Fréttablaðið - 13.02.2019, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Tómas samdi text a lagsins og syngur það ásamt Tobbu systur sinni. Þetta eru þó ekki hans fyrstu skref inn í tónlistarheim-
inn því Tómas er vanur að vera á
bak við myndavélina að taka upp
tónlistarmyndbönd fyrir meðal
annars JóaPé og Króla, Chase, YXY
og f leiri tónlistarmenn. Tómas
hefur starfað sem kvikmynda-
gerðarmaður undanfarin þrjú ár en
starfar nú hjá stafrænu auglýsinga-
stofunni KIWI og lá því leiðin ekki
beint inn í lagasmíði og söng. Hann
man þó eftir sér ungum að syngja
mikið en hefur verið feimin við að
syngja fyrir aðra. Tómas þakkar
Benna vini sínum, sem er meðlim-
ur í teyminu Séra Bjössi, fyrir það
hvernig hann tók sín fyrstu skref
í að gefa út sitt fyrsta lag. „Það var
ekki fyrr en félagi minn Benni, sem
er í Séra Bjössa hópnum, fékk mig til
sín í stúdíó að búa til takta þegar ég
lét bara á það reyna að syngja fyrir
framan hann. Það gekk bara eins
og í sögu og við erum langt komnir
með albúm eins og er.“
Verst að fara í bíó með Tourette
Þeir sem þekkja Tómas vita að
hann er ófeiminn við að
tala um sjúkdóminn sem
hann hefur þjáðst af í
13 ár, Tourette. Sjúk-
dómurinn er stór
partur af lífi hans
en Tómas kallar
hann sinn versta
óv in. „Verst er
að fara í bíó með
Tour ette, því kipp-
irnir og hljóðin
eiga það til að koma
f r a m og ö ðr u m
bíógestum er ek k i
skemmt, halda jafnvel
að ég sé með stæla. Ég fór til
dæmis fyrir svona fjórum árum
í bíó á frekar rólega mynd. Sat þarna
á meðan spennan í myndinni var að
byggjast upp hægt og rólega. Það var
þá sem Tourette ákvað að láta vita
af sér og ég fékk ákveðið Tourette-
kast. Það leið ekki á löngu þar til
ung kona stóð upp fyrir framan mig
og sagði í frekar hvössum tón: „Ertu
til í að halda kjafti?“ En ég sá strax
á andlitinu á stráknum sem hún var
þarna með að hann þekkti Tourette,
enda dró hann hana með sér út í
hléinu. Svona hlutir hafa oft skeð
og það er líka oft sem fólk heldur
að ég sé að hlæja að einhverju sem
kannski á
ekki við.“
T ó m a s
grunar að Tour-
ette-einkennin eigi
eftir að verða áberandi
þegar hann fer að færa sig upp
á svið að f lytja tónlist sína fyrir
framan áhorfendur enda verða
einkennin meiri undir álagi og
spennu. Hann segist þó ekki velta
sér upp úr því eins og staðan er.
„Tourette á ekki að vera eitthvað
sem heldur aftur af manni, þó svo
það geti oft látið frekar mikið fyrir
sér fara. Þetta verður bara hluti af
persónunni sem maður er og fólk
venst því alveg að umgangast þetta.
En eins og með þessa hugsun, að
fara upp á svið og fá kæki þar, það
er kannski ógnandi en alls enginn
heimsendir.“
Lagið Sideways er fyrsta lag plötu
sem Tómas er með í bígerð og ætlar
sér að gefa út á næstu misserum.
Aðspurður segir Tómas að hann
hafi stax fílað lagið og söngnum
hafi verið náð í einni töku en text-
inn var þá enn óformaður og Tómas
söng einfaldlega það sem kom til
hans í upptökunni í takt við lagið.
Hefur gert fjölmörg tónlistar-
myndbönd
Tómas hefur mikla ástríðu fyrir
kvikmyndagerð og byrjaði bolt-
inn að rúlla þegar hann tók upp
lítið tónlistarmyndband fyrir vini
sína, þá JóaPé og Króla, fyrir lagið
Spreða. Eftir það opnuðust margar
dyr og fólk víðs vegar fór að biðja
hann um myndbandsgerð af ýmsu
tagi. Þá gerði hann einnig tónlistar-
myndbandið við lagið „Ég vil það“
með JóaPé og Chase. Tómas hóf nám
við Kvikmyndaskóla Íslands aðeins
17 ára en varð f ljótlega eftirsóttur
í ýmis verkefni og lagði því námið
á hilluna eftir aðeins eina önn en
útilokar ekki frekara nám. Tómas
hafði ekki mikið hugað að laga-
smíði áður, en hafði leikið sér við
að búa til takta eða „beats“. Hann
segist ekki fókusa mikið á texta-
gerð en hún fæðist í lok ferlisins
þegar takturinn er tilbúinn. Hann
er þó spenntur yfir lagi sem kemur
út seinna á árinu þar sem hann á
heiðurinn af textagerð, það lag er
unnið með JóaPé og finnst honum
ekki ólíklegt að það verði sumar-
smellur. bjork@frettabladid.is
Lætur versta óvin
sinn ekki aftra sér
Tómas Welding ásamt systur sinni Tobbu sem syngur með honum í laginu
Sideways sem er fyrsta lagið á væntanlegri plötu. MYND/TARA TJÖRVADÓTTIR
Lagið Sideways kom
út á dögunum, það
fyrsta sem Tómas
Welding, 20 ára
Hafnfirðingur, gefur
út. Tómas lætur sinn
versta óvin, sjúk-
dóminn Tourette,
ekki aftra sér frá
að sækja fram á
tónlistarsviðinu.
ÞAÐ LEIÐ EKKI Á
LÖNGU ÞAR TIL UNG
KONA STÓÐ UPP FYRIR FRAMAN
MIG OG SAGÐI Í FREKAR
HVÖSSUM TÓN „ERTU TIL Í AÐ
HALDA KJAFTI?“
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Almennur afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
FIMMTUD. 14. FEBRÚAR
LOKAÐ Á SMÁRATORGI
VEGNA VÖRUTALNINGAR
OPIÐ Í DORMA HOLTAGÖRÐUM
FÖSTUD. 15. TIL SUNNUD. 17. FEBRÚAR
LOKAÐ Í HOLTAGÖRÐUM VEGNA
ÁRSHÁTÍÐAR STARFSMANNA
OPIÐ Í DORMA Á SMÁRATORGI
ALLA HELGINA
HEFÐBUNDINN OPNUNARTÍMI
DORMA Á AKUREYRI OG ÍSAFIRÐI
HVER VANN?
Sportið á frettabladid.is færir þér
allar nýjustu fréttirnar úr heimi
íþróttanna.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
F
-0
8
0
8
2
2
4
F
-0
6
C
C
2
2
4
F
-0
5
9
0
2
2
4
F
-0
4
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K