Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Blaðsíða 10
10 18. janúar 2019FRÉTTIR Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN Á standið í Venesúela er skelfilegt en algjört efna- hagshrun hefur orðið í þessu fyrrverandi auðuga ríki sem býr yfir einum mestu olíulindum heims. Almenning- ur sveltur heilu hungri og nær al- gjör skortur er á lyfjum og öðrum nauðsynjum. Rúmlega ein milljón landsmanna hefur nú þegar flúið til Kólumbíu og ef opinberar spár ganga eftir munu um fjórar millj- ónir Venesúelamanna vera flúnar til Kólumbíu árið 2021. Allir von- ast til að finna vinnu þar, mat, lyf og öryggi en andstaðan við flótta- mennina fer vaxandi í Kólumbíu eins og víðar í Suður-Ameríku. Smyglarar hafa miklar tekjur af að flytja fólk frá Venesúela til Kól- umbíu og annarra ríkja. Mörgum reynist erfitt að greiða fyrir flutn- ingin enda peningar af skornum skammti. Þekkt er að smyglar- ar klippi hár af konum, sem þeir flytja yfir landamærin, og selji það til að hafa eitthvað upp úr krafsinu. Flestir þora ekki að fara yfir landamæri við hefðbundn- ar landamærastöðvar af ótta við að hermenn og landamæraverð- ir taki skilríki þeirra eða eyðileggi þau. Þess í stað tekst fólk á hend- ur hættulega ferð í óbyggðum þar sem ýmsar hættur leynast. Margir þurfa að fara mörg hundruð kíló- metra leið sem liggur jafnvel að hluta yfir allt að rúmlega 5.000 metra háa fjallgarða og hitastig- ið getur sveiflast frá 30 gráða hita niður fyrir frostmark. Allt er þetta gert til að komast til stórborganna Bogotá og Medellin eða jafnvel áfram og til Ekvador. Talið er að 50 manns leggi af stað í ferð sem þessa á degi hverjum. Á þriðju milljón hefur yfirgefið landið Í kjölfar þess að olíuverð snar- lækkaði fyrir fjórum árum hrundi efnahagur Venesúela og ekki bæta stjórnarhættir í landinu úr skák en sósíalistastjórn landsins hefur tek- ist vægast sagt illa upp við að glíma við ástandið. Auk þess er spilling mikil og á meðan stór hluti þjóðar- innar á vart til hnífs og skeiðar maka sumir úr hinni pólitísku el- ítu krókinn og safna miklum auði. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 2,3 milljónir Venesúelamanna hafi flúið land á undanförnum fjórum árum. Það eru rúmlega sjö prósent af íbúum landsins. Staðan er mjög alvarleg í landinu, mikill skortur er á helstu nauðsynjum á borð við mat og lyf og verðbólgan er stjórnlaus en Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn áætl- ar að hún sé nú 1,4 milljónir pró- senta. Þetta veldur því að efri millistéttin er orðin fátæk. Sem dæmi um verðbólguna má nefna að í ágúst kostaði kaffibolli í höf- uðborginni Caracas tvær milljónir bólivara en árið áður kostaði hann 2.000 bólivara. Víða situr fólk og saumar töskur úr peningaseðlun- um sínum og reynir að selja þær. Seðlarnir eru mjög slitsterkir og því kjörnir til töskugerðar. Forseti landsins, Nicolás Maduro, reyndi í örvæntingu að bregðast við óðaverðbólgunni í sumar með því að taka fimm núll aftan af gjaldmiðlinum og hleypti nýrri rafmynt af stokkunum en hún er tengd olíuverðinu. Ekkert gefur til kynna að sú aðgerð hafi gert gagn. Gríðarlegur fólksflótti Á síðasta ári skráðu innflytjendayf- irvöld í Kólumbíu rúmlega 853.000 Venesúelamenn sem komu til landsins á leið sinni til annarra ríkja í Suður-Ameríku. Við þennan fjölda bætist sú milljón Venesú- elamanna sem býr nú í Kólumbíu. Flestir fara yfir landamærin með því að nota Simón Bolívar-brúna í Cúcuta. Á degi hverjum fara 30.000 manns yfir landamærin til Kólumbíu til að