Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.02.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 08.02.2019, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið MINI ELECTRIC PLUG-IN HYBRID OG FJÓRHJÓLADRIF. MINI COUNTRYMAN PLUG-IN VERÐ FRÁ: 5.850.000 KR. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is www.mini.is E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 4 1 M in i C o u n t ry m a n 5 x 1 0 f e b NÝSKÖPUN „Þetta er framlag Sam- taka iðnaðarins við mótun nýsköp- unarstefnu fyrir Ísland. Við erum að leggja til ýmsar aðgerðir á þessu sviði og viljum sjá meira gerast í þessum málaflokki á kjörtímabil- inu því við erum að dragast aftur úr í samanburði við önnur ríki,“ segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hug- verkasviðs Samtaka iðnaðarins, um nýsköpunarstefnu samtakanna sem kynnt var í gær. Í stefnunni er staðan eins og hún er í dag dregin fram sem og fram- tíðarsýn fyrir árið 2050. Bent er á að nú séu margvíslegir veikleikar í umhverfi nýsköpunar á Íslandi. Til að bæta umgjörð og hvata til nýsköpunar á Íslandi eru lagðar til aðgerðir í fjórum meginþáttum. Í fyrsta lagi er lagt til að fjárfesting í rannsóknum og þróun verði aukin meðal annars með afnámi á þaki á endurgreiðslur og skattaívilnunum. Í öðru lagi er lagt til að framboð af sérfræðingum verði aukið með því að horfa til uppbyggingar mennta- kerfisins og efla umgjörð til að taka á móti sérfræðingum. Þá er lagt til að stuðningsum- hverfið verði einfaldað og eflt. Hægt sé að ná fram meiri skilvirkni og hagræðingu með því að sameina málaflokkinn undir einni stofnun. Að lokum er bent á mikilvægi þess að efla kynningar- og markaðsstarf þannig að Íslandi verði kynnt sem ákjósanlegur staður fyrir fólk og fyrirtæki í nýsköpun. Sigríður segir að verði ekki gripið til aðgerða sem allra fyrst muni það koma niður á lífskjörum í fram- tíðinni. „Þá munum við ekki ná að byggja upp þá verðmætasköpun sem við þurfum. Það er grundvall- aratriðið í þessu því hugvitið og nýsköpunin er eina leiðin fram á við.“ – sar Hugvitið og nýsköpunin eina leiðin fram á við REYKJAVÍK Borgar ráð sam þykkti í gær að leggja niður skrif stofu eigna- og at vinnu þróunar (SEA) eftir að hún fékk út reið í skýrslu um fram- kvæmdirnar við Naut hóls veg 100, endurbætur á bragganum margum- talaða. Samþykktar voru fleiri breytingar sem taka gildi 1. júní en vinnan að þeim var leidd af for manni borgar- ráðs, Þór dísi Lóu Þór halls dóttur. „Þarna erum við enn fremur að skýra á byrgð og að stjórn sýslan sé gegn sæ með það að mark miði að bæta þjónustu við borgar búa og tryggja skil virkari stjórn sýslu, sem mun gagnast okkur öllum,“ segir Þór dís Lóa. Tíu aðrar breytingar voru kynntar í gær, en meðal þeirra er að leggja niður fjár mála skrif stofu og skrif stofu þjónustu og reksturs. Til verða þrjú ný kjarna svið, svið þjónustu og ný sköpunar, svið mann auðs og starfs um hverfis og svið fjár mála og á hættu stýringar. Þá fær inn kaupa ráð aukið hlut- verk auk þess sem starf reglu varðar Reykja víkur borgar verður eflt. Með þessum breytingum er lögð á hersla á vandaða, skil virka fram kvæmd og á kvarðana töku. – dfb Uppstokkun í stjórnsýslunni Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Viljum sjá meira gerast í þessum málaflokki á kjörtímabilinu. Sigríður Mogensen SKATTAMÁL „Tekjuskattkerfi eins og hér er útfært er ekki aðeins sann- gjarnara og skilvirkara en núverandi skattkerfi. Það myndi leiðrétta að hluta hina stóru og óréttlátu skatta- tilfærslu sem hér varð fyrir tilstilli stjórnvalda, án þess að það væri kynnt eða rætt í samfélaginu.