Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.02.2019, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 08.02.2019, Qupperneq 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is s. 550 5725 | Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Rúnar starfar hjá Thor’s Power Gym í Kópavogi sem er í eigu Hafþórs Júlíusar Björns- sonar eða „Fjallsins“ eins og hann er oft kallaður. Rúnar er ekkert venjulegur kraftlyftingamaður því hann er margfaldur meistari, hefur unnið jafnt Íslandsmót, Evrópu- mót sem heimsmeistaramót. Rúnar hefur tekið þátt í keppnum um allan heim og hefur náð gríðar- lega góðum árangri. Hann hefur stundað kraftlyftingar nær daglega í ellefu ár og varð heimsmeistari í Las Vegas á síðasta ári. Rúnar hafði verið að sýna nokkrum frægum útlendum kraft- lyftingamönnum stöðina þegar hann gaf sér tíma til að ræða við okkur ásamt eiginkonu sinni, Eyrúnu. Hún hefur stundað kraft- lyftingar líka en hefur lagt þær á hilluna í bili. Tveir fyrir einn Eyrún Telma og Rúnar gengu í hjónaband í fyrra. Það var Dóri DNA sem gaf þau saman þannig að ekki var um hefðbundið kirkju- brúðkaup að ræða. „Íslendingar hafa það mjög gott og hafa allt til alls. Þegar við hugsuðum um þetta fyrir brúðkaupið og hvað okkur langaði helst í í brúðargjöf var svarið einfalt, efst á listanum hjá okkur var barn. Við vorum búin að reyna í fjögur ár án árangurs. Glasafrjóvgun er dýr meðferð og þess vegna báðum við gestina að gefa okkur pening sem við gætum notað í hana. Það kostar næstum sex hundruð þúsund að fara í glasafrjóvgun á Íslandi,“ segir Rúnar og bætir við að það sé ekki á allra færi að útvega þá upphæð. „Nýlega var lögum breytt sem gerir fólki algjörlega ómögulegt að fara í þessa meðferð því hún er ekkert niðurgreidd lengur. Okkur finnst ömurlegt að sumir fái borgaða læknisþjónustu en aðrir ekki. Á öðrum Norðurlöndunum er þessi meðferð niðurgreidd enda vilja öll þjóðfélög hafa fólksfjölgun,“ segir Rúnar. „Við finnum fyrir reiði og sorg hjá mörgu fólki sem hafði ætlað sér í þessa meðferð en getur það ekki núna,“ segja þau. „Stærsta óskin okkar var að stofna fjölskyldu og þess vegna ákváðum við að biðja fólk frekar um peninga en hluti. Draumur okkar rættist með hjálp gestanna og nú eigum við von á tveimur drengjum í maí. Brúðargjöfin virkaði því tvöfalt,“ segir Rúnar og Eyrún bætir við að þetta hafi verið svona tveir fyrir einn gjöf. Sem von er eru þau ákaflega hamingjusöm og hlakka mikið til að fá drengina í heiminn. „Það kom skemmtilega á óvart að þetta væru tvíburar,“ segir hún. „Það eru spennandi tímar fram undan og það verður nóg að gera. Þetta verður góð breyting á lífi okkar.“ Í jarðskjálfta á Balí Rúnar og Eyrún Telma hafa verið saman í fimm ár. „Ég lagðist á hnén og bað hennar fyrir tveimur árum. Hún hefur alltaf stutt mig í því sem ég er að gera, bæði kraftlyftingum og tónlistinni, jafnvel þótt þetta tvennt taki mikinn tíma. Maður lætur slíka konu ekki sleppa frá sér,“ segir Rúnar glettinn en hann hefur sungið með hljómsveitinni Endless Dark sem flytur þunga- rokk. „Brúðkaupið var í okkar anda, engin kirkja, enginn prestur heldur bara góður matur og skemmti- legt partí. Gestir voru um 150 en við þurftum að skera þá niður um helming. Við vorum komin með yfir þrjú hundruð manns á gestalistann þegar við sáum að við yrðum að skera niður,“ segja þau. „Við eigum marga góða að og stórar fjölskyldur. Brúðkaupsveisl- an tókst einstaklega vel en síðan héldum við til Katar og þaðan til Balí þar sem við áttum yndislega daga fyrir utan jarðskjálftann sem við lentum í. Það kom risa- skjálfti upp á rúm 7 stig og það var skelfileg upplifun. Við ætluðum að eiga rólega daga og undirbúa okkur fyrir væntanlega meðferð. Jarðskjálftinn var sannarlega ekki hluti af því,“ segir Eyrún enda kom flóðviðvörun í framhaldi skjálft- ans. „Þetta var í fyrsta skipti sem maður óttaðist um líf sitt,“ segir kraftlyftingamaðurinn sem kallar nú ekki allt ömmu sína. „Um fimm hundruð manns létust í skjálft- anum ekki langt frá þeim stað þar sem við vorum. Þetta var hræðileg upplifun,“ segja þau bæði. „Balí er paradís og það breytti okkur and- lega að upplifa þennan stað. Það hefðu allir Íslendingar gott af því að kynnast lífinu þarna. Fólkið er nægjusamt og kvartar ekki.