Fréttablaðið - 08.02.2019, Side 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Kolbrún Björnsdóttir sagði skilið við fjöl-miðla árið 2014 og fór að starfa í hjóla-versluninni Kríu. „Sumum brá mjög á
meðan öðrum fannst það frábært.
Ég hafði byrjað að hjóla nokkrum
mánuðum áður og féll gjörsamlega
fyrir sportinu, enda fyrsta hreyf-
ingin sem mér þótti í alvörunni
skemmtileg. Ég var svo sem búin að
freista þess að hætta í fjölmiðlum
áður eins og margir aðrir. Fjölmiðla-
starf getur verið mjög skemmtilegt
en það getur líka verið þreytandi,
eins og öll önnur störf. Ætli það hafi
ekki bara verið kominn tími á breyt-
ingar. Það kom þó ekki til af góðu
að ég hætti í Kríu. Ég lenti í leiðinda
hjólaslysi sem gerði mig óvinnufæra
í nokkuð langan tíma og ég sá fram á
að ég yrði að færa mig á önnur mið.“
Kolla, eins og hún er oftast köll-
uð, lagði hjólið tilneydd á hilluna
og ákvað að leggja meiri áherslu á
fjallgöngur. „Þegar maður gengur á
fjöll og nýtur þess að vera úti í nátt-
úrunni þá er gaman að vita aðeins
meira um landið. Ég skráði mig því
í leiðsögunám hjá Endurmenntun
HÍ og kláraði það nám árið 2017 og
er nú leiðsögumaður í hjáverkum
hjá Vilborgu Örnu í Tindum Travel.
Það er skemmtilegt og gefandi að
fylgja fólki á fjöll, bæði hér heima
og í Nepal og ég held því vonandi
áfram.“
Botninn að fá harðsperrur
við að hnoða deig
Kolla hefur þó ekki alltaf verið
hlaupandi og hjólandi um fjöll
og firnindi og hefði verið flokk-
uð sem kyrrsetumanneskja fyrir
nokkrum árum. Útivistina segir
hún hafa breytt öllu í lífi sínu.
„Útivistin gefur mér mjög mikið
andlega, ég segi til dæmis oft að
góð fjallganga jafnist á við tvo
til þrjá sálfræðitíma. Og ég hef
aldrei verið hraustari líkamlega.
Ég er týpan sem fékk eitt sinn
grínlaust harðsperrur af því að
hnoða deig. Það var ákveðinn
botn í lífi mínu,“ segir hún og
hlær. „En í alvöru, ég get ekki lýst
því hversu þakklát ég er fyrir að
hafa ratað úr sófanum.“
Kolla segir útivistina ganga
fyrir og hún sé þakklát mann-
inum sínum fyrir þolinmæðina
þegar hún stingur af á kvöldin
og um helgar. „Ég giska á að það
gleðji hann að sjá mig svona
glaða og hann kvarti því ekkert
yfir fjarvistum mínum. Annars
er ég mikið heima við og vinn
þaðan. Vinkonusamböndin næ
ég mest að rækta í útivistinni þar
sem þær eru flestar líka haldnar
sömu bakteríu og ég. Það ein-
faldar helling.“
Eins og fyrr segir tók Kolla á
dögunum við sem framkvæmda-
stjóri Lífs, styrktarfélags kvenna-
deildar Landspítalans. „Ég þurfti
varla að hugsa mig um þegar mér
bauðst að starfa með þeim. Þetta
er fallegt félag sem sinnir mikil-
vægum verkefnum og rímar mjög
við það sem ég stend fyrir í lífinu.
Ég lít á það sem heiður að vera
treyst fyrir þessu verkefni. Líf
skiptir miklu máli og ég vona svo
Þakklát fyrir að hafa
ratað úr sófanum
Kolbrún Björnsdóttir fékk óbilandi áhuga á útivist og hreyfingu
fyrir nokkrum árum. Hún sagði þá einnig skilið við fjölmiðlastarfið
og tók nýverið við sem framkvæmdastjóri Lífs, styrktarfélags.
Kolla segir eina fjallgöngu jafnast á við nokkra sálfræðitíma. Hér er hún á leið
upp í grunnbúðir Everest og á bak við hana má sjá glitta í sjálfan Everest-tind.
Kolla ásamt vinkonum sínum Friðriku
Hjördísi og Erlu Sylvíu á leið á Esjuna.
Kolla, Nima og Dendi á leið í Anna-
purna Base Camp í Nepal.
sannarlega að ég fái enn fleiri með
okkur í lið til að efla félagið og þar
með kvennadeildina.
Líf fagnar tíu ára afmæli á árinu
og því er tilvalið að nýta það til að
gera okkur enn breiðari, láta aðeins
meira fyrir okkur fara og fá fleiri
landsmenn til að styðja við bakið
á okkur og kvennadeildinni. Ég sé
því fyrir mér að Lífsfélögum fjölgi
á afmælisárinu og það væri gaman
að hleypa landsmönnum örlítið inn
fyrir dyr deildarinnar með ýmsum
fróðleik sem fæst okkar eru að velta
fyrir sér dags daglega. Umfram allt
þá ætlum við að gera þetta ár eins
skemmtilegt og við getum og von-
andi fá sem flesta með okkur. Má
ég nota síðustu mínútuna til að
óska eftir hlaupurum til að hlaupa
fyrir Líf í Reykjavíkurmaraþon-
inu?“ laumar hún inn að lokum.
bjork@frettabladid.is
ÉG ER TÝPAN SEM
FÉKK EITT SINN
GRÍNLAUST HARÐSPERRUR AF
ÞVÍ AÐ HNOÐA DEIG. ÞAÐ VAR
ÁKVEÐINN BOTN Í LÍFI MÍNU.
Job.is
Þú finnur
draumastarfið á
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Kennsla
Þú finnur draumastarfið á
Iðnaðarmenn
Þú finnur draumastarfið á
Heilbrigðisþjónusta
Veitingastaðir
8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
6
-2
C
7
C
2
2
4
6
-2
B
4
0
2
2
4
6
-2
A
0
4
2
2
4
6
-2
8
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K