“ Þetta segir í niðurstöðukafla skýrslu um umbætur á skattkerfinu sem Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði, og Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, unnu fyrir Eflingu og kynnt var í gær. Í skýrslunni er dregið fram að skattbyrði tekjulægstu 90 prósent- anna hafi aukist umtalsvert á um það bil síðustu 20 árum. Á sama tíma hafi skattbyrði tekjuhæsta hópsins lækkað. Þeir Stefán og Indriði útfæra í skýrslunni fjögurra þrepa skattkerfi í samræmi við stefnu ASÍ. Fyrir lág- launafólk væri um 20 til 29 þúsund krónur á mánuði að ræða. Alls myndu 90 prósent skattgreið- enda fá skattalækkun, lítil breyting yrði hjá næstu fimm prósentunum en tekjuhæstu fimm prósentin fengju hækkaða skattbyrði. Nettókostnaður ríkissjóðs vegna kerfisins yrði um 30 milljarðar. Þeir Stefán og Indriði telja að fjármagna mætti það á auðveldan hátt. Til dæmis væri hægt að nýta þá 14 millj- arða sem eyrnamerktir hafa verið í skattalækkanir upp á 14 milljarða og taka 16 milljarða af tekjuafgangi ríkissjóðs. „Við leggjum áherslu á að það er ekki að okkar mati neitt svigrúm til að lækka skatttekjur ríkissjóðs. Það kemur bara í bakið á mönnum með minni þjónustu ríkisins. Þarna eru fjölmargar tillögur sem myndu meira en duga til þess að jafna stöðuna og gott betur.“ Hægt væri að ráðast í enn frekari skattalækkun með hækkun per- sónuafsláttar og skattleysismarka sem myndu nýtast lægstu tekjuhóp- unum best. Til að fjármagna slíkt væri hægt að hækka fjármagnstekjuskatt til sam- ræmis við það sem gerist á hinum Norðurlöndunum og taka upp stór- eignaskatt með frítekjumarki. Þá væri hægt að leggja á sanngjörn auð- lindagjöld fyrir þær atvinnugreinar sem nýti sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar. Indriði leggur áherslu á að skoða þurfi fleiri þætti en tekjuskattkerfið. „Orsökin fyrir þessu misræmi milli hópa er ekki síst fólgin í því hvað fjármagnstekjur eru orðnar stór hluti af heildartekjunum og hvernig skatt- lagning á þeim hefur verið ívilnandi.“ Þá lendi til að mynda virðisauka- skattur hlutfallslega þyngra á tekju- lágum en tekjuháum vegna þess að þeir noti tekjur sínar í meira mæli í skattskylda vöru og þjónustu. „Þess vegna eru beinir skattar í rauninni eina tækið sem stjórnvöld hafa til að rétta við dreifingu skattbyrðar. Hvort sem það er tekjuskattur, fjármagns- tekjuskattur eða eignaskattar,“ segir Indriði. sighvatur@frettabladid.is Leggja til að skattbyrði þeirra tekjuhæstu verði hækkuð Efling kynnti í gær skýrslu um umbætur á skattkerfinu þar sem lagt er upp með sanngjarnari dreifingu skattbyrðar. Skýrsluhöfundar segja skattatilfærslu hafa átt sér stað þar sem byrðar hafi verið færðar af tekju- hæstu hópunum yfir á þá tekjulægri. Lagt er upp með fjögurra þrepa skattkerfi til að leiðrétta tilfærsluna. Samkvæmt útfærslu skýrslunnar myndi tekjuskattur lækka hjá 90 prósentum skattgreiðenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Við leggjum áherslu á að það er ekki að okkar mati neitt svigrúm til að lækka skatttekjur ríkis- sjóðs. Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 6 -1 D A C 2 2 4 6 -1 C 7 0 2 2 4 6 -1 B 3 4 2 2 4 6 -1 9 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.