Fréttablaðið - 08.02.2019, Síða 9
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
1
4
8
R
e
n
a
u
lt
C
li
o
5
x
2
0
f
e
b
www.renault.is
NÝR RENAULT CLIO
GÓÐUR FERÐAFÉLAGI
Renault Clio Verð frá: 2.650.000 kr.
Renault Clio
Verð frá: 2.550.000 kr.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
Það er frægt viðkvæði í bandarísku stjórnmálalífi að telja embætti varaforseta vera lítt
eftirsóknarvert. Þeir sem veljast í
embættið hafa takmörkuð formleg
völd, þurfa að beygja sig algjörlega
undir vilja og hagsmuni forsetans
og hafa gjarnan lítið meira að gera
heldur en varamarkmaður í fót
boltaliði, sem kemur aldrei til sögu
nema eitthvað hræðilegt hafi gerst.
Einn af valdameiri varaforsetum
síðustu aldar, John Nance Garner,
sem gegndi embættinu í forseta
tíð Roosevelt frá 1933 til 1941 er
sagður hafa lýst varaforsetaemb
ættinu þannig að það væri ekki
meira virði en fötufylli af volgu
hlandi eða hráka, heimildum ber
ekki saman.
Of vitlaus í hafnaboltann
Stundum hafa varaforsetarnir verið
fyrrverandi keppinautar þess sem
á endanum hreppir embættið,
þannig að á milli forsetans og vara
forsetans liggja ýmsar óuppgerðar
sakir og jafnvel kuldaleg fyrir
litning. Og eins er til í dæminu að
varaforsetaefni sé valið sem algjört
gluggaskraut, eins og var raunin
þegar George Bush hinn eldri gerði
Háttvís er hættulegur
fríðleikspiltinn Dan Quayle frá
Indiana að varaforsetaefni sínu til
þess að gera framboðið áferðar
fallegra og höfða til yfirborðs
kenndra kjósenda í sveitahéruðum
bandaríska miðvestursins. Þetta
pólitíska girndarráð reyndist dýr
keypt því Quayle var viðvarandi
aðhlátursefni fyrir klaufalega fram
göngu sína, hlægilegan þekkingar
skort og fádæma lélega kunnáttu í
stafsetningu.
Mörgum sem til þekktu fannst
George, sonur forsetans, ekki mikið
gáfulegri en varaforsetinn. Þegar
George W. reyndi að komast til
æðstu metorða innan bandarísku
hafnaboltadeildarinnar í krafti þess
að vera einn af eigendum Texas
Rangers, þótti hinum eigendunum
hugmyndin fjarstæðukennd. Allir
kunnu prýðilega vel við George W.
en engum datt í hug að hann hefði
skapgerð og vitsmuni sem hentuðu
til þess að takast á við hið ábyrgðar
mikla embætti forseta bandaríska
hafnaboltasambandsins.
Valdamaður til vara
En það kann að hafa verið gæfa
George W. að þekkja ágætlega sín
eigin takmörk. Þegar kom að því
að velja frambjóðanda í embætti
varaforseta fór hann því allt aðra
leið en pabbi. Það var nefnilega
engin fegurðarsamkeppni sem
skilaði Dick Cheney, þáverandi
forstjóra verktakafyrirtækisins
Halliburton, í embætti varaforseta
Bandaríkjanna. Cheney samþykkti
með semingi að bjóða sig fram með
drengnum en gegn því skilyrði að
fá að ráða sjálfur ýmsu sem fram að
því engan hefði órað fyrir að kæmi
nálægt valdsviði varaforsetans.
Þegar Bush yngri náði kjöri, með
5 atkvæðum gegn 4 í hæstarétti
Bandaríkjanna, varð Cheney því
að einum valdamesta manni heims
þótt fæstir kjósendur hafi í raun og
veru endilega ætlað að veita honum
slík völd, heldur talið að hann væri
bara til vara.
Nú er til sýningar kvikmyndin
Vice þar sem fjallað er um ævi þessa
manns sem er sannarlega mikill
áhrifavaldur í samtímanum þótt
hann kunni engin fegrunarráð,
húsþrifnaðaraðferðir eða myndist
sérstaklega vel í þröngum fötum.
Ó, nei. Cheney er áhrifavaldur af
gamla skólanum, maður sem beitir
áhrifum sínum til alvöru hluta, eins
og að gera sprengjuárásir en ekki
til þess að fá like á instasnappinu.
