Mosfellingur - 12.01.2012, Blaðsíða 18

Mosfellingur - 12.01.2012, Blaðsíða 18
janúar tilboð Nýr framkvæmda­ stjóri Aftureldingar Jóhann Már Helgason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Aftur- eldingar og hefur tekið til starfa. Jóhann Már er 26 ára gamall stjórn- málafræðingur, fæddur í Reykja- vík en uppalinn í Garðabæ. Hann lauk stúdents- prófi frá Fjöl- brautaskólanum í Garðabæ og útskrifaðist með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Jóhann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands og undanfarin tvö ár á fyrirtækjasviði Creditinfo. Jóhann hefur verið mjög virkur í félagsstörfum í gegnum tíðina og var m.a. varaformaður Politica, félags stjórnmálafræðinema og sat í Stúdentaráði Háskóla Íslands. Þorsteinn áfram með Aftureldingu Knattspyrnudeild Aftureldingar hefur gengið frá samkomulagi við Þorstein Magnússon um að sinna áfram þjálfun meistarflokks karla hjá félaginu. Þorsteinn tók við þjálfun liðsins á miðju tímabili 2010 og hefur náð góðum árangri með liðið. Í fyrra var liðið hárs- breidd frá því að fara upp um deild og í sumar á að klára það verkefni. Þorsteinn er með mikla reynslu af þjálfun, sérstaklega markvarða. Það er því fengur fyrir félag eins og Aftureldingu að hafa Þorstein við stjórnvölinn. Keppir í skíðagöngu á Ólympíleikum Afreksmaðurinn og Mosfellingurinn Gunnar Birgisson var á dögunum valinn af ÍSÍ til að taka þátt skíða- göngu fyrir hönd Íslands á fyrstu Ólympíuleikum ungmenna sem haldnir eru í Innsbruck í Austurríki. Á leikunum munu rúmlega 1.000 keppendur á aldrinum 14-18 ára frá meira en 60 löndum keppa í 15 vetraríþróttum. Leikarnir hefjast föstudaginn 13. janúar og þeim lýkur sunnudaginn 22. janúar. Ísland mun eiga tvo keppendur í Alpagreinum skíðaíþrótta og einn í skíðagöngu. Gunnar, sem er er félagi í Skíðagöngufélaginu Ulli, er Íslands- og bikarmeistari í flokki 17- 19 ára. Gunnar er í unglingalands- liðinu og tók einnig þátt í Ólympíu- leikum æskunnar 2011 sem fórum fram í Tékklandi. - Íþróttir18 Knattspyrnudeild Aftureldingar endurnýjaði nýlega samninga við nokkra af sínum lykilleikmönnum í meistarflokki karla. „Mikill uppgangur er nú hjá Aftureldingu sem ætlar sér stóra hluti á kom- andi knattspyrnusumri. Liðið var hársbreidd frá því að fara aftur upp í fyrstu deild í fyrra og nú á að stíga skrefið til fulls. Gaman er að geta þess að allir leikmennirnir sem undirrituðu samninga að þessu sinni eru uppaldir í Mosfellsbæ, utan Írans John Andrews sem verið hefur með liðinu frá árinu 2008,“ segir Pétur Magnússon nýr formaður meistaraflokksráðs karla. Á næstunni mun knattspyrnudeildin svo ljúka við að semja við fleiri leikmenn. Meðfylgjandi mynd er frá undirrituninni sem fram fór á Hvíta Riddaranum. Efri röð: Þorsteinn Magnússon þjálfari og Pétur Magnússon formaður meistaraflokksráðs karla. Neðri röð: Arnór Snær Guðmundsson, Wentsel Steinarr R. Kamban, Sigurbjartur Sigur­ jónsson, Sævar Freyr Alexandersson, Axel Lárusson og John H. Andrews. Knattspyrnudeild Aftureldingar endurnýjar samninga við lykilmenn fyrir komandi tímabil Samningar við lykilmenn Nýjir tímar eru framundan í Taekwondodeild Aftureldingar í vor. Gamli kennarinn hann Jón Levy er kominn aftur, og er orðinn yfirkennari deildarinnar. Búið er að setja upp nýjan nemendavef afturelding.tki.is fyrir nemendur og foreldra þar sem allar æfingar sjást langt fram í tímann. Þar sést heimavinna nemenda, æfingar ef nemendur hafa misst af tíma eða vilja æfa sig heima á milli æfinga, öll mót og aðrir viðburðir. Sú nýjung verður að nokkrir kennarar munu koma að kennslu sem eru allir sérfræðingar á sínu sviði í Taek- wondo, sem styrkir deildina í heild sinni mjög mikið. Einn- ig er búið að breyta yngsta hópnum þannig að æfingarnar byggja mikið á þroskaleikjum sem eru bæði skemmtilegir og líkamlega styrkjandi fyrir krakkana. En ekki má gleyma því að íþróttin Taekwondo er alltaf skemmtileg jafnt fyrir börn sem fullorðna, og er t.d. fullorðins hópurinn okkar alltaf að stækka því fjörið smitar út frá sér. Kynning laugardaginn 14. janúar Fyrir þá sem langar að kynna sér íþróttina er um að gera að kíkja á síðuna okkar og mæta á æfingu. Það þarf ekkert annað en íþróttaföt og góða skapið. Styrkur, sjálfstraust, liðleiki og mikið þrek fylgja svo á eftir. Tímarnir hjá okkur eru á þessum dögum: Mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga í bardagalistasal Aftureldingar í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Börn 6-8 ára kl: 14:30-15:15. Krakkar 9-12 ára kl: 16:30-17:30. Unglingar/fullorðnir 13-100 ára kl: 17:30-19:00. Kynningar- og skráningarfundur hjá deildinni verður laugardaginn 14. janúar kl: 11 niður í baradagalistasalnum í íþróttahúsinu Varmá. Jón Levy tekur við sem yfirkennari deildarinnar • Nýr nemendavefur í loftið fyrir iðkendur Nýir tímar hjá Taekwondodeild Fight Club í Mosó Ný sex vikna hnefaleikanámskeið hefst 16. janúar í líkamsræktarstöðinni Eldingu. Kennari er Árni Sigurður Halldórsson. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 18.30. Verð er kr. 17.000 sem gildir einnig sem kort í Eldingu. Frábær þjálfun fyrir stelpur og stráka.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.