Mosfellingur - 16.01.2009, Qupperneq 6

Mosfellingur - 16.01.2009, Qupperneq 6
 - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar6 Hýsi og Iðnkúnst reisa reiðhöllina Hýsi ehf og Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ hafa náð samningum um að Hýsi sjái um að útvega og reisa reiðhöll á svæði Harðar á Varmárbökk- um. Reiðhöllin er 30 x 81 m = 2430 m2 að stærð og vegghæð 4,2 m. Iðnkúnst ehf. sér um að reisa húsið. Samningum við fyrri verktaka var slitið í lok nóvember síðasta árs en bygging reiðhallarinnar hefur dregist mjög. Fyrirtækin Hýsi og Iðnkúnst eru bæði staðsett í Mosfellsbæ og er áætlað að reiðhöllin verði tilbúin 1. júní. Glæsileg skreyting í Álmholti 2 Orkuveita Reykjavíkur veitti á dögunum sína árlegu viður- kenningu fyrir fyrir glæsilegar jólaskreytingar. Veitt eru verðlaun fyrir skreytingu einnar eignar í hverju sveitarfélagi þar sem Orkuveitan sér um dreif- ingu rafmangs. Í Mosfellsbæ voru það hjónin Ólöf Jansen og Kristján Jónsson í Álmholti 2 sem fegnu viðurkenninguna. Í umsögn dómnefndar segir að skreytingin sé smekkleg, vel útfærð og aðkoman að húsinu sé sérlega falleg. ELDRI BORGARAR 5 2 2 • 2 2 2 2 U R Ð A R H O L T 2 2 7 0 M O S F E L L S B Æ E L D H U S I D . I S Ferð í Kolaportið og Perluna, laugardaginn 24. janúar. Lagt af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum. Verð á akstri er kr. 1.000. Skráning í síma 5868014 kl.13-16. Handverksstofan á Hlaðhömrum er opin alla virka daga kl. 13-16. Tréskurðarnámskeið er á fimmtudögum kl. 12.30 Leikfimi er á mánudögum kl. 14.10 Bókbandsnámskeið er á þriðjudögum kl. 13. Ganga frá Hlaðhömrum er á þriðjudögum og föstudögum kl. 11.30 Kóræfing Vorboða er á miðvikudögum kl. 15. Línudans byrjar mánudaginn 2. febrúar kl. 17. Önnur námskeið verða tilkynnt á næstunni. Félagsstarfið í Mosfellsbæ hvetur alla eldri borgara til þess að taka þátt í skemmtilegum félagsskap t.d. við söng, listsköpun, spil, ferðir, göngu, leikfimi o.fl. Mosfellsbær greiðir niður akstur með leigubíl fyrir þá eldri borgara sem vilja taka þátt í félagsstarfinu en hafa ekki eigið farattæki. Uppl. á skrifstofu félagsstarfsins hjá Svanhildi í síma 5868014 kl. 13-16. Mosfellingarnir Kristján og Sigurður bjóða upp á ferskan fisk á góðu verði Fiskbúðin Mos opnar í Háholti Fiskbúðin Mos opnaði í vikunni í Háholti 13 við hlið Krónunnar. Það eru þeir Kristján Breiðfjörð Magn- ússon og Sigurður Fjeldsted sem ætla að bjóða Mosfellingum upp á ferskan fisk og fiskrétti í þessari nýju fiskbúð í Mosfellsbæ. Strákarnir kunna vel til verka og eru vanir menn úr geiranum. „Það hefur lengi vantað fiskbúð í Mosfellsbæ og eftirspurnin er mikil, enda búum við í hátt í 9000 manna bæjarfélagi,“ segja þeir félagarnir. „Við ætlum okkur að bjóða upp á sanngjarnt verð og gott úrval. Við höfum fengið mjög góðar viðtökur og vonumst til að eiga góð viðskipti við bæjarbúa.“ Fiskbúðin er opin virka daga frá kl. 10-19 og eru nýju fisksalarnir full- ir bjartsýni og tilhlökkunar. Stjáni og Siggi bjóða Mos- fellingum upp á ferskan fisk í nýrri fiskbúð á milli Krón- unnar og Mosfellsbakarís. Myndir/Matthías Þórarinsson Mosfellingurinn Alli Rúts hlýtur að þessu sinni nafnbótina Mosfell- ingur ársins en hann opnaði á árinu glæsilegt hótel að Ási. Hótel Laxnes var á dögunum viðurkennt af Ferðamálaráði Íslands sem þriggja stjörnu hótel og er stefnt að því að bæta þeirri fjórðu við í framtíðinni. Hótelið er ein af glæsilegustu bygg- ingum bæjarins. Alli var að vonum ánægður og þakklátur fyrir viður- kenninguna en fyrstu mánuðirnir hafa farið vel af stað að hans sögn. Hægt var að senda inn tillögur að nafnbótinni til blaðsins og barst fjöldi góðra ábendinga. Alli Rúts tekur við nafnbótinni Mosfellingur ársins úr höndum Hilmars Gunnarssonar ritstjóra Mosfellings. Mosfellingur afhenti Alla glæsilegt listaverk eftir leirlistakonuna Þóru Sigurþórsdóttur auk blómaskreytingar frá Hlín Blómahús. Albert Sigurður Rútsson Mosfellingur ársins 2008

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.