Nafn myndarinnar vísar auðvitað
til embættisheitisins, en það hefur
einnig merkinguna löstur. Og löstur
Cheneys er græðgin; nánar tiltekið
óseðjandi valdagræðgi, sem myndin
gerir engar tilraunir til þess að fegra.
Cheney „afrekaði“ margt í emb
ætti. Hann er maðurinn á bak
við innrásina í Írak, pynting
arnar í Abu Graib, njósnirnar gegn
almennum amerískum borgurum
og margt margt fleira sem hann
segist enn þann dag í dag vera alveg
springandi stoltur af.
Áhrifavaldur
Myndin er listaverk—það er að
segja, hún er ekki heimildarmynd
og gerir ekki tilraun til þess að
þykjast segja söguna með hár
nákvæmum hætti. Enda er það
ekki hægt meðal annars vegna þess
hversu iðinn Cheney var að tortíma
mikilvægum skjölum um embættis
færslur sínar. En þótt myndin sé
ekki sagnfræðilega nákvæm þá segir
hún samt mikilvægan sannleika
sem ekki má gleymast.
Cheney er einn af aðalhöfundum
skáldskaparins sem leiddi til inn
rásarinnar í Írak. Það er nefni
lega engin seinni tíma skýring að
innrásin hafi verið byggð á lygum.
Það hefðu allir átt að geta séð; að
minnsta kosti ef þeir voru sæmilega
læsir á ensku og aðgang að alþjóð
legum fjölmiðlum.
Því er lýst vel í myndinni hvernig
Cheney og félagar voru varla búnir
að læra að stilla skrifstofustólana
í Hvíta húsinu þegar búið var að
draga upp kort af því hvernig skipta
ætti olíulindum Íraks niður á amer
ísku olíufyrirtækin. Og svo þegar
svo óheppilega vildi til að ósóminn
bin Laden reyndist vera náskyldur
vinafólkinu í SádiArabíu, en
svarinn hatursmaður Saddams
Hussein, þá var alls konar þvætt
ingur framleiddur til að blekkja
fólk til þess að trúa hinu gagnstæða.
Og svo þegar algjörlega var ljóst að
engin tengsl voru milli bin Ladens
og Íraks, og engin gjöreyðingarvopn
höfðu fundist—þá var samt hafist
handa við undirbúning innrásar,
með stuðningi bandalags hinna trú
gjörnu þjóða.
Þannig tókst Cheney að koma
mörgu til leiðar. Meira en hálf millj
ón borgara féll í Írak. Hann feðraði
íslamska ríkið með því að gera
ótíndan glæpahund að alþjóðlegri
hryðjuverkastjörnu og setti þar að
auki allt á annan endann í Írak með
því að hafa enga vitræna áætlun um
stjórn landsins eftir „frelsunina“.
Þúsundum milljarða Bandaríkja
dala var sólundað í stríðsreksturinn.
En þrátt fyrir allar þessar óheppi
legu afleiðingar, dauðsföll, lim
lestingar, örkuml, fátækt og fleira
þá má ekki gleyma að hluthafar
Halliburton græddu á tá og fingri
og hlýtur hamingja þeirra og vel
megun að skipta einhverju máli líka
í þessu samhengi.
Góðar hliðar og vondar
En vont fólk á sér líka góðar hliðar,
alveg eins og gott fólk á sér slæmar
hliðar. Dick Cheney er sýndur í
myndinni sem ástkær fjölskyldu
faðir sem ber einlæga og hreina
ást til konu sinnar og dætra. Hann
fórnar meira að segja pólitískum
frama tímabundið til að vernda
samkynhneigða dóttur sína frá
kastljósi fjölmiðla—og sýnir henni
algjöra hollustu og ást þegar hún
greinir frá tilfinningum sínum. Þótt
látið sé liggja að því að jafnvel þessi
bönd hafi trosnað síðar, þá mega
menn þó eiga það sem þeir eiga.
Og ekki var Cheney að klæmast eða
kássast upp á fólkið í kringum sig.
Hann má eiga það líka—jah, nema
ef við teljum með þau hundruð
þúsunda sem fórust, örkumluðust
og misstu börn sín og maka í lyga
stríðunum hans. Þeim fannst hann
kannski ekki vera neitt sérstaklega
til fyrirmyndar.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
0
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
6
-1
D
A
C
2
2
4
6
-1
C
7
0
2
2
4
6
-1
B
3
4
2
2
4
6
-1
9
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K