vinna, versla eða borða. Um 10 prósent þeirra koma í þeim eina tilgangi að fá mat í móttöku kirkjunnar nærri brúnni. Daglega fara um 3.000 Venesúela- menn yfir brúna og horfa ekki til baka og koma ekki aftur. Góðar móttökur en blikur á lofti Fram að þessu hafa stjórnvöld í Kólumbíu staðið fast á því að taka vel á móti flóttamönnunum en nýkjörinn forseti landsins, Ivan Duque, kynnti þá stefnu formlega í nóvember. Hann hvatti alla til að taka vel á móti flóttamönnunum. Þrátt fyrir pólitíska og efnahags- lega erfiðleika í Venesúela líta Kól- umbíumenn á þessa nágranna sem systur og bræður sína. Bæði ríkin voru frelsuð undan oki Spánverja af Simón Bolívar og um skamma hríð voru þau eitt, sjálfstætt ríki. Í gegn- um tíðina hafa landamærasvæði ríkjanna runnið mikið saman efna- hags- og félagslega. Þótt Kólumbíumenn vildu loka landamærunum og stöðva flótta- mannastrauminn er það með öllu útilokað. Landamæri ríkjanna eru rúmlega 2.200 kílómetra löng og ekki hægt að hafa stjórn á þeim. Á sumum svæðum ráða smyglarar og uppreisnarhópar lögum og lofum. Í Brasilíu var gripið til þess ráðs í ágúst að loka landamærun- um tímabundið og skömmu síð- ar byrjuðu stjórnvöld í Ekvador og Perú að neita Venesúelamönnum um aðgang nema þeir væru með vegabréf en fæstir geta uppfyllt þá kröfu þar sem það hefur alltaf nægt að vera aðeins með nafnskír- teini. Efnt hefur verið til mótmæla í Ekvador gegn flóttamönnum og í Brasilíu réðst reiður múgur á tjald- búðir flóttamanna og rak um 1.000 Venesúelamenn á flótta. Í landamærabænum Cúcuta finnur fólk mikið fyrir flóttamanna- straumnum og stærsta sjúkrahús bæjarins tekur aðeins á móti Venesúelamönnum sem koma til Kólumbíu til að eignast börn eða fá meðhöndlun við einföldum sjúk- dómum. Skólar eiga fullt í fangi með að taka við nemendum frá Venesúela sem hafa leitað þangað þar sem menntakerfið í Venesúela er hrunið. Vaxandi óánægju er far- ið að gæta hjá heimamönnum með þetta. Áður fyrr nutu íbúar Cúcuta góðs af nálægðinni við Venesú- ela. Þeir gátu keypt hræódýrt bens- ín í Venesúela og sótt sér háskóla- menntun fyrir aðeins fimmtung þess sem það kostar að verða sér úti um slíka menntun í Kólumbíu. Dökkar framtíðarhorfur Kólumbíska utanríkisráðuneytið vinnur nú út frá þrenns konar hugsanlegri framtíðarsýn; raun- verulegri, bjartsýnni og svart- sýnni. Ef ástandið breytist ekki í Venesúela reiknar ráðuneytið með að árið 2021 verði 2,17 millj- ónir Venesúelamanna í Kólumbíu en ef ástandið í Venesúela batn- ar aðeins gæti þessi talað lækkað um nokkur hundruð þúsund. Ef ástandið versnar enn frekar telur ráðuneytið að fólksstraumurinn gæti aukist mikið og að á þremur árum færu fjórar milljónir Venes- úelamanna til Kólumbíu. Carlos Holmes Trujillo, utan- ríkisráðherra landsins, segir að nú standi Kólumbía frammi fyr- ir áskorunum af áður óþekktri stærðargráðu, einhverju sem landið hafi aldrei áður upplifað. Ríkisstjórnin hefur verið hikandi við að gefa upp áætlaðan kostnað vegna flóttamannanna en sam- kvæmt spá ráðuneytisins gæti hann orðið mikill eða um tíu pró- sent af heildarútgjöldum ríkis- ins. Ekvador, Perú, Argentína og önnur ríki í Suður-Ameríku geta einnig búist við mikilli holskeflu af Venesúelamönnum ef ástandið batnar ekki. n Caracas Eitt af fjölmörgum fátækrahverfum í landi sem á miklar náttúruauðlindir. Venesúela Mikil ókyrrð í stjórnmálum og efnahagsmálum undanfarin ár. Örvæntingarfullir Venesúela- menn streyma til Kólumbíu n Skortur á mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.