Fréttablaðið - 08.02.2019, Side 22

Fréttablaðið - 08.02.2019, Side 22
Þegar barn fer að segja sín fyrstu orð er mikilvægt hvernig talað er við það. Foreldrar ættu að tala skýrt og gott mál við börn sín. Rann- sóknir sýna að því meira sem talað er við og lesið fyrir börn því meiri orðaforða hafa þau. Tinna Sigurðardóttir, tal-meinafræðingur og fram-kvæmdastjóri Tröppu, er framkvæmdastjóri Félags tal- meinafræðinga á Íslandi. Hún er auk þess stofnandi málþroska- hópsins Babbl og spjall á FB og fjögurra barna móðir og stjúpa. Hún segir að það skipti miklu máli að tala skýrt og greinilega við börn frá fæðingu. „Foreldrum er eðlislægt að tala við ungbörn á svokölluðu „mother ese“ eða „fatherese“ þar sem við tjúnum röddina svolítið upp og kjáum nánast syngjandi röddu framan í barnið. Það er mikilvægt að byrja strax að hafa samskipti, nota röddina blíðlega og tala til barnsins, mynda gott augnsamband og gefa barninu til kynna að þú sért hjá því. Margir vita kannski ekki hvað þeir ættu að segja við ómálga barn, en það má bara spjalla við það og ímynda sér hvað barnið myndi segja ef það kynni að tala. Lýsa því sem maður er að gera, segja barninu hverjir séu hjá því, syngja vísur og svo framvegis,“ útskýrir Tinna. Barnamál á stundum við Hún segir það ekki alslæmt að tala barnamál. „Það er eðlilegt að tala um dýrin til dæmis með því að nefna hvað þau segja (bíbí, mumu o.s.frv). Þetta gerum við til einföldunar þegar barnið er að byrja að tala, meðal annars vegna þess að dýrahljóðin innibera hljóð sem koma snemma hjá börnum. Ung börn eru líklegri til að geta myndað „bíbí“ heldur en t.d. „fugl“ á 1. og 2. ári. Það er svo gott að kenna barninu samhliða „alvöru“ orðin fyrir þá hluti sem það er að ræða, þótt við styðjumst líka við barnamál barnsins. Dæmi: Barn segir bíbí og skoðar mynd af fugli. Já, þetta er bíbí, svörum við, þetta er fuglinn sem segir bíbí.“ Þegar Tinna er spurð hvort það geti haft áhrif á orðaforða barnsins og góða tilfinningu fyrir málinu hvernig talað er við það, svarar hún því játandi. „Rannsóknir sýna að því meira sem talað er við og lesið fyrir börn því meiri orðaforða hafa þau. Það segir sig kannski svolítið sjálft að börn sem lítið er talað við heyra minna mál og þar af leiðandi færri orð og það getur haft afleiðingar. Rannsóknir sýna einnig að raddblær hefur áhrif á það hvernig mjög ungum börnum gengur að læra orð. Það má segja að við séum með meðfæddan hæfileika til að læra að tala og sýnt hefur verið fram á að börn tengja mannsröddina frekar við andlit heldur en dýr aðeins nokkurra daga gömul! Löngu áður en barnið byrjar að tala sjálft er það farið að safna orðum í minnið sitt og búa sér til orðasafn sem það tengir smátt og smátt þekkingu sinni á heiminum. Auðvitað gengur þessi þroski betur ef örvun og ílag er mikið og í góðum gæðum. Þar koma samskipti foreldra/full- orðinna og barna sterk inn. Að lesa fyrir börn, syngja og kenna þeim og fara með vísur hefur jákvæð áhrif á allan málþroska og sérstaklega hljóðkerfisvitundina. Orðaforðinn hefur svo áhrif á les- skilninginn seinna meir. Aðferð sem hefur sýnt sig að hefur góð áhrif á málþroska er að endurtaka rétt það sem barnið segir og bæta við og lengja setningar barnsins. Dæmi: Þegar barn segir: Kubba turn – þá er gott að svara: Já, ertu að kubba svona fínan turn? Þetta er stór og flottur turn hjá þér. Og þannig er viðkomandi bæði búinn að endurtaka það sem barnið segir og útvíkka mál barnsins með því að bæta við setninguna. Ekki spyrja of mikið Mér finnst of mikið um það að fólk sé að spyrja börn mikið og biðja þau um að segja hitt og þetta. Lítil börn sem eru rétt að byrja að tala, tala ekki strax eins og fullorðnar manneskjur. Þau hafa ekki enn náð tökum á öllum hljóðunum, vantar orð inn í setningar og eru heldur ekki búin að ná tökum á málfræðinni. Þá eru þau heldur alls ekki með félagsleg samskipti á hreinu, hvenær á t.d. að heilsa eða kveðja. Það er mikilvægt að við setjum ekki of mikla pressu á börn að tala, sérstaklega ekki ef þau eru sein til máls, en búum til tækifæri þar sem þau geta æft sig að tala án þess að upplifa pressu. Við ættum frekar að vera góðar fyrirmyndir, sýna börnunum og gera með þeim, Tengsl máls og læsis sterk fremur en að stilla þeim upp þar sem þau eiga að gera. Börn eru viðkvæm og það þarf að vera nær- gætinn í samskiptum við þau.