Fréttablaðið - 28.02.2019, Side 10
Bankaráð Seðlabanka Íslands telur
óhætt að fullyrða að illa fari á því
að sömu einstaklingar beri ábyrgð
á rannsóknum og eftirliti annars
vegar og hins vegar um leið þeirri
kjarnastarfsemi Seðlabankans
að móta peningastefnu og vera til
ráðgjafar um stjórn efnahagsmála
landsins. Reynslan vegna vinnu
Seðlabankans við eftirlit með fjár-
magnshöftunum bendi eindregið til
þess að slíku fyrirkomulagi geti fylgt
verulegir ókostir.
Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í nýlegri greinargerð banka-
ráðsins sem skrifuð var að beiðni
Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð-
herra í kjölfar dóms Hæstaréttar í
nóvember í fyrra þar sem fimmtán
milljóna króna stjórnvaldssekt sem
Seðlabankinn lagði á Samherja var
felld úr gildi.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri tekur í svipaðan streng í bréfi
sem hann skrifaði forsætisráðherra
í lok síðasta mánaðar og var gert
opinbert í gær en þar segir hann
núverandi fyrirkomulag rann-
sókna á brotum á gjaldeyrislögum
ekki ganga. Óheppilegt sé að slík
starfsemi heyri beint undir seðla-
bankastjóra.
„Það þarf fjarlægð til að koma í
veg fyrir að mál séu persónugerð til
að skapa stöðu sem málsaðilar hafa
yfirleitt ekki gagnvart sérhæfðari
eftirlitsaðilum,“ segir í bréfi Más.
Í greinargerð bankaráðs er bent
á að við fyrirhugaða sameiningu
Seðlabankans og Fjármálaeftirlits-
ins, en vinna við hana hefur staðið
yfir frá því síðasta haust, muni fær-
ast til Seðlabankans margs konar
starfsemi sem sé í eðli sínu lík þeirri
sem bankinn hafi tekið að sér vegna
fjármagnshaftanna. Fjármálaeftir-
litið rannsaki enda ýmiss konar
meint brot á lögum og reglum og
refsi fyrir þau eða kæri til lögreglu
eða saksóknara.
„Reynslan vegna vinnu Seðla-
bankans við eftirlit með fjármagns-
höftunum bendir eindregið til þess
að því geti fylgt verulegir ókostir.
Að þeim þarf að huga vel við þessar
skipulagsbreytingar,“ segir banka-
ráðið. Með lagabreytingu árið 2010
var sem kunnugt er ákveðið að
Seðlabankinn færi með rannsókn á
meintum brotum á fjármagnshöft-
unum en áður hafði Fjármálaeftir-
litið haft það hlutverk með höndum.
Eftirlitið verði aðskilið
Sérstök verkefnisstjórn, sem heyrir
undir ráðherranefnd um efnahags-
mál og endurskipulagningu, hefur
síðustu mánuði unnið að frum-
varpi um breytingar á lögum um
Seðlabankann en eins og greint var
frá í Markaðinum í gær er í drögum
að frumvarpinu lagt til að bankinn
verði skipaður einum aðalseðla-
bankastjóra og þremur varabanka-
stjórum.
Er gert ráð fyrir að einn hinna
síðarnefndu fari með peningamál,
annar beri ábyrgð á fjármálastöðug-
leika og þriðji varabankastjórinn
verði yfir fjármálaeftirliti innan
sameiginlegrar stofnunar Seðla-
bankans og Fjármálaeftirlitsins.
Innlendir og erlendir sérfræðing-
ar, sem hafa verið stjórnvöldum til
ráðgjafar um málefni fjármálamark-
aðarins, hafa mælt með sameiningu
umræddra stofnana en sumir þeirra
hafa þó ekki talið æskilegt að Seðla-
bankinn fari með eftirlitshlutverk á
fjármálamarkaði.
Sir Andrew Large, fyrrverandi
aðstoðarbankastjóri Englands-
banka, benti til að mynda á árið
2012 að slíkt fyrirkomulag byði
upp á það að Seðlabankanum yrði
kennt um allt það sem betur mætti
fara í því samhengi. Slíkt gæti grafið
undan orðspori bankans og þann-
ig haft áhrif á getu hans til þess að
ná markmiðum sínum á öðrum
sviðum.
