Fréttablaðið - 08.02.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 3 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
LÖGREGLUMÁL Sigríður Friðjóns-
dóttir ríkissaksóknari er að eigin
mati vanhæf til að taka afstöðu til
þess hvort hefja á rannsókn að nýju
á afdrifum Guðmundar og Geirfinns
Einarssona. Hún tilkynnti dóms-
málaráðherra um vanhæfi sitt með
bréfi 12. desember síðastliðinn.
Eins og fram kom við upphaf end-
urupptökumálsins er Sigríður Frið-
jónsdóttir ríkissaksóknari tengd Erni
Höskuldssyni fjölskylduböndum en
hann stýrði rannsókn á áttunda ára-
tugnum gegn sexmenningunum sem
sakfelld voru fyrir aðild að manns-
hvörfunum tveimur.
Dómsmálaráðherra hefur ekki
tekið afstöðu til þess hvort einhver
annar verði settur ríkissaksóknari
til að taka ákvörðun um nýja rann-
sókn en samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálaráðuneytinu hefur erindið
verið móttekið og er til meðferðar.
Þegar Davíð Þór Björgvinsson,
settur saksóknari í endurupptöku-
málinu, skilaði vinnu sinni af sér til
embættis ríkissaksóknara eftir að
sýknudómur féll í Hæstarétti síð-
astliðið haust vakti hann sérstaka
athygli á ábendingum um afdrif
mannana tveggja sem komið hafa
fram á undanförnum árum og vísað
var til hans. Þar á meðal var ábend-
ing um afdrif Guðmundar sem leiddi
til handtöku tveggja manna árið
2015. Einnig voru teknar skýrslur
af tveimur vitnum árið 2016 vegna
meintra atvika í Vestmannaeyjum
dagana í kringum hvarf Geirfinns
árið 1974.
Fréttablaðið greindi frá því í haust
að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lægi undir feldi vegna málsins og
hefði hug á að hefja rannsókn að
nýju en biði formlegrar afstöðu rík-
issaksóknara. Það er hins vegar ein-
ungis Guðmundarmálið sem er á for-
ræði þess embættis en Guðmundur
hvarf í Hafnarfirði í janúar 1974.
Hvarf Geirfinns heyrir hins vegar
undir lögregluna á Suðurnesjum
og það var lögreglan í Keflavík sem
rannsakaði málið á sínum tíma.
Þar var málinu lokað um mitt ár
1975 sem óupplýstu mannshvarfi,
áður en lögreglan í Reykjavík kallaði
eftir gögnum þaðan í janúar 1976,
þegar fjöldi fólks var í gæsluvarð-
haldi í Síðumúla vegna Guðmundar-
máls. – aá
Segist vanhæf
í máli Geirfinns
og Guðmundar
Ríkissaksóknari hefur lýst sig vanhæfa til að taka
afstöðu til nýrra ábendinga í Guðmundar- og Geir-
finnsmálum. Ráðuneytið hefur ekki aðhafst en
hefur málið til meðferðar. Nýjar ábendingar bárust
yfirvöldum um mannshvörfin árin 2015 og 2016.
Sigríður
Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari.
borgarleikhus.is Nú fer hver að verða síðastur.
FRÉTTABLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
SÖNGVARI
ÁRSINS
BÚNINGAR
ÁRSINS
LANDBÚNAÐUR „Það getur vel verið
að haldi svo fram sem horfir verði
ekki mikið til af lambahryggjum
í sumar,“ segir Ágúst Torfi Hauks-
son, formaður Landssamtaka
sláturleyfishafa. Framleiðsla annar
kannski ekki innanlandsmarkaði.
Útflutningur orki því tvímælis við
þessar aðstæður. – sa / sjá síðu 6
Lambahryggir
gætu klárast
Ágúst Torfi
Hauksson.
Fleiri myndir frá Vetrarhátíð er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-
appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
Vetrarhátíð var sett í gærkvöldi. Opnunaratriðið
var ljósainnsetning sem varpað er á Hallgríms-
kirkju. Víkingar gengu svo fylktu liði niður að
Listasafni Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum rannsakar nú andlát sem
varð í Grindavík á sjötta tímanum í
gær. Samkvæmt heimildum var einn
handtekinn vegna málsins.
Varðstjóri lögreglunnar gat ekkert
staðfest við Fréttablaðið í gærkvöldi.
Boðaði tilkynningu og varðist allra
fregna. Rannsóknardeildin á Suður-
nesjum annast málið.
Blaðið hefur upplýsingar um að
lögreglan hafi gengið í nálæg hús í
Grindavík og leitað vitna. Tilkynn-
ing lögreglu hafði ekki borist þegar
Fréttablaðið fór í prentun. Nýjustu
fréttir af málinu má finna á Frétta-
blaðið.is. – bg
Andlát til
rannsóknar
0
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
6
-0
4
F
C
2
2
4
6
-0
3
C
0
2
2
4
6
-0
2
8
4
2
2
4
6
-0
1
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K