Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.02.2019, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 08.02.2019, Qupperneq 9
E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 4 8 R e n a u lt C li o 5 x 2 0 f e b www.renault.is NÝR RENAULT CLIO GÓÐUR FERÐAFÉLAGI Renault Clio Verð frá: 2.650.000 kr. Renault Clio Verð frá: 2.550.000 kr. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Í DAG Þórlindur Kjartansson Það er frægt viðkvæði í banda­rísku stjórnmálalífi að telja embætti varaforseta vera lítt eftirsóknarvert. Þeir sem veljast í embættið hafa takmörkuð formleg völd, þurfa að beygja sig algjörlega undir vilja og hagsmuni forsetans og hafa gjarnan lítið meira að gera heldur en varamarkmaður í fót­ boltaliði, sem kemur aldrei til sögu nema eitthvað hræðilegt hafi gerst. Einn af valdameiri varaforsetum síðustu aldar, John Nance Garner, sem gegndi embættinu í forseta­ tíð Roosevelt frá 1933 til 1941 er sagður hafa lýst varaforsetaemb­ ættinu þannig að það væri ekki meira virði en fötufylli af volgu hlandi eða hráka, heimildum ber ekki saman. Of vitlaus í hafnaboltann Stundum hafa varaforsetarnir verið fyrrverandi keppinautar þess sem á endanum hreppir embættið, þannig að á milli forsetans og vara­ forsetans liggja ýmsar óuppgerðar sakir og jafnvel kuldaleg fyrir­ litning. Og eins er til í dæminu að varaforsetaefni sé valið sem algjört gluggaskraut, eins og var raunin þegar George Bush hinn eldri gerði Háttvís er hættulegur fríðleikspiltinn Dan Quayle frá Indiana að varaforsetaefni sínu til þess að gera framboðið áferðar­ fallegra og höfða til yfirborðs­ kenndra kjósenda í sveitahéruðum bandaríska miðvestursins. Þetta pólitíska girndarráð reyndist dýr­ keypt því Quayle var viðvarandi aðhlátursefni fyrir klaufalega fram­ göngu sína, hlægilegan þekkingar­ skort og fádæma lélega kunnáttu í stafsetningu. Mörgum sem til þekktu fannst George, sonur forsetans, ekki mikið gáfulegri en varaforsetinn. Þegar George W. reyndi að komast til æðstu metorða innan bandarísku hafnaboltadeildarinnar í krafti þess að vera einn af eigendum Texas Rangers, þótti hinum eigendunum hugmyndin fjarstæðukennd. Allir kunnu prýðilega vel við George W. en engum datt í hug að hann hefði skapgerð og vitsmuni sem hentuðu til þess að takast á við hið ábyrgðar­ mikla embætti forseta bandaríska hafnaboltasambandsins. Valdamaður til vara En það kann að hafa verið gæfa George W. að þekkja ágætlega sín eigin takmörk. Þegar kom að því að velja frambjóðanda í embætti varaforseta fór hann því allt aðra leið en pabbi. Það var nefnilega engin fegurðarsamkeppni sem skilaði Dick Cheney, þáverandi forstjóra verktakafyrirtækisins Halliburton, í embætti varaforseta Bandaríkjanna. Cheney samþykkti með semingi að bjóða sig fram með drengnum en gegn því skilyrði að fá að ráða sjálfur ýmsu sem fram að því engan hefði órað fyrir að kæmi nálægt valdsviði varaforsetans. Þegar Bush yngri náði kjöri, með 5 atkvæðum gegn 4 í hæstarétti Bandaríkjanna, varð Cheney því að einum valdamesta manni heims þótt fæstir kjósendur hafi í raun og veru endilega ætlað að veita honum slík völd, heldur talið að hann væri bara til vara. Nú er til sýningar kvikmyndin Vice þar sem fjallað er um ævi þessa manns sem er sannarlega mikill áhrifavaldur í samtímanum þótt hann kunni engin fegrunarráð, húsþrifnaðaraðferðir eða myndist sérstaklega vel í þröngum fötum. Ó, nei. Cheney er áhrifavaldur af gamla skólanum, maður sem beitir áhrifum sínum til alvöru hluta, eins og að gera sprengjuárásir en ekki til þess að fá like á