“ Fyrsta málkennsla hefur áhrif á læsi Getur málkennsla á fyrstu árum haft áhrif á lestrarnám barnsins síðar? „Tengsl máls og læsis eru sterk og margvísleg. Orðaforði hefur áhrif á lesskilning og þannig kemur sér vel að hafa góðan orðaforða. Þá er hljóðkerfisvitundin grund- vallarþáttur í lestrarnámi en það er hæfileikinn til að t.d. klappa orð í atkvæði, finna fyrsta og síðasta hljóð í orði, setja saman orð og taka þau í sundur (t.d. Skóla-taska, skrif-borð), átta sig á því að setn- ingar eru byggðar upp af orðum og orð af stöfum og síðast en ekki síst að stafirnir eiga sér mismunandi hljóð. Taktur hefur líka sitt að segja og það að syngja, ríma og æfa sig að bulla eru líka góðir undir- stöðuþættir máls og læsis. Það er gríðarlega mikilvægt að lesa fyrir börn. Það að hafa bækur sýni- legar í umhverfinu, umgangast sjálfur bækur og lesa sjálfur svo barnið sjái eru líka mikilvægir þættir fyrir farsælt lestrarnám. Það má lesa fyrir börn niður í 3-4ra mánaða aldur, bækur með skýrum myndum og e.t.v. stuttum texta. Benda á myndirnar og segja hvað er á þeim og sýna barninu. Lesið fyrir börnin Flest börn eru mjög spennt fyrir bókum frá unga aldri, finnst gaman að skoða og fletta. Seinna fá börn oft sjálfsprottinn áhuga á stöf- unum og þá á að nýta tækifærið þegar lesið er og íhuga hvernig stafirnir líta út og ekki síst hvaða hljóð þeir mynda. Hver á hvaða staf í fjölskyldunni og svo fram- vegis. Það er ákjósanlegast að hafa lestrarstundina að föstum lið, og hún þarf ekkert endilega alltaf að vera rétt fyrir svefninn. Mikilvægt er að hún sé notaleg stund og það þarf ekki alltaf að lesa einfaldar bækur frá orði til orðs heldur nýta bókina til að eiga samskipti við barnið, spjalla um það sem er á myndunum og fá barnið til að tjá sig. Þegar sama bókin hefur verið lesin margoft má svo bjóða barninu að „lesa“ hana fyrir sig líka til tilbreytingar. Bókasöfn er góður kostur Stundum er barn seint til máls af meðfæddum orsökum, t.d. vegna þroskaraskana eða slíks eða þá að barnið hefur orðið mikið veikt eða upplifað mikið álag í frumbernsku. Þá er hægt að vera með mál- þroskaröskun sem lýsir sér þannig að barnið er seint að tala og á erfitt með að tileinka sér mál á dæmi- gerðan hátt. Rannsóknir hafa sýnt fram á að börn sem búa við bágar félagslegar aðstæður eru í áhættu hvað varðar málþroskann og eru líklegri til að mælast með slakan málþroska. Því ættu allir foreldrar að fá stuðning við að sinna mál- þroskanum vel óháð stétt og stöðu því þetta er gríðarlega mikilvægt og getur skipt miklu upp á alla námsframvindu seinna meir og hefur eins og fyrr segir sterk tengsl við læsi. Að örva málþroska getur verið verndandi þáttur og því ættu foreldrar að kappkosta að eiga jákvæð samskipti við börnin, tala mikið við þau, hlusta á þau líka, útskýra og skoða bækur saman. Bókasöfnin eru frábær kostur, börn geta fengið ókeypis bóka- safnskort til 18 ára og aðstaða fyrir börn er víðast mjög skemmtileg á bókasöfnum,“ upplýsir Tinna. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Tinna Sigurðardóttir, talmeinafræð- ingur hjá Tröppu. Það er gríðarlega mikilvægt að lesa fyrir börn. Það að hafa bækur sýnilegar í umhverfinu, umgang- ast sjálfur bækur og lesa sjálfur svo barnið sjái eru líka mikilvægir þættir fyrir farsælt lestrarnám. 6 KYNNINGARBLAÐ 8 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRSTU SKREFIN 0 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 4 6 -2 7 8 C 2 2 4 6 -2 6 5 0 2 2 4 6 -2 5 1 4 2 2 4 6 -2 3 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.