Fréttablaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is s. 550 5725 | Sólveig Gísladóttir,
solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir,
brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Rúnar starfar hjá Thor’s Power Gym í Kópavogi sem er í eigu Hafþórs Júlíusar Björns-
sonar eða „Fjallsins“ eins og hann
er oft kallaður. Rúnar er ekkert
venjulegur kraftlyftingamaður því
hann er margfaldur meistari, hefur
unnið jafnt Íslandsmót, Evrópu-
mót sem heimsmeistaramót.
Rúnar hefur tekið þátt í keppnum
um allan heim og hefur náð gríðar-
lega góðum árangri. Hann hefur
stundað kraftlyftingar nær daglega
í ellefu ár og varð heimsmeistari í
Las Vegas á síðasta ári.
Rúnar hafði verið að sýna
nokkrum frægum útlendum kraft-
lyftingamönnum stöðina þegar
hann gaf sér tíma til að ræða við
okkur ásamt eiginkonu sinni,
Eyrúnu. Hún hefur stundað kraft-
lyftingar líka en hefur lagt þær á
hilluna í bili.
Tveir fyrir einn
Eyrún Telma og Rúnar gengu í
hjónaband í fyrra. Það var Dóri
DNA sem gaf þau saman þannig að
ekki var um hefðbundið kirkju-
brúðkaup að ræða. „Íslendingar
hafa það mjög gott og hafa allt til
alls. Þegar við hugsuðum um þetta
fyrir brúðkaupið og hvað okkur
langaði helst í í brúðargjöf var
svarið einfalt, efst á listanum hjá
okkur var barn. Við vorum búin
að reyna í fjögur ár án árangurs.
Glasafrjóvgun er dýr meðferð og
þess vegna báðum við gestina
að gefa okkur pening sem við
gætum notað í hana. Það kostar
næstum sex hundruð þúsund að
fara í glasafrjóvgun á Íslandi,“ segir
Rúnar og bætir við að það sé ekki
á allra færi að útvega þá upphæð.
„Nýlega var lögum breytt sem gerir
fólki algjörlega ómögulegt að fara
í þessa meðferð því hún er ekkert
niðurgreidd lengur. Okkur finnst
ömurlegt að sumir fái borgaða
læknisþjónustu en aðrir ekki. Á
öðrum Norðurlöndunum er þessi
meðferð niðurgreidd enda vilja
öll þjóðfélög hafa fólksfjölgun,“
segir Rúnar. „Við finnum fyrir reiði
og sorg hjá mörgu fólki sem hafði
ætlað sér í þessa meðferð en getur
það ekki núna,“ segja þau.
„Stærsta óskin okkar var að
stofna fjölskyldu og þess vegna
ákváðum við að biðja fólk frekar
um peninga en hluti. Draumur
okkar rættist með hjálp gestanna
og nú eigum við von á tveimur
drengjum í maí. Brúðargjöfin
virkaði því tvöfalt,“ segir Rúnar og
Eyrún bætir við að þetta hafi verið
svona tveir fyrir einn gjöf. Sem von
er eru þau ákaflega hamingjusöm
og hlakka mikið til að fá drengina í
heiminn. „Það kom skemmtilega á
óvart að þetta væru tvíburar,“ segir
hún. „Það eru spennandi tímar
fram undan og það verður nóg að
gera. Þetta verður góð breyting á
lífi okkar.“
Í jarðskjálfta á Balí
Rúnar og Eyrún Telma hafa verið
saman í fimm ár. „Ég lagðist á hnén
og bað hennar fyrir tveimur árum.
Hún hefur alltaf stutt mig í því sem
ég er að gera, bæði kraftlyftingum
og tónlistinni, jafnvel þótt þetta
tvennt taki mikinn tíma. Maður
lætur slíka konu ekki sleppa frá
sér,“ segir Rúnar glettinn en hann
hefur sungið með hljómsveitinni
Endless Dark sem flytur þunga-
rokk.
„Brúðkaupið var í okkar anda,
engin kirkja, enginn prestur heldur
bara góður matur og skemmti-
legt partí. Gestir voru um 150 en
við þurftum að skera þá niður
um helming. Við vorum komin
með yfir þrjú hundruð manns á
gestalistann þegar við sáum að
við yrðum að skera niður,“ segja
þau. „Við eigum marga góða að og
stórar fjölskyldur. Brúðkaupsveisl-
an tókst einstaklega vel en síðan
héldum við til Katar og þaðan til
Balí þar sem við áttum yndislega
daga fyrir utan jarðskjálftann
sem við lentum í. Það kom risa-
skjálfti upp á rúm 7 stig og það var
skelfileg upplifun. Við ætluðum
að eiga rólega daga og undirbúa
okkur fyrir væntanlega meðferð.