“ Húðflúr er list Þau hjón er skreytt með miklu húðflúri. Rúnar fékk sitt fyrsta þegar hann var átján ára og síðan hefur hann ekki stoppað. „Mamma leyfði mér ekki að fá húðflúr fyrr en ég var orðinn átján. Nú er allur líkaminn þakinn,“ segir hann. „Ég byrjaði á því að þekja annan hand- legginn hjá Bleksmiðjunni. Síðan rak ég þá stofu í nokkur ár og þá voru hæg heimatökin.“ Þegar Rúnar er spurður hvort ekki hafi verið sárt að húðflúra höfuðið, svarar hann: „Það var eitt af því versta sem ég hef upplifað,“ og viðurkennir að útlit hans sé oft misskilið meðal fólks. „Ég hef aldrei á ævinni prófað vímuefni, áfengi eða tóbak en fólk heldur oft að ég sé einhver krimmi og er skíthrætt við mig. Ég þarf því að upplifa mikla fordóma,“ segir hann. „Það eru margir hræðilegir hlutir sem fólk hefur sagt við mig,“ bætir hann við. „Einn sagði til dæmis að ég ætti allt illt skilið fyrir að eyðileggja sköpunarverk Guðs og ætti skilið að fá húðkrabba og drepast.“ Eyrún Telma sem er stuðnings- fulltrúi fékk líka sitt fyrsta tattú þegar hún var átján ára. Þau þekktust ekki þá. „Þegar Rúnar var með Bleksmiðjuna var auðvelt aðgengi að fá sér meira en ég er í hléi núna á meðgöngunni þótt mig langi í meira. Ég á svoldið langt í Rúnar en er talsvert þakin líka,“ segir hún. „Húðflúrið er list, rétt eins og sumir kaupa málverk,“ segir Rúnar. „Mér finnst þetta ákaf- lega falleg list.“ Litlir heimsborgarar Rúnar er alinn upp í Grundarfirði. „Ég hefði ekki viljað alast upp annars staðar. Það var mjög gott að vera í litlu sveitarfélagi. Maður prófaði allt mögulegt, ég vann í fiski, fór á sjó og vann við smíðar.“ Eyrún er alin upp í borginni. Núna hlakka þau mikið til að verða foreldrar. Þau eru byrjuð að undirbúa komu drengjanna enda er það dýrt að eignast tvö í einu. „Það er spenna og tilhlökkun í fjölskyld- unni,“ segja þau. Ferðalög eru áhugamál þeirra og Eyrún segir að þau ætli ekki að láta börnin stoppa sig. „Við munum gera þá að heimsborgurum. Við gætum til dæmis vel hugsað okkur að fara aftur til Asíu.“ Rúnar hefur keppt víða um heim í kraftlyfting- um en hann hefur einnig ferðast með hljómsveitinni sinni. Hún hefur spilað víða. Hljómsveitin er hins vegar að hætta og verður með lokatónleika í apríl. Ræða þarf ófrjósemi Ófrjósemi er þeim ofarlega í huga og Rúnar segist vonast til að umræðan eigi eftir að opnast meira um hana. „Við vorum opin með okkar ferli. Ég ræddi með- ferðina á Facebook og fékk gríðar- lega sterk og góð viðbrögð. Margir hafa leitað til mín um upplýsingar og ráðgjöf sem mér þykir óendan- lega vænt um,“ segir Eyrún og Rúnar bætir við að ófrjósemi ætti að ræða miklu meira á opinberum vettvangi. „Þetta er ekkert til að skammast sín fyrir. Ófrjósemi er algengt vanda- mál.“ Eins og sjá má á þessari mynd er Rúnar með allt höfuðið húð- flúrað. Hann segir að það hafi verið hrika- lega vont að fá tattúið þar. Annars hefur Rúnar orðið fyrir miklum for- dómum vegna húðflúrsins. Þessi mynd var tekin á brúðkaupsdaginn í ágúst 2018. Framhald af forsíðu ➛ Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Ég lagðist á hnén og bað hennar fyrir tveimur árum. Hún hefur alltaf stutt mig í því sem ég er að gera, bæði kraftlyftingum og tónlistinni, jafnvel þótt þetta tvennt taki mik- inn tíma. Maður lætur slíka konu ekki sleppa frá sér. Rúnar er margfaldur meistari í kraft- lyftingum. Nú eiga þau hjónin von á tvíburum í maí. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 0 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 6 -2 7 8 C 2 2 4 6 -2 6 5 0 2 2 4 6 -2 5 1 4 2 2 4 6 -2 3 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.