Fréttablaðið - 28.02.2019, Síða 58

Fréttablaðið - 28.02.2019, Síða 58
Bergrún segir ekki nóg að huga að lestrarhraðaviðmiðum barna heldur einnig lestrargleðinni. MYND/SIGTRYGGUR ARI Ma ð u r h e f ð i haldið að flestir væru sammála u m m i k i l -vægi vandaðra b a r n a b ó k a , “ segir Bergrún aðspurð um málefnið. „Það að barnabækur skipti máli og fátt sé meira gefandi en lestur góðra bóka. Í fyrra mátti hins vegar sjá athugasemdakerfin loga í tengslum við Láru-bækurnar hennar Birgittu Haukdal. Sumir fögnuðu því að nú ætti að skoða barnabækur ofan í kjölinn, myndskreytingarnar, efnis- tökin og orðavalið. Ræða málin og velta hlutum fyrir sér eins og hvort allt megi í barnabókum eða hvað geri barnabók góða eða vandaða. Um leið mátti heyra háværar raddir fólks sem fannst í raun óþarfi að taka gagnrýni á barnabækur alvar- lega því þetta væri jú „bara barna- bók“. Þessi orð, „bara barnabók“, eru eftirtektarverð. Hvaða skoðun sem hver og einn hafði á þessu ákveðna máli vorum við barna- bókahöfundar sammála um að það væri ekkert „bara“ við barnabækur. Þýðir ekki að tuða en hanga sjálf í símanum BESTA RÁÐIÐ SEM ÉG GET GEFIÐ FORELDR- UM ER ÞVÍ AÐ BYRJA Á SJÁLFUM SÉR. TAKA OFTAR UPP BÓK SJÁLF. ÞETTA GILDIR UM SVO MARGT Í UPPELDINU. VILJI ÉG AÐ BÖRNIN MÍN BORÐI HOLLAN MAT VERÐ ÉG FYRST AÐ FYLLA DISKINN MINN AF HOLLUM MAT. AF HVERJU ÆTTU ÞAU AÐ VILJA BORÐA HÝÐISHRÍSGRJÓN Á MEÐAN ÉG HÁMA Í MIG FRANSKAR? Þetta undarlega viðhorf er kveikjan að þema Gerðubergsráðstefnunnar í ár. Yfirskriftin er þessi f leygu orð „þetta er bara barnabók“ sem ég veit að fyrirlesararnir munu fara létt með að hrekja næsta laugardag,“ segir hún ákveðin. Síðustu misseri hefur læsisvanda íslenskra barna æ oftar borið á góma og umræðan í kringum hann töluverð sem Bergrún segir jákvætt. „Við viljum alls ekki að börnin okkar hætti að lesa eða tapi les- skilningnum. Góður lesskilningur er undirstaða svo margs í lífinu og vissulega þurfa börn að vera vel læs til að ráða betur við allt nám í framtíðinni. En þessi ákveðna orð- ræða skautar yfir aðra jafn mikil- væga þætti. Hvað með yndislestur og lestrargleði? Það að börn lesi sér ekki bara til gagns heldur til gamans. Að börn sæki í bækur bók- anna vegna, en ekki til að ná lestrar- hraðaviðmiðum.“ Foreldrarnir með símann í höndunum Flest vitum við að lestraráhug- inn er ekki einungis vakinn innan skólans heldur er nauðsyn að halda uppi virkni heima við og er ekki úr vegi að spyrja Bergrúnu um góð ráð í þeim efnum. „Hvað lestrar- hvatningu inni á heimilinu varðar hef ég ekkert viðmið annað en mitt eigið heimili. Það er vita vonlaust að foreldri sé alltaf með símann í hönd- unum, rennandi yfir Facebook eða að rífast á athugasemdakerfunum, og ætlast á sama tíma til þess að barnið á heimilinu kunni að sökkva sér niður í bók. Það segir sig sjálft að foreldrar breyta engu með því að tuða um mikilvægi lesturs á meðan þeir hanga sjálfir yfir kattamynd- böndum á YouTube. Besta ráðið sem ég get gefið foreldrum er því að byrja á sjálfum sér. Taka oftar upp bók sjálf. Þetta gildir um svo margt í uppeldinu. Vilji ég að börnin mín borði hollan mat verð ég fyrst að fylla diskinn minn af hollum mat. Af hverju ættu þau að vilja borða hýðishrísgrjón á meðan ég háma í mig franskar? Ef barnið vill alls ekki lesa er ágætt að líta í eigin barm og vera lesandi fyrirmynd.“ Unglingar sem lesa mikið snúa sér að bókum á ensku Bergrún bendir á að íslenskar bækur mættu koma út á f leiri tungumálum fyrir íslensk börn af öðrum uppruna. „Það þarf að hlúa betur að tvítyngdu börnunum, fylla hillur skólabókasafnanna af fjöl- breyttum bókakosti á móðurtungu sem flestra barna sem hér búa. Börn eru fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólík áhugasvið. Þau lifa hratt og vilja spennandi af þreyingu helst í gær. Ef við getum ekki skaffað þeim bækur sem svala lestrarþorstanum verða þau hratt afhuga bókum, eða skipta alfarið yfir í bækur á ensku. Þeir unglingar sem lesa mikið og hafa gaman af vönduðum bókum eru snöggir að bruna í gegnum þær örfáu unglingabækur sem út koma á íslensku fyrir jólin. Þess vegna snúa þau sér að enskunni. Við eigum stór- kostlega höfunda sem skrifa bækur fyrir börn og unglinga. Þetta eru bækurnar sem verða til þess að skapa framtíðarskáld sem halda íslenskunni lifandi um ókomin ár.“ bjork@frettabladid.is Bergrún Íris Sævars dóttir, barnabókahöfundur og teiknari, er ein þeirra sem standa að árlegri ráðstefnu um barna- og ungl- ingabókmenntir í Gerðubergi næst- komandi laugardag en gæði barnabóka hafa verið töluvert í umræðunni. FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 VERSLUN OKKAR Í REYKJAVÍK ER LOKUÐ Í DAG 28. FEBRÚAR VEGNA VÖRUTALNINGAR OPNUM AFTUR Á MORGUN KL. 1000 HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG! Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 2 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 3 -C A E 8 2 2 7 3 -C 9 A C 2 2 7 3 -C 8 7 0 2 2 7 3 -C 7 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.