Jarðskjálftinn var sannarlega ekki
hluti af því,“ segir Eyrún enda kom
flóðviðvörun í framhaldi skjálft-
ans. „Þetta var í fyrsta skipti sem
maður óttaðist um líf sitt,“ segir
kraftlyftingamaðurinn sem kallar
nú ekki allt ömmu sína. „Um fimm
hundruð manns létust í skjálft-
anum ekki langt frá þeim stað þar
sem við vorum. Þetta var hræðileg
upplifun,“ segja þau bæði. „Balí er
paradís og það breytti okkur and-
lega að upplifa þennan stað. Það
hefðu allir Íslendingar gott af því
að kynnast lífinu þarna. Fólkið er
nægjusamt og kvartar ekki.“
Húðflúr er list
Þau hjón er skreytt með miklu
húðflúri. Rúnar fékk sitt fyrsta
þegar hann var átján ára og síðan
hefur hann ekki stoppað. „Mamma
leyfði mér ekki að fá húðflúr fyrr
en ég var orðinn átján. Nú er allur
líkaminn þakinn,“ segir hann. „Ég
byrjaði á því að þekja annan hand-
legginn hjá Bleksmiðjunni. Síðan
rak ég þá stofu í nokkur ár og þá
voru hæg heimatökin.“
Þegar Rúnar er spurður hvort
ekki hafi verið sárt að húðflúra
höfuðið, svarar hann: „Það var eitt
af því versta sem ég hef upplifað,“
og viðurkennir að útlit hans sé
oft misskilið meðal fólks. „Ég hef
aldrei á ævinni prófað vímuefni,
áfengi eða tóbak en fólk heldur
oft að ég sé einhver krimmi og
er skíthrætt við mig. Ég þarf því
að upplifa mikla fordóma,“ segir
hann. „Það eru margir hræðilegir
hlutir sem fólk hefur sagt við mig,“
bætir hann við. „Einn sagði til
dæmis að ég ætti allt illt skilið fyrir
að eyðileggja sköpunarverk Guðs
og ætti skilið að fá húðkrabba og
drepast.“
Eyrún Telma sem er stuðnings-
fulltrúi fékk líka sitt fyrsta tattú
þegar hún var átján ára. Þau
þekktust ekki þá. „Þegar Rúnar
var með Bleksmiðjuna var auðvelt
aðgengi að fá sér meira en ég er í
hléi núna á meðgöngunni þótt mig
langi í meira. Ég á svoldið langt í
Rúnar en er talsvert þakin líka,“
segir hún. „Húðflúrið er list, rétt
eins og sumir kaupa málverk,“
segir Rúnar. „Mér finnst þetta ákaf-
lega falleg list.“
Litlir heimsborgarar
Rúnar er alinn upp í Grundarfirði.
„Ég hefði ekki viljað alast upp
annars staðar. Það var mjög gott
að vera í litlu sveitarfélagi. Maður
prófaði allt mögulegt, ég vann í
fiski, fór á sjó og vann við smíðar.“
Eyrún er alin upp í borginni. Núna
hlakka þau mikið til að verða
foreldrar. Þau eru byrjuð
að undirbúa komu
drengjanna enda er
það dýrt að eignast tvö í einu. „Það
er spenna og tilhlökkun í fjölskyld-
unni,“ segja þau.
Ferðalög eru áhugamál þeirra og
Eyrún segir að þau ætli ekki að láta
börnin stoppa sig. „Við munum
gera þá að heimsborgurum. Við
gætum til dæmis vel hugsað okkur
að fara aftur til Asíu.“ Rúnar hefur
keppt víða um heim í kraftlyfting-
um en hann hefur einnig ferðast
með hljómsveitinni sinni. Hún
hefur spilað víða. Hljómsveitin er
hins vegar að hætta og verður með
lokatónleika í apríl.
Ræða þarf ófrjósemi
Ófrjósemi er þeim ofarlega í
huga og Rúnar segist vonast til
að umræðan eigi eftir að opnast
meira um hana. „Við vorum opin
með okkar ferli. Ég ræddi með-
ferðina á Facebook og fékk gríðar-
lega sterk og góð viðbrögð. Margir
hafa leitað til mín um upplýsingar
og ráðgjöf sem mér þykir óendan-
lega vænt um,“ segir Eyrún og
Rúnar bætir við að ófrjósemi ætti
að ræða miklu meira á opinberum
vettvangi. „Þetta er ekkert til að
skammast sín fyrir.
Ófrjósemi er
algengt vanda-
mál.“
Eins og sjá má á
þessari mynd er
Rúnar með allt
höfuðið húð-
flúrað. Hann
segir að það hafi
verið hrika-
lega vont að fá
tattúið þar. Annars
hefur Rúnar orðið
fyrir miklum for-
dómum vegna
húðflúrsins. Þessi
mynd var tekin á
brúðkaupsdaginn
í ágúst 2018.
Framhald af forsíðu ➛
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Ég lagðist á hnén
og bað hennar
fyrir tveimur árum. Hún
hefur alltaf stutt mig í
því sem ég er að gera,
bæði kraftlyftingum og
tónlistinni, jafnvel þótt
þetta tvennt taki mik-
inn tíma. Maður lætur
slíka konu ekki sleppa
frá sér.
Rúnar er margfaldur
meistari í kraft-
lyftingum. Nú eiga
þau hjónin von á
tvíburum í maí.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
0
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
6
-2
7
8
C
2
2
4
6
-2
6
5
0
2
2
4
6
-2
5
1
4
2
2
4
6
-2
3
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K