Mosfellingur - 16.05.2013, Qupperneq 32

Mosfellingur - 16.05.2013, Qupperneq 32
 - Aðsendar greinar32 ARhönnun TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF LAMPAR og kertastjakar Hafðu samband s:6924005 ANNA ÓLÖF www.facebook.com/arhonnun ÞR Ó U NA R- OG NÝSK ÖPUNARVIÐURKEN N IN G MOSFELLSBÆJA R ÍSLENS K HÖNN UN Hársnyrtistofa Helenu Þjónustumiðstöðinni Eirhömrum í Mosfellsbæ Opið: þriðjudaga - föstudaga frá kl. 9-14 Kær kveðja, Magga Dóra, Helena Hólm og Helga Þóra Bender • Boðið er upp á góða þjónustu fyrir konur sem karla • Sanngjarnt verð fyrir eldri borgara og öryrkja • Hægt er að panta tíma í síma 899 6685 eða á staðnum • Vertu velkomin hlökkum til að sjá þig • Flott opnunartilboð Leiruvogurinn er með áhugaverðari fuglaskoðunarsvæðum á Íslandi. Á þessum tíma núna er mikið líf og fjör því flest allir farfuglar eru komnir. Stórir hópar af margæsum og rauðbrystingum láta í sér heyra. Báðar tegundir eru umferðafuglar. Margæsin er frekar lítil gæs, að- eins stærri en æðarfugl. Hún verpir allt umhverfis norðurheimskautið. Sá varp- stofn sem verpir í NA Kanada hefur vetr- arsetu í Vestur- Evrópu og mest á Írlandi. Hann telur um 20.000 fugla á haustin. Á leiðinni koma gæsirnar við hér á Íslandi bæði á vorin og haustin til að „taka elds- neyti”, leiðin er allt of löng til að fljúga hana án þess að birgja sig upp af orku. Hún hefur viðkomu á Faxaflóa- svæðinu og við sunnanverðan Breiðarfjörð. Margæsin nærast aðallega af fjörugróðri eins og marhálm, sjávarfitjung og græn- þörung. Eitthvað fer hún einnig í ræktuð tún að vori til, en aldrei langt frá sjónum. Gaman er að fylgjast með fuglunum og kemur fuglaskoðunarhúsið fyrir neðan golf- völlinn þar að góðu gagni. Best er að skoða fuglana þegar það er að fjara út. Lykla húss- ins er hægt að fá lánaða hjá íþróttamiðstöð við Lágafellsskóla og hjá undirritaðri. Úrsúla Jünemann Margæsir í Leiruvoginum Sendið okkur myndir af nýjum Mos­fellingum ás­amt hels­tu upplýs­ingum á mos­fellingur@mos­fellingur.is­ Um helgina fór fram Vormót Íþróttafé- lagsins Aspar í sundi. Mótið sem nú var haldið í 30. sinn hefur í gegnum tíðina verið haldið með dyggum stuðningi Kiw- anisklúbbsins Elliða sem kostað hefur öll verðlaun mótsins Mosfellingurinn Karen Axelsdótt- ir keppti í sundi á vormótinu og hélt uppteknum hætti og bætti Íslandsmet í sínum fötlunarflokki sem er S2. Hún synti 100 metra skriðsund á tíman- um 3:41,37. Að þessu sinni voru 10 Íslandsmet sett á mótinu sem sýnir að sundfólkið er í stöðugri framför og bætingarnar í sumum tilfellum umtalsverðar. Á myndinni má sjá Karen ásamt Friðriki þjálfara sínum. Karen heldur áfram að bæta sig í sundinu

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.