógu hratt.
Þetta er eins og að fara upp úr fjórðu
deildinni í knattspyrnu í þá þriðju,
aðra og fyrstu. Allt í einu er góða
og dygga starfsfólkið sem kom þér
áfram ekki í stakk búið til að spila
í fyrstu deildinni. Hraður vöxtur
hefur líka í för með sér að nauðsyn-
legir innviðir eru ekki til staðar sem
geti dregið úr líkum á mistökum og
ef þau verða, að það séu úrræði til
staðar til að leysa vandann.
Hraður vöxtur eykur jafnframt
þörfina á handbæru fé en okkar
stærsti kostnaðarliður er laun og
gögn og þetta þarf að borga strax.
En tekjurnar berast síðar. Eftir því
sem sunnar er farið á hnettinum
aukast líkur á því að greiðslur tefjist.
Það má rekja til ólíkrar menningar.“
Er Creditinfo í of mörgum löndum
til að hafa yfirsýn?
„Nei. Það verða til miðstöðvar.
Eystrasaltslöndunum er til að
mynda stjórnað frá Íslandi. Lönd-
unum í Vestur-Afríku er stjórnað
frá Marokkó. Þeir þekkja menn-
inguna, tala frönsku og eru nálægt
mörkuðum. Það er svæðisstjóri í
Mexíkó sem annast Karíbahafið og
Suður-Ameríku.
Reksturinn er f lókinn, við erum
með fjölda starfsmanna í mörgum
löndum en hvert og eitt fyrirtæki er
ekki stórt í sniðum. Það er algengt
að á hverri skrifstofu séu fjórir,
fimm starfsmenn, sem sinna tækni-
málum, áhættustýringu og reka
starfsemina.
Hjá Creditinfo vinna sérfræð-
ingar miðlægt með þessum minni
fyrirtækjum. Í Prag eru flestir starfs-
menn en þar rekum við upplýsinga-
tæknimiðstöð. Það þarf að aðstoða
minni löndin sem geta ekki búið
yfir allri nauðsynlegri þekkingu. Á
Íslandi eru til dæmis hámenntaðir
stærðfræðingar sem vinna við að
smíða módel – við höfum ekki efni
á því í Kenía og þess vegna er leitað
til sérfræðinga í Prag.
Á Íslandi vinnum við með 1.500
fyrirtækjum og stofnunum á meðan
í stórum löndum eins og Tansaníu
eru 20-30 fjármálastofnanir í við-
skiptum við okkur. Það þarf því
færra starfsfólk, vöruframboðið
er minna og starfsemin er því ein-
faldari. Þetta virkar.“
Bankar dæmdir af mistökunum
Þér verður tíðrætt um mikilvægi
öf lugrar fyrirtækjamenningar. Er
erfitt að halda sömu menningu í 26
löndum?
„Menning er lykilatriði í rekstri.
Það liggur við að menningin skipti
meira máli en hugmyndin. Það
verður alltaf einhver munur á
menningunni. Lykilstefið í menn-
ingunni okkar er að allt sem er gert
verður að hafa tilgang – ekki vera
með neitt bull – og að allir séu jafn-
ir og í sama liði. Það er fyrirliði en
hann er ekki yfir aðra hafinn.
Í mörgum landanna er menn-
ingin allt önnur. Í sumum löndum
dytti framkvæmdastjóra ekki í hug
að sækja kaffið sitt, hann þarf að
hafa aðstoðarmann og vera kallaður
herra. Við reynum að fara einhvern
milliveg með það, höfum yfirleitt
heimamann sem framkvæmda-
stjóra en ætlumst til að hann hafi
okkar gildi í heiðri.
Það verður líka að hafa gaman af
vinnunni, jafnvel þótt við eigum í
viðskiptum við íhaldssamar stofn-
anir eins og opinbera eftirlitsaðila
og banka. Bankar haga sér með
þessum hætti því þeir eru eins
og markmenn í fótbolta. Þeir eru
dæmdir af mistökunum sem þeir
gera og því skiptir mestu að gera
ekki mistök. Á hinn bóginn eru
flestir aðrir, eins og við, dæmdir af
því hvað þeir gera og þurfa stöðugt
að halda áfram og skora mörk. Þetta
er dæmi um ólíka menningu. Tek
þó fram að með auknu mikilvægi
tækni er menningin að breytast hjá
fjármálastofnunum og mun þurfa
að gera það hratt.“
Reynir segir að stærri keppinaut-
ar sem eru með milljarða dollara í
veltu geti ekki farið til landa eins og
Jamaíka og hafið starfsemi með eins
hagkvæmum hætti og Creditinfo.
