Mosfellingur - 12.01.2012, Blaðsíða 6

Mosfellingur - 12.01.2012, Blaðsíða 6
Hér gætu komið opnunartímar. letur Footlight Uppbyggjandi og skemmtilegt starf POWERtalk deildin Korpa var stofn- uð 1986 og verður því 26 ára á þessu starfsári. Meðlimir Korpu hittast tvisvar sinnum í mánuði og æfa sig í að standa upp og tala, flytja ýmis verkefni, undirbúin og óundirbúin, æfa sig í fundarsköpum, stjórnar- setu, samvinnu, markmiðssetningu og ýmsu fleiru. Öll kennsla og þjálf- un fer fram af reyndari félögum en mikill lærdómur er einnig fólginn í því að miðla reynslu og leiðbeina. Þann 18. janúar verður haldinn opinn kynningarfundur þar sem sérstök áhersla verður lögð á að gefa góða innsýn í félagsstarfið. Með- limir Korpu hvetja alla Mosfellinga og nærsveitarmenn til að koma og kynna sér starfið og fá sér hressingu í leiðinni. Korpa fundar fyrsta og þriðja miðvikudag í mánuði kl. 20 í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð. Nánari upplýs- ingar á www.powertalk.is. Bjarki stendur fyrir Laxdælunámskeiði Um þessar mundir stendur yfir Laxdælunámskeið á vegum eldri borgara í Mosfellsbæ. Bjarki Bjarna- son er kennari á námskeiðinu sem er haldið í Brúarlandi. Laxdæla er ein af þekktustu Íslendingasög- unum og er rituð á 13. öld; þar er meðal annars greint frá hinum átakanlegu ástarmálum Guðrúnar Ósvífursdóttur, Kjartans Ólafssonar og Bolla Þorleikssonar. Stór hluti sögunnar gerist í Dalasýslu og þátttakendur í námskeiðinu hyggja á ferð á söguslóðir þegar snjóa leysir í vor. Þegar Guðrún Ósvífursdóttir var spurð að því á gamalsaldri hvern hún hefði elskað mest svaraði hún: „Þeim var ég verst er ég unni mest.“ Helga Dögg Reynisdóttir og Bryngeir Jónsson eignuðust dreng þann 2. janúar 2012 Fyrsti Mosfellingur ársins Fjölskyldan í Rituhöfðanum. Reynir Björn, Helga Dögg, Bryngeir, Lilja Laufey og nýfæddi drengurinn. M yn d/ Ra gg iÓ la Hér gætu komið opnunartímar. letur Footlight Laugardaginn 21. janúar verður þorrablót Aftureldingar haldið í íþróttahúsinu að Varmá. Þetta er í fimmta sinn sem blótið er haldið í þessari mynd. Þorrablótið er einn stærsti menningarviðburður af þessu tagi sem haldinn er í Mosfellsbæ ár hvert. Forsala miða er í Olís Langatanga og borða- pantanir fara fram sunnudaginn 15. janúar á milli 17-18 með sama hætti og undanfar- in ár. Allur ágóði af þorrablótinu rennur til barna- og unglingastarfs Aftureldingar. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði, en Vignir í Hlégarði sér um þorramatinn og verður einnig með létta rétti fyrir þá sem ekki treysta sér í þorrann. Leikarinn góð- kunni, Halldór Gylfason, verður veislu- stjóri og Ingó og veðurguðirnir leika svo fyrir dansi. Metalrokkbandið Stormsveitin, sem skipuð er fimm manns og 16 manna karlakór, mun stíga á stokk en feðgarnir Sigurður Hansson og Arnór Sigurðsson eru upphafsmenn af því. „Mig hefur lengi langaði að taka eitt metalrokklag og útsetja það með karlakór. Í haust létum við Arnór, sem er í Bob Gillan, verða að því og köll- uðum saman hóp af mönnum. Hugmyndin gekk upp og úr varð að við erum búnir að æfa í allt haust og verðum með okkar fyrsta „gigg“ á þorrablótinu. Útkoman er vægast sagt spennandi og passar vel á svona sam- komu.