Svipuð sjónarmið komu fram í
skýrslu sem starfshópur um endur-
skoðun peningastefnunnar, sem
Ásgeir Jónsson hagfræðingur fór
fyrir, skilaði síðasta sumar. Mælti
hópurinn með því að Seðlabankinn
bæri ábyrgð á þjóðhagsvarúð og
eindarvarúð en að Fjármálaeftir-
litið sinnti áfram eftirlitshlutverki
á fjármálamarkaði.
Í áðurnefndri greinargerð banka-
ráðs Seðlabankans er jafnframt
tekið fram að samsetning ráðsins
og umboð þess frá Alþingi, en þing-
menn kjósa sjö manna bankaráð,
geri bankaráðið „afar óheppilegan
aðila“ til þess að hafa eftirlit með
framgöngu bankans í einstökum
refsimálum og enn síður til þess að
grípa inn í slík mál.
„Eðlilegra“ sé að dómstólar og
eftir atvikum saksóknarar eða lög-
regla eða umboðsmaður Alþingis
gegni því hlutverki að tryggja bank-
anum aðhald í refsimálum.
kristinningi@frettabladid.is
Kerfinu geta fylgt „verulegir ókostir“
Bankaráð Seðlabankans segir illa fara á því að sömu einstaklingar beri ábyrgð á eftirliti annars vegar og hins vegar þeirri kjarna-
starfsemi að móta peningastefnu. Það sýni reynslan. Seðlabankastjóri segir núverandi fyrirkomulag rannsókna ekki ganga.
Már: Markmiðið ekki að hámarka refsingar
Már Guðmundsson seðlabankastjóri skrifar í bréfi sínu til forsætisráð-
herra að markmiðið með framkvæmd fjármagnshaftanna hafi ekki
verið að hámarka refsingar. Takmarkið hafi fremur verið að láta höftin
halda en draga um leið eftir föngum úr neikvæðum hliðaráhrifum
þeirra.
Hann segir það ekki rétt sjónarhorn á málið að líta svo á að fram-
kvæmd haftanna hafi gengið illa vegna þess að ýmis kærumál hafi
ekki endað með sakfellingu fyrir dómstólum.
Í bókun bankaráðsmannanna Sigurðar Kára Kristjánssonar og
Þórunnar Guðmundsdóttur vegna greinargerðar ráðsins er bent á að
allir þeir sem hafi leitað réttar síns fyrir dómi og látið reyna á lögmæti
sektargerða Seðlabankans hafi haft sigur gegn bankanum.
Af dómum Hæstaréttar verði ekki dregnar aðrar ályktanir en að
ákvarðanir bankans við framkvæmd haftanna hafi verið „ólögmætar
heilt yfir“.
Már segir að til að byrja með hafi ekki gengið alveg eftir að láta
höftin halda en með reglubreytingum og rannsóknaraðgerðum hafi
höftin farið að virka eins og til hafi verið ætlast. Ekki megi gleyma í því
sambandi að aðgerðir bankans hafi haft töluverð fælingaráhrif, eins
og glögglega hafi mátt sjá eftir húsleitina hjá Samherja árið 2012.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir markmiðið með framkvæmd haftanna ekki hafa verið að hámarka
refsingar, heldur að láta þau halda en draga um leið úr neikvæðum hliðaráhrifum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Reynslan vegna
vinnu Seðlabank-
ans við eftirlit með fjár-
magnshöftunum bendir
eindregið til þess að því geti
fylgt verulegir ókostir.
Úr greinargerð bankaráðs Seðla-
bankans til forsætisráðherra
599 kr.pk.
Tilbúnar bollur frá Gæðabakstri, 2 stk.
2 bollur
í pakka!
Bolla
bolla ...
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
489 kr.pk.
Krónu vatnsdeigsbollur, 8 stk.
MARKAÐURINN
2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
3
-C
A
E
8
2
2
7
3
-C
9
A
C
2
2
7
3
-C
8
7
0
2
2
7
3
-C
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K