„Þeirra kerfi eru dýrari og stærri,
ákvarðanir eru kostnaðarsamar og
skipulagið er svifaseint. Við sendum
einfaldlega starfsmann sem hefur
gert þetta áður. Hann finnur hús-
næði, aflar leyfa og ræður starfsfólk.
Hjá okkur lifir að hluta til íslenska
menningin. Við förum í verkið og
finnum leiðina. Fyrir vikið erum
við fyrsti kostur hjá Alþjóðabank-
anum fyrir lönd sem erfitt er að eiga
við eins og Írak og Afganistan.“
Hafið þið oft átt í viðskipti við
Alþjóðabankann?
„Já, mjög oft. Í níu af ellefu Afríku-
löndum sem við erum í erum við í
samstarfi við Alþjóðabankann. Þeir
skipulögðu útboð sem við unnum
í Afríku og nokkrum löndum fyrir
utan Afríku.“
Greiða ekki mútur
Það er athyglisvert að Creditinfo óx
um 60 prósent árið 2018 í löndum
utan Evrópu.
„Það er frá afar lágum grunni.
Eins og í Austur-Afríku, Kenía og
Tansaníu, er veltan innan við 100
milljónir króna í hvoru landi en
tvöfaldast á milli ára. En það sem
er skemmtilegt við þetta er hve
erfitt það er að hefja starfsemina.
Í Kenía tók það okkur meira en
ár að fá fyrir tækið skráð af því að
við vildum ekki greiða mútur. Það
stríðir gegn stefnu fyrirtækisins. Við
það vorum við settir aftast í röðina.“
Tíðkast mútur í mörgum löndum
sem þið starfið í?
„Já. Vegna þess að við vildum ekki
greiða mútur tafðist til dæmis send-
ing af netþjónum endalaust í tolli.“
Af hverju greiðið þið ekki mútur?
„Starfsemi fyrirtækisins snýst um
traust. Við erum fengin til að halda
utan um viðkvæm gögn og fólk þarf
að geta treyst þeim í okkar höndum.
Við höfum misst af samningum
vegna þessarar stefnu. En Alþjóða-
bankinn gætir þess í samstarfi
okkar að við þurfum ekki að glíma
við spillingu í til dæmis löndum í
Afríku. Við höfum þurft að kvarta
til bankans en löndin treysta á pen-
inga frá honum og þegar hann slær
á hendurnar er oftast farið eftir því.
En það er oft útilokað að fara til ein-
hvers lands, einn og óstuddur, í því
skyni að stofna fyrirtæki frá grunni.
Það nægir ekki alltaf að eiga í
samstarfi við Alþjóðabankann.
Fyrir um það bil tveimur árum
gerðum við samning við 21 banka
í Aserbaídsjan í samstarf i við
Alþjóðabankann. Þetta var stór við-
burður og það voru sex myndavélar
sem mynduðu undirskriftina. Svo
kom á daginn að einhver tengdur
forsetanum vildi ekki að verkefnið
yrði að veruleika. Mér var sagt að
ástæðan væri að sumir pólitíkusar
í sumum löndum fá lánað hér og þar
og ætla ekki að greiða fjármunina til
baka. Þeir kæra sig ekki um að það
sé haldið utan um lánin. Hvað þá af
einhverjum útlendingi. Það var gert
mikið úr þessu verkefni en það var
drepið. Okkur var neitað um að skrá
fyrirtæki þar í landi. Við reyndum
að fá skráninguna í gegn í hálft ár,
bentum á að það væri kominn á
samningur og Alþjóðabankinn
lagði sitt lóð á vogarskálarnar en
allt kom fyrir ekki. Spilling. Maður
lendir stundum í þessu.“
Tækifærin eru stórkostleg
Þú gefst ekkert upp á að starfa í
þessum löndum?
„Nei, tækifærið er að það búa
nærri 100 milljónir í löndum eins og
Tansaníu og Kenía og þeim fjölgar
hratt, sérstaklega í millistéttinni.
Velta fyrirtækisins í þeim löndum
mun vaxa hratt í langan tíma. Tæki-
færin eru stórkostleg ef þú kemst af
stað. Við höfum verið að ná fótfestu
í Afríku og það er að skila mikilli
tekjuaukningu og svo mun hagn-
aðurinn fylgja í kjölfarið.“
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
1
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
F
-2
5
A
8
2
2
4
F
-2
4
6
C
2
2
4
F
-2
3
3
0
2
2
4
F
-2
1
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K