Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS - VIÐTAL 18. janúar 2019
T
ónlist hefur alltaf verið
fyrir ferðarmikil í starfi og
leik Páls Eyjólfssonar, eða
Palla eins og hann er alltaf
kallaður, hann starfar í einni vin-
sælustu hljómsveit síðustu ára-
tuga, er umboðsmaður konungs
rokksins og á stóran þátt í öflugu
menningarlífi Hafnarfjarðar.
Blaðamaður DV settist niður
með Palla og ræddi menningarlíf-
ið í Bæjarbíói Hafnarfjarðar, tón-
listina, umboðsmennskuna og
æskuna í Vestmannaeyjum.
„Til að svona geti virkað þá
þurfa allir að leggja sig fram:
rekstraraðilar, bæjarfélagið og
samfélagið og það hefur virkað
hér og ég myndi segja að starf-
semin hér sé sýnidæmi um hvern-
ig sveitarfélög geta með öflugum
stuðningi og jákvæðum vilja gert
svona með rekstraraðilum,“ segir
Palli um Bæjarbíó í Strandgötu
í Hafnarfirði, en tvö ár eru síðan
hann tók við rekstri hússins, í des-
ember 2016, ásamt Pétri Stephen-
sen. Ég get svo sannarlega þakk-
að Pétri fyrir að ég er hér í dag því
hann lagði hart að mér að koma
með sér í að setja líf í Bæjarbíó.
Hafði húsið þá verið lokað fyrir
almenna viðburði í tæpa tvo ára-
tugi en Kvikmyndasafn Íslands var
áður með húsið og var með bíó-
sýningar þar tvisvar í viku. „Árið
2014 var reksturinn boðinn út og
þá fékk Lista- og menningarfé-
lag Hafnarfjarðar húsið og var sá
hópur brautryðjandi í að húsið
var opnað fyrir almenningi og síð-
an tókum við við árið 2016. Bæjar-
búar hafa tekið okkur vel frá fyrsta
degi.“
Um 200 viðburðir eru framund-
an á árinu 2019 og fer viðburðum
aðeins fjölgandi, 90 prósent af því
eru tónleikar, einnig er þar uppi-
stand, þjónusta við Hafnarfjarðar-
bæ, eins og stjórnendafundir, bíó,
bókahátíð og barnamenningarhá-
tíð, einnig koma grunnskólarnir
og félagsmiðstöðvarnar inn með
starfsemi á haustin, auk þess sem
Flensborg er þar með leiksýningar.
„Þetta er Menningarhús Hafnar-
fjarðar, þannig að það er eðlilegt
að bæjarfélagið hafi forgang.“
Mathiesen stofa kærkomin
viðbót
Mikil breyting varð á húsinu í byrj-
un desember þegar Mathiesen
stofa var opnuð í húsinu við
hliðina, hinu víðfræga Mathiesen
húsi, þar sem fyrsta deildaskipta-
verslunin var. „Þessi viðbót við
húsið var algjörlega nauðsyn-
leg strax frá upphafi. Bæjarbíó er
frá árinu 1945 og er friðað þannig
að þar má engu breyta, það vant-
aði aukna salernisaðstöðu og að-
stöðu fyrir fólk til að setjast niður,
fyrir og eftir viðburði. Við sjáum að
fólk kemur núna fyrr og situr líka á
eftir, við lokum samt alltaf á mið-
nætti.
Okkur ber að taka ábyrgð á að
það sé í lagi með húsið og það ger-
um við meðal annars með því að
vera ekki með opið fram á nótt.
Eina sem má breyta eru hlut-
ir sem eru afturkræfir, eins og að
koma upp hurð milli húsanna, en
það var eftir ströngum fyrirmæl-
um og eftirliti arkitekta, það var
passað vel upp á það. Við erum í
góðu sambandi við minjavörðinn
í Hafnarfirði og gerum ekkert hér
við húsið, nema spyrja leyfis áður.“
Stjörnum prýdd gata og Hjarta
Hafnarfjarðar
„Við erum á þeim stað núna sem
við ætluðum að vera á eftir fimm
ár og eitt markmiðanna var að
vera með 200 viðburði á ári, sem er
að ganga eftir núna á þriðja árinu
okkar. Við ætlum einnig að fara að
framleiða sjálf nokkra viðburði. Og
síðan erum við með nýtt verkefni,
Stjörnur íslenskrar tónlistar, fyrstu
„Hall of Fame“-götuna á Íslandi,
þar sem lagðar verða stjörnur í
götuna fyrir framan húsið,“ segir
Palli.
Stefnan er að leggja niður eina
stjörnu á ári, en í ár verða settar
niður 2–3 til að koma mynd á ver-
kefnið. Ekki er opinbert enn hvaða
listamaður fær fyrstu stjörnuna,
en eins og Palli segir: „Ég tel það
augljóst að við byrjum á Björgvini
Halldórssyni, sem er stærsti tón-
listarmaður Hafnarfjarðar fyrr og
síðar, með fullri virðingu fyrir öll-
um öðrum.
Fyrir tveimur árum byrjuðum
við með umfangsmikið langtíma-
verkefni, sem heitir Hjarta Hafnar-
fjarðar, sem er bæjar- og tónlist-
arhátíð, sem við erum að þróa hér
í húsinu með bænum. Ég hef búið
í Hafnarfirði frá árinu 2006 og það
er með ólíkindum að hér sé engin
bæjarhátíð.“
Árið 2017 var byrjað smátt með
tveggja daga hátíð, í fyrra var hún
lengd í fjóra daga, götunni lokað
fyrir framan húsið og tjald sett upp
á móti húsinu, þar sem veitinga-
staðirnir Krydd og Tilveran buðu
upp á mat, og tónleikum í Bæjar-
bíói var varpað á skjá í tjaldinu og
útitónleikar voru í boði eftir að
tónleikum inni í húsinu lauk.
q
20% afsláttur!
www.igf.isFlokkaðu HÉR
af flokkunarílátum
út febrúar
„Bæjarbíói
hefur
verið vel tekið
frá fyrsta degi
Bæjarbúar hafa tekið
rekstri Bæjarbíós í höndum
Palla vel frá fyrsta degi.
MYND: HANNA/DV
„Það sem ég
geri, geri ég
af ástríðu“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Tónlist hefur alltaf verið fyrirferðarmikil í starfi og
leik Páls Eyjólfssonar, eða Palla eins og hann
er alltaf kallaður, hann starfar í einni vinsælustu
hljómsveit síðustu áratuga, er umboðsmaður kon-
ungs rokksins og á stóran þátt í öflugu menningarlífi
Hafnarfjarðar.
Blaðamaður DV settist niður með Palla og ræddi
menningarlífið í Bæjarbíói Hafnarfjarðar, tónlistina,
umboðsmennskuna og æskuna í Vestmannaeyjum.