instasnappinu. Nafn myndarinnar vísar auðvitað til embættisheitisins, en það hefur einnig merkinguna löstur. Og löstur Cheneys er græðgin; nánar tiltekið óseðjandi valdagræðgi, sem myndin gerir engar tilraunir til þess að fegra. Cheney „afrekaði“ margt í emb­ ætti. Hann er maðurinn á bak við innrásina í Írak, pynting­ arnar í Abu Graib, njósnirnar gegn almennum amerískum borgurum og margt margt fleira sem hann segist enn þann dag í dag vera alveg springandi stoltur af. Áhrifavaldur Myndin er listaverk—það er að segja, hún er ekki heimildarmynd og gerir ekki tilraun til þess að þykjast segja söguna með hár­ nákvæmum hætti. Enda er það ekki hægt meðal annars vegna þess hversu iðinn Cheney var að tortíma mikilvægum skjölum um embættis­ færslur sínar. En þótt myndin sé ekki sagnfræðilega nákvæm þá segir hún samt mikilvægan sannleika sem ekki má gleymast. Cheney er einn af aðalhöfundum skáldskaparins sem leiddi til inn­ rásarinnar í Írak. Það er nefni­ lega engin seinni tíma skýring að innrásin hafi verið byggð á lygum. Það hefðu allir átt að geta séð; að minnsta kosti ef þeir voru sæmilega læsir á ensku og aðgang að alþjóð­ legum fjölmiðlum. Því er lýst vel í myndinni hvernig Cheney og félagar voru varla búnir að læra að stilla skrifstofustólana í Hvíta húsinu þegar búið var að draga upp kort af því hvernig skipta ætti olíulindum Íraks niður á amer­ ísku olíufyrirtækin. Og svo þegar svo óheppilega vildi til að ósóminn bin Laden reyndist vera náskyldur vinafólkinu í Sádi­Arabíu, en svarinn hatursmaður Saddams Hussein, þá var alls konar þvætt­ ingur framleiddur til að blekkja fólk til þess að trúa hinu gagnstæða. Og svo þegar algjörlega var ljóst að engin tengsl voru milli bin Ladens og Íraks, og engin gjöreyðingarvopn höfðu fundist—þá var samt hafist handa við undirbúning innrásar, með stuðningi bandalags hinna trú­ gjörnu þjóða. Þannig tókst Cheney að koma mörgu til leiðar. Meira en hálf millj­ ón borgara féll í Írak. Hann feðraði íslamska ríkið með því að gera ótíndan glæpahund að alþjóðlegri hryðjuverkastjörnu og setti þar að auki allt á annan endann í Írak með því að hafa enga vitræna áætlun um stjórn landsins eftir „frelsunina“. Þúsundum milljarða Bandaríkja­ dala var sólundað í stríðsreksturinn. En þrátt fyrir allar þessar óheppi­ legu afleiðingar, dauðsföll, lim­ lestingar, örkuml, fátækt og fleira þá má ekki gleyma að hluthafar Halliburton græddu á tá og fingri og hlýtur hamingja þeirra og vel­ megun að skipta einhverju máli líka í þessu samhengi. Góðar hliðar og vondar En vont fólk á sér líka góðar hliðar, alveg eins og gott fólk á sér slæmar hliðar. Dick Cheney er sýndur í myndinni sem ástkær fjölskyldu­ faðir sem ber einlæga og hreina ást til konu sinnar og dætra. Hann fórnar meira að segja pólitískum frama tímabundið til að vernda samkynhneigða dóttur sína frá kastljósi fjölmiðla—og sýnir henni algjöra hollustu og ást þegar hún greinir frá tilfinningum sínum. Þótt látið sé liggja að því að jafnvel þessi bönd hafi trosnað síðar, þá mega menn þó eiga það sem þeir eiga. Og ekki var Cheney að klæmast eða kássast upp á fólkið í kringum sig. Hann má eiga það líka—jah, nema ef við teljum með þau hundruð þúsunda sem fórust, örkumluðust og misstu börn sín og maka í lyga­ stríðunum hans. Þeim fannst hann kannski ekki vera neitt sérstaklega til fyrirmyndar. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 0 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 4 6 -1 D A C 2 2 4 6 -1 C 7 0 2 2 4 6 -1 B 3 4 2 2 4 6 -1 9 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.