Fréttablaðið - 08.02.2019, Page 36

Fréttablaðið - 08.02.2019, Page 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Kolbrún Björnsdóttir sagði skilið við fjöl-miðla árið 2014 og fór að starfa í hjóla-versluninni Kríu. „Sumum brá mjög á meðan öðrum fannst það frábært. Ég hafði byrjað að hjóla nokkrum mánuðum áður og féll gjörsamlega fyrir sportinu, enda fyrsta hreyf- ingin sem mér þótti í alvörunni skemmtileg. Ég var svo sem búin að freista þess að hætta í fjölmiðlum áður eins og margir aðrir. Fjölmiðla- starf getur verið mjög skemmtilegt en það getur líka verið þreytandi, eins og öll önnur störf. Ætli það hafi ekki bara verið kominn tími á breyt- ingar. Það kom þó ekki til af góðu að ég hætti í Kríu. Ég lenti í leiðinda hjólaslysi sem gerði mig óvinnufæra í nokkuð langan tíma og ég sá fram á að ég yrði að færa mig á önnur mið.“ Kolla, eins og hún er oftast köll- uð, lagði hjólið tilneydd á hilluna og ákvað að leggja meiri áherslu á fjallgöngur. „Þegar maður gengur á fjöll og nýtur þess að vera úti í nátt- úrunni þá er gaman að vita aðeins meira um landið. Ég skráði mig því í leiðsögunám hjá Endurmenntun HÍ og kláraði það nám árið 2017 og er nú leiðsögumaður í hjáverkum hjá Vilborgu Örnu í Tindum Travel. Það er skemmtilegt og gefandi að fylgja fólki á fjöll, bæði hér heima og í Nepal og ég held því vonandi áfram.“ Botninn að fá harðsperrur við að hnoða deig Kolla hefur þó ekki alltaf verið hlaupandi og hjólandi um fjöll og firnindi og hefði verið flokk- uð sem kyrrsetumanneskja fyrir nokkrum árum. Útivistina segir hún hafa breytt öllu í lífi sínu. „Útivistin gefur mér mjög mikið andlega, ég segi til dæmis oft að góð fjallganga jafnist á við tvo til þrjá sálfræðitíma. Og ég hef aldrei verið hraustari líkamlega. Ég er týpan sem fékk eitt sinn grínlaust harðsperrur af því að hnoða deig. Það var ákveðinn botn í lífi mínu,“ segir hún og hlær. „En í alvöru, ég get ekki lýst því hversu þakklát ég er fyrir að hafa ratað úr sófanum.“ Kolla segir útivistina ganga fyrir og hún sé þakklát mann- inum sínum fyrir þolinmæðina þegar hún stingur af á kvöldin og um helgar. „Ég giska á að það gleðji hann að sjá mig svona glaða og hann kvarti því ekkert yfir fjarvistum mínum. Annars er ég mikið heima við og vinn þaðan. Vinkonusamböndin næ ég mest að rækta í útivistinni þar sem þær eru flestar líka haldnar sömu bakteríu og ég. Það ein- faldar helling.“ Eins og fyrr segir tók Kolla á dögunum við sem framkvæmda- stjóri Lífs, styrktarfélags kvenna- deildar Landspítalans. „Ég þurfti varla að hugsa mig um þegar mér bauðst að starfa með þeim. Þetta er fallegt félag sem sinnir mikil- vægum verkefnum og rímar mjög við það sem ég stend fyrir í lífinu. Ég lít á það sem heiður að vera treyst fyrir þessu verkefni. Líf skiptir miklu máli og ég vona svo Þakklát fyrir að hafa ratað úr sófanum Kolbrún Björnsdóttir fékk óbilandi áhuga á útivist og hreyfingu fyrir nokkrum árum. Hún sagði þá einnig skilið við fjölmiðlastarfið og tók nýverið við sem framkvæmdastjóri Lífs, styrktarfélags. Kolla segir eina fjallgöngu jafnast á við nokkra sálfræðitíma. Hér er hún á leið upp í grunnbúðir Everest og á bak við hana má sjá glitta í sjálfan Everest-tind. Kolla ásamt vinkonum sínum Friðriku Hjördísi og Erlu Sylvíu á leið á Esjuna. Kolla, Nima og Dendi á leið í Anna- purna Base Camp í Nepal. sannarlega að ég fái enn fleiri með okkur í lið til að efla félagið og þar með kvennadeildina. Líf fagnar tíu ára afmæli á árinu og því er tilvalið að nýta það til að gera okkur enn breiðari, láta aðeins meira fyrir okkur fara og fá fleiri landsmenn til að styðja við bakið á okkur og kvennadeildinni. Ég sé því fyrir mér að Lífsfélögum fjölgi á afmælisárinu og það væri gaman að hleypa landsmönnum örlítið inn fyrir dyr deildarinnar með ýmsum fróðleik sem fæst okkar eru að velta fyrir sér dags daglega. Umfram allt þá ætlum við að gera þetta ár eins skemmtilegt og við getum og von- andi fá sem flesta með okkur. Má ég nota síðustu mínútuna til að óska eftir hlaupurum til að hlaupa fyrir Líf í Reykjavíkurmaraþon- inu?“ laumar hún inn að lokum. bjork@frettabladid.is ÉG ER TÝPAN SEM FÉKK EITT SINN GRÍNLAUST HARÐSPERRUR AF ÞVÍ AÐ HNOÐA DEIG. ÞAÐ VAR ÁKVEÐINN BOTN Í LÍFI MÍNU. Job.is Þú finnur draumastarfið á Job.is GLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Kennsla Þú finnur draumastarfið á Iðnaðarmenn Þú finnur draumastarfið á Heilbrigðisþjónusta Veitingastaðir 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 4 6 -2 C 7 C 2 2 4 6 -2 B 4 0 2 2 4 6 -2 A 0 4 2 2 4 6 -2 8 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.