Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Blaðsíða 22
22 18. janúar 2019AÐSEND GREIN Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum Við þurfum áreiti U ndir vorið á árinu sem leið gerði NATÓ árás á Sýrland. Sú árás var gerð í okkar nafni, í nafni Íslands. Þetta var okkur sagt að væri hefnd fyrir eiturefnaárás Sýrlandsstjórnar á sína eigin þegna nokkrum dög- um fyrr. Síðar kom í ljós að ekki var fót- ur fyrir þessum ásökunum, allt upplogið. Mikið fór fyrir fréttum af þessari uppdiktuðu eiturefnaárás sýrlenskra stjórnvalda en minna hefur farið fyrir eftirmálum í frétt- um, þar á meðal vitnaleiðslum þeirra sem ranglega voru bornir þessum ásökunum. Með öðrum orðum, þegar á heildina er litið, hafa ósannindin ekki þótt fréttaefni í aðildarríkj- um NATÓ, hvað þá að stjórnmála- menn hafi þurft að ræða ábyrgð sína. Sama var um Líbíu. Ósannindi og lygar um Líbíu í aðdraganda árása NATÓ á það land árið 2011 hafa ekki verið brotnar til mergj- ar í ríkjum „vinaþjóða“ Íslands í NATÓ. Fjórða valdið, eins og megin- straums fjölmiðlaheimurinn stundum oflátungslega kall- ar sig, fylgir ríkisvaldinu að málum, eins fast á hæla þess og rófan fylgir hundi sín- um. Beeley og Bartlett Í mars í fyrra kom hingað til lands bresk fréttakona að nafni Vanessa Beeley, þaulkunnug mál- efnum MiðAust- urlanda frá barn- æsku. Á tímum Suez-stríðsins, á sjötta áratug síð- ustu aldar. Var fað- ir hennar rómaður í bresku utanríkisþjónustunni fyr- ir sérþekkingu á málefnum Mið- -Austurlanda og varð hann sendi- herra Breta í Sádi- Arabíu og síðar Egyptalandi og hefur Vanessa ver- ið á þeim slóðum síðan. Ekki svo að skilja að sú slóð vísi hinn eina rétta veg, nálægðin getur meira að segja þvert á móti verið varasöm þegar hlutlægrar yfir sýnar er þörf. Vanessu Beeley var almennt vel tekið í Safnahúsinu í Reykja- vík þegar hún flutti fyrirlestur sinn þar um málefni Sýr- lands en afleitar viðtökur fékk hún frá hendi þeirra sem matreiða fyr- ir okkur fréttir á stærri fjölmiðl- um okkar, og vísa ég þar sérstak- lega til Ríkisútvarpsins. Þar á bæ virtust menn hafa „googlað“ fyr- irlesarann og séð hve margir voru tilbúnir að tala hann niður. Nær hefði verið að takast á við inntak þess sem Vanessa Beeley hafði fram að færa varðandi stríð sem svo augljóslega er tengt inn í sjálfa mænu þeirra sem stýra örlögum mannkynsins í krafti auðs og valda. Þeir hinir sömu víla ekki fyrir sér að sverta alla þá sem tala á annan veg en þann sem þeim þóknast. Þetta skýrir „googlið“ um Beeley en einnig um Bartlett! Gagnrýnin á hina ógagnrýnu Nú er nefnilega annar gagnrýninn fyrirlesari kominn hingað til lands, sem einnig mun kynna athugan- ir sínar í Safnahúsinu í hádegis- fyrirlestri. Það verður næstkom- andi laugardag. Þetta er kanadíska fréttakonan Eva Bartlett. Hún hef- ur fylgst mjög náið með gangi mála í Mið-Austurlöndum, sér- staklega í Sýrlandi síðustu árin en áður í Palestínu, en þar dvaldi hún um alllangt skeið bæði á Vest- urbakkanum og á Gazasvæðinu. Bæði frá Palestínu og Sýrlandi hef- ur verið stríður straumur frétta frá Evu Bartlett í sjónvarpsstöðvum, blöðum og tímaritum. Rússneska sjónvarpið hefur birt fréttir frá Evu í talsverðum mæli og þykir það nóg ástæða fyrir fordæmingu. Rússar beita sér fyrir hagsmunum þvert á NATÓ og er vissulega mik- ilvægt að hafa allt þetta í huga, en þá með opin augu en ekki bund- ið fyrir þau. Þannig er það stað- reynd, sem sjaldan er hampað, að NATÓ-ríki studdu ISIS-samtökin og sambærileg hryðjuverkasam- tök í Sýrlandi, þar til þau komust yfir olíulindir í landamærahéruð- um að Írak. Fyrirlestur Evu Bartlett verður athyglisverður, því þori ég að lofa, en ekki kæmi mér á óvart að hann verði jafnframt umdeildur því hún talar tæpitungulaust og er gagn- rýnin á hina ógagnrýnu! Líbíu-lygar afhjúpaðar Á fundinum verða einnig með innlegg Berta Finnbogadóttir, sem fylgst hefur náið með gangi mála í Mið-Austrinu og fréttaflutningi þaðan, svo og Jón Karl Stefánsson fræðimaður sem hefur gert úttekt á fréttaflutningi norskra fjölmiðla á árásinni á Líbíu. Hann hefur skoðað fréttaflutninginn annars vegar og hins vegar atburðarásina eftir að hamaganginum linnti og hið sanna kom í ljós. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum meira áreiti inn í um- fjöllun um erlend málefni. Ég þykist greina að fréttastreyminu frá átakasvæðum, þar sem miklir hagsmunir stórvelda eru í húfi, sé oftar en ekki handstýrt af hálfu þessara sömu stórvelda. Og er þar hvert sem annað. Um allt þetta verða reidd fram dæmi á fundinum. Leitum óhrædd sannleikans Að lokum um líkindareikning. Ríki sem eiga mikið undir í stríðsátök- um verja óheyrilegum upphæðum fjár í kaup á sprengjum og vígtól- um. Þau sem byggja á lýðræðis- legum grunni þurfa að gæta þess að hafa almannaviljann í löndum sínum á bak við sig. Þá er ekki úr vegi að spyrja hvort ekki séu talsverðar líkur á því að þau reyni að hafa áhrif á það hvaða fréttir eru fluttar af vettvangi og hvernig þær fréttir eru fluttar. Þarna er hætt við að veruleikinn verði afskræmdur enda er það tak- markið. Hve langt er gengið í afskræm- ingu sannleikans hygg ég þó að komi flestum þeim á óvart sem leggja sig eftir því að grafast fyrir um sannleikann. En það þurfum við hins vegar að gera ef við viljum standa vörð um upplýst og réttsýnt samfélag. n Ögmundur Jónasson, fyrrver- andi þingmaður og ráðherra. Eva Bartlett Kanadísk fréttakona sem hefur fylgst náið með Mið-Austurlöndum.„Ég þykist greina að fréttastreyminu frá átakasvæðum, þar sem miklir hagsmunir stórvelda eru í húfi, sé oftar en ekki handstýrt af hálfu þessara sömu stórvelda. Ögmundur Jónasson Þing- maður frá 1995 til 2016.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.