Mosfellingur - 16.01.2009, Page 8
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar8
Safnað fyrir
Rebekku Allwood
Í síðasta blaði sögðum við ykkur
frá Rebekku Allwood, 19 ára
stúlku sem lenti í hræðilegu
slysi á Vesturlandsveginum
fyrir sex árum. Rebekka er í
dag fjölfötluð með ósjálfráðar
hreyfingar og verður það líklega
ævistarf hennar að vinna úr
afleiðingum þessa slyss. Mos-
fellingur stendur fyrir söfnun
henni til handa en safnað er fyrir
æfingarhjóli sem kæmi sér vel
fyrir Rebekku við endurhæfingu
hennar. Söfnunarreikningurinn
er á nafni Rebekku er í Glitni
Mosfellsbæ 0549-14-400541,
kt: 020389-2499 og hvetjum við
fyrirtæki og einstaklinga til að
leggja söfnunni lið og munum
að margt smátt gerir eitt stórt.
Kyndill þakkar
fyrir stuðninginn
Björgunarsveit-
in Kyndill vill
koma á fram-
færi þakklæti til
allra þeirra sem
styrktu sveitina
í flugeldasöl-
unni. Einnig
sérstakar þakk-
ir til þeirra sem styrktu flugelda-
sýninguna á gamlárskvöld en án
styrktaraðila væri engin sýning.
Aðalstyrktaraðilar voru: Októ í
Ísbandi, Bjarni í Leirvogstungu,
Bjarni Ásgeir, Einar Páll og fjöl-
skylda og Skúli Karlsson í Stormi
(Polaris).
Þorrablót haldið
í íþróttahúsinu
Þorrablót Aftureldingar fer
fram í íþróttahúsinu að Varmá
laugardaginn 24. janúar.
Undirbúningur gengur vel og
miðasalan hefur farið vel af
stað, að sögn Rúnars B. Guð-
laugssonar formanns þorra-
blótsnefndar. Þorrablótið var
endurvakið í fyrra og heppnaðist
með eindæmum vel en þá
mættu ríflega 1000 manns í mat
og á dansleik. „Þetta er líklega
stærsti viðburður sem fram
fer innandyra í Mosfellsbæ og
hvetjum við bæjarbúa til að fjöl-
menna og skemmta sér saman.
Ekki veitir af því að lyfta sér upp
á þessum síðustu og verstu,“
segir Rúnar og hlakkar til.
Eldhúsið-Pizzabakarí sér um
forsölu aðgöngumiða. Hægt
er að panta borð á sama stað
þriðjudaginn 20. janúar kl. 20-
21. Nánari upplýsingar varðandi
borðaskipun fást hjá Önnu Ólöfu
í síma 692-4005. Allur ágóði
Þorrablótsins rennur til barna-
og unglingastarf Aftureldingar.
Tillaga að byggðar-
merki Kjósarhrepps
Hreppsnefnd Kjósarhrepps
efndi til hugmyndasamkeppni á
dögunum um byggðarmerki.
Ellefu
tillögur
bárust og
hlutskörp-
ust varð
tillaga Arn-
ars Viðars
Erlends-
sonar á
Þórsstöðum við
Lækjarbraut.
Eining ríkti um niðurstöðuna
en tillagan fer nú til frekari
úrvinnslu. Á merkinu má sjá
Laxána liðast niður í Laxvoginn
með Reynivallaháls í bakgrunni
og Botnssúlur í fjarska.
Jólin kvödd með árlegri þrettándabrennu
Nú er glatt hjá álfum öllum
Fólk lét ekki votviðri á sig fá á
síðasta degi jóla og mætti á árlega
þrettándabrennu. Í Mosfellsbæ
hefur ávallt verið mikið lagt upp
með flottri umgjörð í kringum þrett-
ándagleðina. Grýla og Leppalúði
mættu með sitt hyski, álfakóngur og
drottning sungu með Mosfellskórn-
um og skólahljómsveitin lék undir.
Leikfélagið mætti prúðbúið og björg-
unarsveitin skaut upp flugeldum.
Samræmd stefna
um skólamötuneyti
Mosfellsbær hefur samþykkt
samræmda stefnu um skóla-
mötuneyti leik- og grunnskóla í
samræmi við ráðleggingar
Lýðheilsustöðvar. Lögð er
áhersla á að í skólamötuneyt-
um bæjarins njóti skólabörn
fjölbreyttrar fæðu í hæfilegu
magni, að matvælin séu rík af
næringarefnum, fersk og að þau
séu í háum gæðaflokki. Lögð er
áhersla á að farið sé eftir ráðlegg-
ingum Lýðheilsustöðvar hvað
varðar fæðuval, næringargildi og
skammtastærðir.
Leik- og grunnskólar hafa sömu
samsetningu og sömu uppbygg-
ingu matseðla til að einfalda
fjölskyldum að samræma sínar
máltíðir við máltíðir skólanna.
Svæðameðferð
fyrir konur og karla
Vinnur á flestum verkjum
Heilsustofan Gæska, Háholti 14
Upplýsingar í síma 8200878