Fréttablaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 6
Það er ekki verið að
taka neina áhættu
eða tefla neinu í tvísýnu.
Þórólfur
Guðnason
sóttvarnalæknir
Ég segi sem Svarf-
dælingur, ég vil að
okkar svarfdælski ráðherra
standi í báðar sínar svarf-
dælsku lappir í
þessu máli.
Katrín
Sigurjónsdóttir,
sveitarstjóri
í Dalvíkurbyggð
LANDBÚNAÐARMÁL Mikil óánægja
er í grasrót Framsóknar með vænt-
anlegt frumvarp landbúnaðarráð-
herra sem heimilar innf lutning á
hráu kjöti og eggjum til landsins.
Viðmælendur blaðsins í grasrót
Framsóknar telja óhugsandi að
frumvarpsdrögin verði samþykkt
í núverandi mynd og hafa f lokks-
menn litla trú á aðgerðaáætlun
stjórnvalda sem ætlað er að tryggja
vernd búfjárstofna.
Kristján Þór Júlíusson landbún-
aðarráðherra hefur sagt að í ljósi
dóma Hæstaréttar og EFTA-dóm-
stólsins séu ekki aðrir kostir í stöð-
unni. Drög frumvarpsins eru nú í
samráðsgátt stjórnvalda og stendur
ráðherra fyrir opnum fundum um
málið víða um land fram í næstu
viku.
Sigurður Ingi Jóhannsson, for-
maður Framsóknarf lokksins og
samgönguráðherra, hefur gefið það
út að of snemmt sé að segja til um
afstöðu flokksins til frumvarpsins.
Hann segir í svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins að andstaða Fram-
sóknar við óheftan innf lutning
á hráu kjöti hafi lengi verið ljós.
Afstaða f lokksins byggi á vísind-
um og skynsemi. „Fundur sá sem
Framsókn hélt í síðustu viku eftir
langan undirbúning sýnir glöggt
hver stefna okkar er. Við viljum
opna augu fólks fyrir þeirri ein-
stöku aðstöðu sem Ísland býr við
og standa vörð um heilnæma mat-
vælaframleiðslu á landinu.“
Heimildir blaðsins herma að
málið gæti reynst Sigurði Inga erfitt
í ljósi þess að í tíð sinni sem land-
búnaðarráðherra skrifaði hann
undir samning við ESB um lækkun
tolla á búvörur og aukna innflutn-
ingskvóta. Sagði hann á sínum tíma
að aukinn útflutningur þýddi kröfu
um aukinn innflutning. Þingmenn
Miðf lokksins lögðu fram þings-
ályktunartillögu í fyrra um að segja
upp samningnum.
Þeir Framsók nar menn sem
Fréttablaðið ræddi við voru sam-
mála um að frumvarpsdrögin
gengju of langt, ótækt væri að
leyfa innflutning á hráu kjöti og að
f lokksforystan hlyti að koma í veg
fyrir það. „Við erum nokkuð sam-
stíga í því að það þarf að gera betur
en þetta framvarp,“ segir Þórarinn
Ingi Pétursson, varaþingmaður
flokksins. „Ég vitna í samþykkt frá
síðasta f lokksþingi þar sem Fram-
sóknarflokkurinn leggst gegn inn-
flutningi á þessum vörum.“
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir,
formaður Sambands ungra Fram-
sóknarmanna, segir að hún skynji
hræðslu. „Þetta frumvarp hræðir
fólk einfaldlega. Fólk vill ekki trúa
því að þetta sé að gerast. Það hefur
bara sýnt sig að oft þegar það kemur
einhver nýr sjúkdómur þá fer hann
með hraði yfir landið.“
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitar-
stjóri í Dalvíkurbyggð, segir hrein-
leika landbúnaðarins skipta meira
máli en að opna landið fyrir erlend-
um mörkuðum. Vildi hún svo koma
eftirfarandi skilaboðum til Krist-
jáns Þórs: „Ég segi sem Svarfdæl-
ingur, ég vil að okkar svarfdælski
ráðherra standi í báðar sínar svarf-
dælsku lappir í þessu máli.“
arib@frettabladid.is
Óánægja og hræðsla í
grasrót Framsóknar
Framsóknarmenn óánægðir með frumvarp landbúnaðarráðherra um inn-
flutning á hráu kjöti. Framsóknarmenn vilja að flokksforystan hafni því. For-
maður Sambands ungra Framsóknarmanna segir fólk hrætt vegna málsins.
Frumvarp um innflutning á hráu kjöti er allt hið óþægilegasta fyrir flokksforystu Framsóknar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
H E I LB R I G Ð I S M Á L St ar fsmaðu r
Klettaskóla greindist með berkla. Á
morgun er áætlað að allir nemendur
og starfslið skólans fari í berklapróf
til að kanna hvort þeir hafi smitast.
Klettaskóli er sérskóli fyrir nem-
endur með þroskahömlun og við-
bótarfatlanir.
