Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Qupperneq 10
10 18. janúar 2019FRÉTTIR
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Á
standið í Venesúela er
skelfilegt en algjört efna-
hagshrun hefur orðið í
þessu fyrrverandi auðuga
ríki sem býr yfir einum mestu
olíulindum heims. Almenning-
ur sveltur heilu hungri og nær al-
gjör skortur er á lyfjum og öðrum
nauðsynjum. Rúmlega ein milljón
landsmanna hefur nú þegar flúið
til Kólumbíu og ef opinberar spár
ganga eftir munu um fjórar millj-
ónir Venesúelamanna vera flúnar
til Kólumbíu árið 2021. Allir von-
ast til að finna vinnu þar, mat, lyf
og öryggi en andstaðan við flótta-
mennina fer vaxandi í Kólumbíu
eins og víðar í Suður-Ameríku.
Smyglarar hafa miklar tekjur af
að flytja fólk frá Venesúela til Kól-
umbíu og annarra ríkja. Mörgum
reynist erfitt að greiða fyrir flutn-
ingin enda peningar af skornum
skammti. Þekkt er að smyglar-
ar klippi hár af konum, sem þeir
flytja yfir landamærin, og selji
það til að hafa eitthvað upp úr
krafsinu. Flestir þora ekki að fara
yfir landamæri við hefðbundn-
ar landamærastöðvar af ótta við
að hermenn og landamæraverð-
ir taki skilríki þeirra eða eyðileggi
þau. Þess í stað tekst fólk á hend-
ur hættulega ferð í óbyggðum þar
sem ýmsar hættur leynast. Margir
þurfa að fara mörg hundruð kíló-
metra leið sem liggur jafnvel að
hluta yfir allt að rúmlega 5.000
metra háa fjallgarða og hitastig-
ið getur sveiflast frá 30 gráða hita
niður fyrir frostmark. Allt er þetta
gert til að komast til stórborganna
Bogotá og Medellin eða jafnvel
áfram og til Ekvador. Talið er að
50 manns leggi af stað í ferð sem
þessa á degi hverjum.
Á þriðju milljón hefur yfirgefið
landið
Í kjölfar þess að olíuverð snar-
lækkaði fyrir fjórum árum hrundi
efnahagur Venesúela og ekki bæta
stjórnarhættir í landinu úr skák en
sósíalistastjórn landsins hefur tek-
ist vægast sagt illa upp við að glíma
við ástandið. Auk þess er spilling
mikil og á meðan stór hluti þjóðar-
innar á vart til hnífs og skeiðar
maka sumir úr hinni pólitísku el-
ítu krókinn og safna miklum auði.
Sameinuðu þjóðirnar áætla að um
2,3 milljónir Venesúelamanna hafi
flúið land á undanförnum fjórum
árum. Það eru rúmlega sjö prósent
af íbúum landsins.
Staðan er mjög alvarleg í
landinu, mikill skortur er á helstu
nauðsynjum á borð við mat og lyf
og verðbólgan er stjórnlaus en Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn áætl-
ar að hún sé nú 1,4 milljónir pró-
senta. Þetta veldur því að efri
millistéttin er orðin fátæk. Sem
dæmi um verðbólguna má nefna
að í ágúst kostaði kaffibolli í höf-
uðborginni Caracas tvær milljónir
bólivara en árið áður kostaði hann
2.000 bólivara. Víða situr fólk og
saumar töskur úr peningaseðlun-
um sínum og reynir að selja þær.
Seðlarnir eru mjög slitsterkir og
því kjörnir til töskugerðar.
Forseti landsins, Nicolás
Maduro, reyndi í örvæntingu að
bregðast við óðaverðbólgunni í
sumar með því að taka fimm núll
aftan af gjaldmiðlinum og hleypti
nýrri rafmynt af stokkunum en
hún er tengd olíuverðinu. Ekkert
gefur til kynna að sú aðgerð hafi
gert gagn.
Gríðarlegur fólksflótti
Á síðasta ári skráðu innflytjendayf-
irvöld í Kólumbíu rúmlega 853.000
Venesúelamenn sem komu til
landsins á leið sinni til annarra
ríkja í Suður-Ameríku. Við þennan
fjölda bætist sú milljón Venesú-
elamanna sem býr nú í Kólumbíu.
Flestir fara yfir landamærin með
því að nota Simón Bolívar-brúna
í Cúcuta. Á degi hverjum fara
30.000 manns yfir landamærin til
Kólumbíu til að vinna, versla eða
borða. Um 10 prósent þeirra koma
í þeim eina tilgangi að fá mat í
móttöku kirkjunnar nærri brúnni.
