Mosfellingur - 12.01.2012, Side 4
15. janúar kl. 11
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
22. janúar kl. 20
Taize - guðsþjónusta í Lágafellskirkju
Sr. Skírnir Garðarsson
29. janúar kl.11
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
HelgiHald næstu vikna
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64
Valinn maður ársins
hjá Frjálsri verslun
Mosfellingurinn Eyjólfur Árni
Rafnsson, 54 ára framkvæmdastjóri
verkfræðistofunnar Mannvits,
er maður ársins 2011 í íslensku
atvinnulífi, að mati Frjálsrar
verslunar. Eyjólfur Árni hlýtur
þennan heiður fyrir árangur við
að virkja íslenskt hugvit, ásamt
samstarfsfólki, í þágu atvinnulífsins;
nýsköpun; fagmennsku í rekstri;
athafnasemi og útsjónarsemi sem
gert hefur Mannvit að framúr-
skarandi fyrirtæki og langstærsta
ráðgjafarfyrirtæki á sviði verkfræði
og tækni á Íslandi.
Eyjólfur Árni Rafnsson er með
doktorspróf í byggingarverkfræði
frá University of Missouri-Rolla
í Bandaríkjunum. Maki hans er
Egilína S. Guðgeirsdóttir. Þau eiga
fjóra syni og fimm barnabörn.
laugardagskvöldið 21. janúar 2012
Sunnudagaskólinn
er í Lágafellskirkju
á sunnudögum kl. 13
safnaðarstarfið er hafið eftir jólafrí.
Sjá nánar á heimsíðu kirkjunnar:
www.lagafellskirkja.is
Ljósrit og prent og gudni.is hafa sameinað krafta sína og bjóða
nú upp á stafræna og ljósmynda prentun. Nú geta fyrirtæki og
einstaklingar fengið prentþjónustu í Mosfellsbæ á ný. Guðni Þor-
björnsson (gudni.is) sem rekur fyrirtækið ARTPRO ehf. að Háholti
14 hefur nú tekið við öllum tækjabúnaði og þjónustu frá Ljósrit og
prent sem Nikulás Róbertsson rak árum saman hér í bæ. Nikulás
sem nú rekur hljóðupptökustúdíóið Protime flutti prentstarfsemina
til Reykjavíkur samhliða hljóðstúdíóinu á síðastliðnu ári og margir
aðilar söknuðu þess að hafa ekki þessa þjónustu hér í bæ.
Prentar allt milli himins og jarðar
ARTPRO sem margir þekkja sem gudni.is bíður nú upp á alhliða
stafræna prentþjónustu og fjölritun og prentar öll prentverk stór
sem smá. Svo sem nafnspjöld, bæklinga, kort, myndir, bækur, plak-
öt, auglýsingar og dreifimiða, svo eitthvað sé nefnt. Einnig býður
ARTPRO upp á stórljósmynda prentun í bestu mögulegu gæðum og
prentar myndir upp í A1+ stærð. Fyrirtækið býður einnig upp á alla
hönnun, uppsetningu, myndvinnslu og auglýsingagerð.
„Mér finnst mjög ánægjulegt að geta nú boðið Mosfellingum á
ný upp á þessa þjónustu. Fólk var orðið vant því að hafa Nikka og
prentunina hér í bæ og þetta passar mjög vel inn í starfsemi mína.
Ég er sjálfur innfæddur Mosfellingur og ég reyni alltaf að nota alla
þá þjónustu sem hægt er að fá í okkar heimabyggð. Ég hef fengið
mjög góðar viðtökur frá Mosfellingum með þessum nýjungum í
fyrirtæki mínu og ég hlakka til að þjónusta Mosfellinga í framtíð-
inni“ segir Guðni.
Guðni Þorbjörnsson (gudni.is) tekur að sér stafræna og ljósmynda prentun í Háholti 14
Býður upp á alhliða prent-
þjónustu fyrir Mosfellinga
guðni þorbjörnsson við
prentvélarnar í háholti
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la
Josephina útskrifast
með afburðarárangri
Við útskrift í Borgarholtsskóla
þann 17. desember síðastliðin
fékk Josephina María P.J. Maas
viðurkenningu fyrir afburða
námsárangur. Hún útskrifaðist með
9.37 í meðaleinkunn af félagsliða-
braut með sérhæfingu bæði á sviði
fötlunar og öldrunarþjónustu.