Árni Einarsson skólastjóri segir
að þegar svona mál komi upp fari í
gang ferli í samstarfi við sóttvarna-
lækni. „Allir starfsmenn eru með í
þessu og sérstaða nemendanna er
augljós,“ segir Árni. „Það er enginn
ánægður með svona fréttir, en það
er ekki talin mikil hætta á smiti í
skólanum.“
Starfsmaðurinn sem um ræðir
er nú í veikindaleyfi, upp komst
um smitið í lok síðustu viku og
voru skólastjórnendur látnir vita
á þriðjudag. Þórólfur Guðnason,
sóttvarnalæknir og sviðsstjóri hjá
Embætti landlæknis, segir allt gert
samkvæmt bókinni. „Ég skil það vel
að fólk vilji vita þetta strax og vilji
drífa í þessu, en það er ekki verið að
missa af neinu. Það er ekki verið að
taka neina áhættu eða tefla neinu í
tvísýnu.“
Þórólfur segir berkla aðeins
smitandi á meðan einstaklingurinn
sé veikur og þá í gegnum hósta og
hnerra. Smit eru greind með húð-
prófum sem tekur nokkra daga
að fá niðurstöður úr. Smitaðir ein-
staklingar eru meðhöndlaðir með
þremur lyfjum í einu sem drepa
bakteríuna. Sú meðferð tekur rúm-
lega hálft ár, viðkomandi smitar
ekki á meðan.
Tíðni berkla er mjög lág á Íslandi,
rúmlega 10 manns greinast hér á
landi á ári. – ab
Nemendur og starfslið í berklapróf
1/2
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn fimmtudaginn 14. mars 2019, kl. 16:30,
á Icelandair hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík, í fundarsölum 2 og 3.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2018 og ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á
reikningsárinu.
3. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
4. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
5. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
6. Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
7. Tillaga um að stjórn verði falið að greina kosti og galla skipunar tilnefningarnefndar.
8. Kosning endurskoðenda félagsins.
9. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar.
10. Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl.
11. Önnur mál.
Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum:
Meirihluti tillagna stjórnar um breytingar á samþykktum er til kominn vegna fyrirhugaðrar skráningar
félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Tilkynnt hefur verið að stjórn félagsins stefni á skráningu þess
á Aðalmarkaðinn fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2019 og eru lagðar til breytingar á ákvæðum samþykkta
til að endurspegla ákvæði laga um hlutafélög nr. 2/1995 sem eiga við um félög skráð á skipulegan
verðbréfamarkað, einkum 31. gr. (viðmiðunartími arðsréttar), 1. mgr. 80. gr. a (bréfleg eða rafræn
atkvæðagreiðsla), 2. mgr. 86. gr. (réttur til að fá mál tekið til meðferðar á hluthafafundi), 1. og 2. mgr.
88. gr. a (fundarboð, tímafrestir), 88. gr. c (fundarboð, efni) og 88. gr. d (upplýsingar fyrir hluthafafund).
Jafnframt er lagt til að felld verði út heimild til að gefa út hlutabréf á pappírsformi til hluthafa en hlutir
félagsins eru rafrænt skráðir.
Þá leggur stjórn til breytingu á ákvæði síðari málsgreinar gr. 6.1. í samþykktum um skipunartíma
endurskoðanda til að endurspegla breytingu á 2. mgr. 90. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002,
sem tók gildi þann 21. febrúar 2019.
Stjórn leggur einnig til breytingar á bráðabirgðaákvæðum samþykkta um heimild stjórnar til útgáfu og
sölu áskriftarréttinda og niðurfellingu eldri heimildar til kaupa á eigin hlutum. Lagt er til að heimild
stjórnar í bráðabirgðaákvæði II, til kaupa á eigin hlutum, verði felld út og stjórn verði, með nýju
bráðabirgðaákvæði II, veitt heimild til aðalfundar félagsins árið 2020 til útgáfu og sölu áskriftarréttinda
að 100.000.000 nýjum hlutum í félaginu. Lagt er til að heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár til að
mæta útgefnum áskriftarréttindum í þessum flokki gildi til 14. mars 2024. Jafnframt er lagt til að heimild
stjórnar til hækkunar hlutafjár vegna áskriftarréttinda sem gefin hafa verið út á grundvelli A og B liðar
bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum, sem gildir til 14. júlí 2022, verði framlengd til loka árs 2022. Er
það til að endurspegla nýtingartíma þegar útgefinna áskriftarréttinda að fullu. Loks er lagt til að hámark
útgefinna en ónýttra áskriftarréttinda af heildarhlutafé félagsins, sem kveðið er á um í C lið
bráðabirgðaákvæðis IV, verði lækkað úr 33,3% í 30,0%.
***
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn fimmtudaginn 14. mars
2019, kl. 16:30, á Icelandair hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík,
í fundarsölum 2 og 3.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2018 og ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps
félagsins á reikningsárinu.
3. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
4. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
5. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
6. Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
7. Tillaga um að stjórn verði falið að greina kosti og galla skipunar tilnefning rnefndar.
8. Kosning endurskoðenda félagsins.
9. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar.
10. Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl.
11. Önnur mál.
Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum:
Meirihluti tillagna stjórnar um breytingar á samþykktum er til kominn vegna fyrirhugaðrar
skráningar félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Tilkynnt hefur verið að stjórn félagsins
stefni á skráningu þess á Aðalmarkaðinn fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2019 og eru lagðar til
breytingar á ákvæðum samþykkta til að endurspegla ákvæði laga um hlutafélög nr. 2/1995
sem eiga við um félög skráð á skipulegan verðbréfamarkað, einkum 31. gr. (viðmiðunartími
arðsréttar), 1. mgr. 80. gr. a (bréfleg eða rafræn atkvæðagreiðsla), 2. mgr. 86. gr. (réttur til að fá
mál tekið til meðferðar á hluthafafundi), 1. og 2. mgr. 88. gr. a (fundarboð, tímafrestir), 88. gr. c
(fundarboð, efni) og 88. gr. d (upplýsingar fyrir hluthafafund). Jafnframt er l gt til að felld verði
út heimild til að gefa út hlutabréf á pappírsformi til hluthafa en hlutir félagsins eru rafrænt
skráðir.
Þá leggur stjórn til breytingu á ákvæði síðari málsg einar g . 6.1. í samþykktum um skipunar-
tíma endurskoðanda til að endurspegla breytingu á 2. mgr. 90. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr.
161/2002, sem tók gildi þann 21. febrúar 2019.
Stjórn leggur einnig til breytingar á bráðabirgðaákvæðum samþykkta um heimild stjórnar til
útgáfu og sölu áskriftarréttinda og niðurfellingu eldri heimildar til kaupa á eigin hlutum. Lagt er
til að heimild stjórnar í bráðabirgðaákvæði II, til kaupa á eigin hlutum, verði felld út og stjórn
verði, með nýju bráðabirgðaákvæði II, veitt heimild til aðalfundar félagsins árið 2020 til útgáfu
og sölu áskriftarréttinda að 100.000.000 nýjum hlutum í félaginu. Lagt er til að heimild stjórnar
til hækkunar hlutafjár til að mæta útgefnum áskriftarréttindum í þessum flokki gildi til 14. mars
2024. Jafnframt er lagt til að heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár vegna áskriftarréttinda
sem gefin hafa verið út á grundvelli A og B liðar bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum, sem
gildir til 14. júlí 2022, verði framlengd til loka árs 2022. Er það til að endurspegla nýtingartíma
þegar útgefinna áskriftarréttinda að fullu. Loks er lagt til að hámark útgefi na en ónýttra
áskriftarréttinda af heildarhlutafé félagsins, sem kveðið er um í C lið bráðabirgðaákvæðis IV,
verði lækkað úr 33,3% í 30,0%.
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru jafnframt á íslensku utan þess að árs-
reikningur er á ensku.
Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn ber að tilkynna þ ð skriflega til stjórnar
félagsins að minnsta kosti fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:30 laugardaginn
9. mars 2019.
Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal geta nafns frambjóðanda, kennitölu, heimilisfangs,
menntunar, upplýsinga um aðalstarf og starfsferil, hvenær viðkomandi tók fyrst sæti í stjórn
félagsins ef við á, önnur trúnaðarstörf (t.a.m. stjórnarstörf í öðrum félögum), hlutafjáreign í
félaginu, beint eða í gegnum tengda aðila. Þá skal einnig upplýsa um önnur tengsl við félagið
og hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa
sem eiga, einir eða í samstarfi við aðra, meira en 10% hlut í félaginu. Þeir einir eru kjörgengir
sem þannig hafa gefið kost á sér. Krafa um hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu, sbr. 7.
mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm dögum
fyrir aðalfundinn. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar munu liggja frammi hluthöfum til
sýnis á skrifstofu félagsins, að Borgartúni 25, 105 Reykjavík, sem og á heimasíðu félagsins,
eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995.
Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 14 dögum fyrir aðalfund. Umrædd
gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins,
www.kvika.is.
Hluthöfum er heimilt að senda umboðsmann sinn á hluthafafundinn og skal umboðsmaður í
slíkum tilvikum leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboð má leggja fram á fundinum eða
senda á skrifstofu bankans fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 16:00 á fundar-
stað.
Stjórn Kviku banka hf.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) verður haldinn að
Hótel Sögu fundarsal Kötlu II, þann 14. mars og hefst klukkan 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Málþing hefst að aðalfundi loknum, um kl. 15:00
Efni: Hver á Ísland?
Frummælendur á málþingi:
l Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri atvinnuvega –
og nýsköpunarráðuneytis.
l Sigurður Jónsson, hrl. stjórnarmaður í LLÍ.
l Magnús Leópoldsson, fasteignasali
Fundurinn er öllum opinn og bæði félagar í LLÍ og aðrir áhugasamir
eru hvattir til að mæta.
Fyrir hönd stjórnar LLÍ
Óskar Magnússon
2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
3
-B
C
1
8
2
2
7
3
-B
A
D
C
2
2
7
3
-B
9
A
0
2
2
7
3
-B
8
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K