Daglega fara um 3.000 Venesúela-
menn yfir brúna og horfa ekki til
baka og koma ekki aftur.
Góðar móttökur en blikur á lofti
Fram að þessu hafa stjórnvöld í
Kólumbíu staðið fast á því að taka
vel á móti flóttamönnunum en
nýkjörinn forseti landsins, Ivan
Duque, kynnti þá stefnu formlega
í nóvember. Hann hvatti alla til að
taka vel á móti flóttamönnunum.
Þrátt fyrir pólitíska og efnahags-
lega erfiðleika í Venesúela líta Kól-
umbíumenn á þessa nágranna sem
systur og bræður sína. Bæði ríkin
voru frelsuð undan oki Spánverja af
Simón Bolívar og um skamma hríð
voru þau eitt, sjálfstætt ríki. Í gegn-
um tíðina hafa landamærasvæði
ríkjanna runnið mikið saman efna-
hags- og félagslega.
Þótt Kólumbíumenn vildu loka
landamærunum og stöðva flótta-
mannastrauminn er það með öllu
útilokað. Landamæri ríkjanna eru
rúmlega 2.200 kílómetra löng og
ekki hægt að hafa stjórn á þeim. Á
sumum svæðum ráða smyglarar og
uppreisnarhópar lögum og lofum.
Í Brasilíu var gripið til þess
ráðs í ágúst að loka landamærun-
um tímabundið og skömmu síð-
ar byrjuðu stjórnvöld í Ekvador og
Perú að neita Venesúelamönnum
um aðgang nema þeir væru með
vegabréf en fæstir geta uppfyllt
þá kröfu þar sem það hefur alltaf
nægt að vera aðeins með nafnskír-
teini. Efnt hefur verið til mótmæla
í Ekvador gegn flóttamönnum og í
Brasilíu réðst reiður múgur á tjald-
búðir flóttamanna og rak um 1.000
Venesúelamenn á flótta.
Í landamærabænum Cúcuta
finnur fólk mikið fyrir flóttamanna-
straumnum og stærsta sjúkrahús
bæjarins tekur aðeins á móti
Venesúelamönnum sem koma til
Kólumbíu til að eignast börn eða fá
meðhöndlun við einföldum sjúk-
dómum. Skólar eiga fullt í fangi
með að taka við nemendum frá
Venesúela sem hafa leitað þangað
þar sem menntakerfið í Venesúela
er hrunið. Vaxandi óánægju er far-
ið að gæta hjá heimamönnum með
þetta. Áður fyrr nutu íbúar Cúcuta
góðs af nálægðinni við Venesú-
ela. Þeir gátu keypt hræódýrt bens-
ín í Venesúela og sótt sér háskóla-
menntun fyrir aðeins fimmtung
þess sem það kostar að verða sér
úti um slíka menntun í Kólumbíu.
Dökkar framtíðarhorfur
Kólumbíska utanríkisráðuneytið
vinnur nú út frá þrenns konar
hugsanlegri framtíðarsýn; raun-
verulegri, bjartsýnni og svart-
sýnni. Ef ástandið breytist ekki
í Venesúela reiknar ráðuneytið
með að árið 2021 verði 2,17 millj-
ónir Venesúelamanna í Kólumbíu
en ef ástandið í Venesúela batn-
ar aðeins gæti þessi talað lækkað
um nokkur hundruð þúsund. Ef
ástandið versnar enn frekar telur
ráðuneytið að fólksstraumurinn
gæti aukist mikið og að á þremur
árum færu fjórar milljónir Venes-
úelamanna til Kólumbíu.
Carlos Holmes Trujillo, utan-
ríkisráðherra landsins, segir að
nú standi Kólumbía frammi fyr-
ir áskorunum af áður óþekktri
stærðargráðu, einhverju sem
landið hafi aldrei áður upplifað.
Ríkisstjórnin hefur verið hikandi
við að gefa upp áætlaðan kostnað
vegna flóttamannanna en sam-
kvæmt spá ráðuneytisins gæti
hann orðið mikill eða um tíu pró-
sent af heildarútgjöldum ríkis-
ins. Ekvador, Perú, Argentína og
önnur ríki í Suður-Ameríku geta
einnig búist við mikilli holskeflu
af Venesúelamönnum ef ástandið
batnar ekki. n
Caracas Eitt af fjölmörgum
fátækrahverfum í landi sem á
miklar náttúruauðlindir.
Venesúela Mikil ókyrrð í
stjórnmálum og efnahagsmálum
undanfarin ár.
Örvæntingarfullir Venesúela-
menn streyma til Kólumbíu
n Skortur á mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is