Fréttablaðið - 08.02.2019, Síða 6
Á Volkswagen e-Golf nýtir þú hreina innlenda orku, tekur aldrei eldsneyti, ert
laus við olíuskipti, ferð inn í heitan bíl á morgnana og upplifir magnaðan akstur.
Komdu og prófaðu þinn eftirlætis e-Golf strax í dag. Við eigum einn fyrir þig.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðumwww.volkswagen.is
Hvers manns straumur.
LANDBÚNAÐUR Talið er líklegt að
lambahryggir klárist strax í byrjun
sumars hér á landi og verði ekki
fáanlegir aftur fyrr en í næstu slátur-
tíð í haust. Auðvelt hefur verið að
koma lambahryggjum í verð. For-
maður félags sláturleyfishafa telur
fyrirtæki hafa kannski verið heldur
fljót á sér að flytja kjöt út í lok síðasta
árs.
Um 10.500 tonn af lambakjöti
voru framleidd í síðustu sláturtíð.
Strax voru flutt út um 1.300 tonn á
erlenda markaði á síðasta fjórðungi
síðasta árs. „Það er nokkuð augljóst
að í lok síðustu sláturtíðar var nóg til
af hryggjum fyrir innlendan markað.
Menn hafa kannski verið full brattir
í að losa birgðir, og menn fengu allt í
lagi verð fyrir það sem þeir fluttu út,“
segir Ágúst Torfi Hauksson, formað-
ur Landssamtaka sláturleyfishafa.
„Það getur vel verið að haldi svo
fram sem horfir verði ekki mikið
til af lambahryggjum í sumar. Það
liggur alveg fyrir. Ég mun ekki geta
skaffað hryggi í því magni sem ég
gat í fyrrasumar,“ segir Ágúst Torfi
Hauksson „Ég ætla ekkert að mót-
mæla því að það verði lítið til af
hryggjum í sumar.“
Samkvæmt samtölum Frétta-
blaðsins við aðila sem þekkja vel
til sauðfjárframleiðslu telja þeir lík-
legast að ef fram heldur sem horfir
að lambahryggir verði að öllum
líkindum búnir í landinu í júní.
Sauðfjárframleiðsla hér á landi er
ríkisstyrkt. Telur Ágúst Torfi þá rétt-
lætanlegt að flytja út ríkisstyrkta
lambahryggi ef ekki verður síðan
nóg til af hryggjum fyrir innlendan
markað, það fólk sem niðurgreiðir
framleiðsluna? „Nei. Ég hygg að
vandamálið sé meðal annars það að
samvinna sláturleyfishafa varðandi
slátrun og ráðstöfun kjöts í fram-
haldi af slátrun hefur ekki verið
heimiluð. Þannig að það er engin
samvinna milli aðila um hversu
mikið er flutt út og hvað er flutt út.
Hún er ekki leyfð. Það veldur því að
hvert fyrirtæki tekur ákvörðun sjálft.
Þá getur það gerst að það sé flutt út of
mikið of snemma.“
sveinn@frettabladid.is
Líklegt að lambahryggir gangi
til þurrðar í sumarbyrjun
Auðvelt hefur verið að koma lambahryggjum í verð og voru fyrirtæki líklega of fljót á sér við útflutning.
Ef fram heldur sem
horfir gæti farið svo að
framleiðslan á lamba-
hryggjum anni ekki
innanlandsmarkaði.
Formaður Landssam-
taka sláturleyfishafa
telur ekki réttlætan-
legt að flytja út hryggi á
sama tíma og mögulegur
skortur er á vörunni hér-
lendis.
Það getur vel verið
að haldi svo fram
sem horfir verði ekki mikið
til af lambahryggjum í
sumar.
Ágúst Torfi Hauks-
son, formaður
Landssamtaka
sláturleyfishafa
VIÐSKIPTI „Árið 2018 var erfitt
rekstrarár,“ segir Bogi Nils Bogason,
forstjóri Icelandair, eftir að félagið
greindi frá afkomu sinni á síðasta ári
í gær.