Josephina er fædd í Hollandi en
hefur búið hér á landi frá 2003. Fyrst
byrjaði hún að vinna á sveitarbæ en
árið 2006 flutti hún í Mosfellsbæ þar
sem hún fór að vinna við þjónustu
við aldraða á Eirhömrum og
félagslega heimþjónustu. Árið 2008
flutti hún sig yfir í búsetukjarna fyrir
fatlað fólk í Mosfellsbæ ásamt því
að sinna liðveislu við aðra úr þeim
hópi. Við það starfar hún í dag.
Við útskrift í Borgarholtsskóla þann 17. desember síðastliðin fékk Josephina María
P.J. Maas viðurkenningu fyrir afburða námsárangur. Hún útskrifaðist með 9.37 í
meðaleinkunn af Félagliðabraut með sérhæfingu bæði á sviði fatlana og
öldrunarþjónustu.
Josephina er fædd í Hollandi en hefur búið hér á landi frá 2003. Fyrst byrjaði hún að
vinna á sveitabæ en árið 2006 flutti hún í Mosfellsbæ þar sem hún fór að vinna við
þjónustu við aldraða á Eirhömrum og félagslega heimþjónustu. Árið 2008 flutti hún
sig yfir í búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Mosfellsbæ ásamt því að sinna liðveislu við
aðra úr þeim hópi. Við það starfar hún í dag.
Vibeke Þ. Þorbjörnsdóttir
Verkefnastjóri/ráðgjafarþroskaþjálfi
Fjölskyldusviði Mosfellsbæjar
Formlega hefur verið óskað eftir samstarfi
við bæjarstjórn Mosfellsbæjar um upp-
byggingu gagnavers í landi Mosfellsbæjar.
Það er Gunnar Ármannsson sem sækir um
lóðina fyrir hönd óstofnaðs einkahlutafé-
lags um verkefnið sem hefur verið í und-
irbúningi frá árinu 2008. Gunnar er einnig
framkvæmdastjóri PrimaCare sem hefur í
hyggju að reisa hér liðskiptasjúkrahús og
heilsuhótel. Þeir aðilar sem standa að verk-
efninu eru bandarísku félögin Shiboomi
LLC, Skanska USA, Hill International og
lögmannsstofan Holland & Knight. Að
auki hafa komið að undirbúningi verkefn-
isins íslensku fyrirtækin Verkís, VHE og
lögmannsstofan BBA Legal.
10 hektarar í landi sólheimakots
Hugmyndin er að gagnaverið rísi í landi
Sólheimakots sem er land í eigu Mosfells-
bæjar sunnan Hafravatns. Það svæði er
mjög vel staðsett með tilliti til aðgengis
að orkulínum Landsnets og talið hentugt
fyrir þessa starfssemi. Gert er ráð fyrir að
gagnaverið þurfi um 10 hektara lands og
þurfi 15MW af orku á ári. Gert er ráð fyrir
því að verkefnið geti skapað 500-1000 ný
störf. Fjárhagsleg stærð verkefnisins er
áætluð um 200 milljónir Bandaríkjadala.
Áhersla er lögð á að að gagnaverið verði
eins umhverfisvænt og kostur er.
„Samskipti forsvarsmanna PrimaCare
við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og íbúa hafa
verið afar farsæl og er þess óskað að sam-
komulag um samstarf geti byggt á þeirri
fyrirmynd sem PrimaCare verkefnið er,“
segir Gunnar Ásmannsson.
Haraldur Sverrisson segir að bæjarráð
hafi fagnað verkefninu og tekið jákvætt í
það og falið sér að leggja drög að samingi
um verkefnið fyrir ráðið. „Hér er um gríð-
arstórt verkefni að ræða sem yrði mikil
lyftistöng fyrir sveitarfélagið ef af verður,“
segir Haraldur bæjarstjóri.
Hugmyndir um að reisa gagnaver á 10 hektara landsvæði í landi Sólheimakots
sótt um lóð undir gagnaver
Highly Confidential • All Rights Reserved • Shiboomi LLC • 2011 1
MEGA DATA STORAGE CENTERS
ICELAND
Integrating Technology, Environment,
Society
Executive Summary
DRAFT
Summer 2011