“ Það er orðin hefð hjá mörgum vinahóp- um, vinnustöðum og félagasamtökum að mæta saman á blótið og búist er við góðri þátttöku í ár. Mosfellingar eru hvattir til að mæta, skemmta sér með sveitungum sínum og styrkja Aftureldingu um leið. aó Metalrokkbandið Stormsveitin tekur lagið á þorrablóti Aftureldingar í íþróttahúsinu Hitað upp fyrir þorrablótið M yn d/ Ra gg iÓ la stífar æfingar hjá stormsveitinni Þann 2. janúar kl. 23.53 fæddist fyrsti Mos- fellingur ársins 2012 á Landspítalanum. Það var drengur sem mældist 18 merkur og 54 cm. Foreldrar hans eru Helga Dögg Reynisdóttir og Bryngeir Jónsson og búa þau í Rituhöfðanum. Drengurinn er þriðja barn þeirra hjóna en fyrir eiga þau Lilju Laufeyju 5 ára og Reyni Björn 3 ára. „Hann átti að koma í heiminn 29. desember, en ákvað frekar að verða fyrsti Mosfellingur ársins. Lilja Laufey, stóra systir hans, átti líka að fæðast 29. desember en vildi það ekki heldur en hún verður einmitt sex ára þann 12. janúar,“ segir Helga. Mosfellingur greindi frá því í haust að Helga, sem er nýútskrifaður ljósmyndari, gaf fæðingagangi Landspítalans sjö falleg- ar myndir af ungbörnum sem prýða veggi deildarinnar. „Það var mjög gaman og öðruvísi að koma upp á fæðingargang eftir að ég frískaði uppá veggina þar, gangurinn var mun smekklegri í þetta skiptið,“ segir Helga og hlær. Mosfellingur óskar fjöl- skyldunni til hamingju með drenginn. Eldri borgarar Upplýsingar og skráningar í ferðir og námskeið eru á skrifstofu félagsstarfsins Eirhömrum kl. 13-16, símar 586-8014 og í gsm. 692-0814 Menningarkvöld FaMos FaMos verður með menningarkvöld eða opið hús mánudaginn 16. jan. kl 20 í Hlégarði. ATHUGIÐ! Breyttur fundardagur og fundarstaður. Á dagskráin verður: Bæjarlistamaður Mosfells- bæjar, Bergsteinn Björgúlfsson, segir frá sjálfum sér og verkum sínum. Leikfélag Mosfellsbæjar flytur dagskrána Mórar og meyjar. Kaffinefndin býður upp margrómað kaffihlaðborð að venju. - Fréttir úr bæjarlífinu6 Leikfimi byrjar 19. jan. kl. 10.45. Kennari verður Karin Mattson sjúraþjálfari. Tekið verður á móti þátttökugjaldi, kr. 3.000, á skrifstofu félagsstarfsins á Eirhömrum á milli kl. 13 og 16. Tréskurðarnámskeið byrjar 12. jan. kl. 12.30. Bókbandsnámskeið byrjar 24. jan. kl. 13. Leirnámskeið byrjar 19. jan. kl. 10-12. Skartgripagerð verður vikuna 23. – 27. jan. Glerverkstæði er opið alla þriðjudaga kl. 10-12. Leikhúsferð Leikhúsferð verður farin, á vegum félags- starfsins, föstudaginn 27. janúar, á leikritið Hjónabandssælu sem sýnt er í Gamla bíói. Þetta er gamanleikur með Ladda og Eddu Björgvins, sem fara með aðalhlutverkin. Miðasala er á skrifstofu félagsstarfsins og er miðaverð kr. 3.655. Farið verður með rútu frá Eirhömrum kl. 19.30. HáHoLTI 13-15 - SíMI: 578 6699 - opIÐ ALLA vIrkA dAGA 10-18:30 Hér gætu komið opnunartímar. letur Footlight

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.