„Rekstrarniðurstaðan var mun lak-
ari en lagt var upp með í byrjun árs
og endurspeglar harða samkeppni í
millilandaflugi, lág og oft ósjálfbær
fargjöld og mikla hækkun eldsneytis-
verðs. Jafnframt höfðu breytingar á
sölu- og markaðsstarfsemi félagsins
sem og ójafnvægi í leiðakerfi neikvæð
áhrif á afkomuna, eins og áður hefur
verið kynnt,“ er haft eftir Boga Nils í
fréttatilkynningu.
Í tilkynningu Icelandair segir að
heildartekjur hafi aukist um 7 pró-
sent milli ára og numið 1.511 millj-
ónum Bandaríkjadala. Tap ársins
eftir skatta hafi hins vegar numið 55,6
milljónum dala, eða sem nemur 6,6
milljörðum íslenskra króna á núver-
andi gengi. Ljóst er að niðursveiflan er
umtalsverð því árið áður skilaði félag-
ið hagnaði upp á 37,5 milljónir dala.
Forstjórinn segir að breytingar hafi
þegar verið gerðar á félaginu til að ná
markmiðum þess um bætta arðsemi
og rekstur félagsins til framtíðar.
„Ljóst er að áfram ríkir óvissa í
rekstrarumhverfi félagsins auk þess
sem breytingar eru að eiga sér stað í
samkeppnisumhverfinu,“ segir Bogi í
tilkynningu og bætir við að fjárhags-
staða félagsins sé sterk og það í stakk
búið til að takast á
við komandi áskor-
anir.
Í s l e n s k i r
lífeyrissjóðir
eru stærstu
e i g e n d u r
Icelandair
Group. – smj
Icelandair tapaði 6,6 milljörðum króna á erfiðu rekstrarári
Bogi Nils Bogason.
FRAKKLAND Sendiherra Frakklands
á Ítalíu var kallaður heim í gær
vegna yfirstandandi deilu ríkjanna
tveggja. Þetta er í fyrsta skiptið sem
franskur erindreki er kallaður frá
Ítalíu frá því í síðari heimsstyrjöld.
Franska utanríkisráðuneytið
sagði í yfirlýsingu að ákvörðunin
hafi verið tekin vegna særandi
ummæla ítalskra stjórnvalda. Korn-
ið sem fyllti mælinn hafi komið
þegar Luigi di Maio, fjármálaráð-
herra Ítalíu, fundaði með Gulu vest-
unum svokölluðu.
„Frakkar hafa um nokkurra
mánaða skeið sætt ítrekuðum og
ósönnum svívirðingum. Það að vera
ósammála er eitt en það að skaða
samband ríkjanna tveggja í von um
að tryggja sér pólitískar vinsældir er
annað,“ sagði í yfirlýsingunni.
„Ítalska ríkisstjórnin vill ekki
missa sitt góða samband við
Frakka,“ sagði Matteo Salvini, inn-
anríkisráðherra Ítala en ítrekaði
þrjár kröfur sem hann hefur áður
sett fram, og eru stór ástæða fyrir
deilunni. Í fyrsta lagi þyrfti franska
lögreglan að hætta að beina flótta-
fólki til Ítalíu, í öðru lagi að hætta
að tefja umferð á landamærunum
og í þriðja lagi að framselja fimm-
tán ítalska skæruliða sem hafa sest
að í Frakklandi. – þea
Sendiherra
kallaður heim
Matteo Salvini, innanríkismála-
ráðherra Ítala, vill að deilunni við
Frakka linni. NORDICPHOTOS/AFP
8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
6
-3
1
6
C
2
2
4
6
-3
0
3
0
2
2
4
6
-2
E
F
4
2
2
4
6
-2
D
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K