Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS - VIÐTAL 18. janúar 2019
við gömlu höfnina
Eilíf hamingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
við gömlu höfnina
Eilíf hamingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
við gömlu höfnina
Eilíf hamingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
við gömlu höfnina
Eilíf h mingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í ef irrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
HÁDEGISTILBOÐ VIRKA DAGA
GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT,
HUMARSÚPA & BRAUÐ
2.850
Í ár verður hátíðin í viku og færð
framar í sumarið, í júlí.
„Við finnum að það er mikill
áhugi fyrir þessu verkefni.
Við stefnum á, þetta árið, að
taka á móti 50–70 þúsund manns
og það hefur gríðarlega góð áhrif
út í samfélagið á svo margan hátt
að eiga svona miðju, að eiga svona
hjarta sem dregur marga í götuna,
þetta hefur svo mikið vægi fyrir
þjónustuaðila, veitingaaðila, ekki
bara okkur, heldur alla í kringum
okkur,“ segir Palli. „Á næstu fimm
árum er ég að vonast til að Bæjar
bíó verði eitt risastórt samfélags
legt hjarta í Hafnarfirði, sem tekur
á móti alls konar menningu, við
burðum og uppákomum og verði
styrkur út á við fyrir svo margt
annað í þjónustu og samfélaginu.
Og við horfum á að eftir fimm ár
verði Hjarta Hafnarfjarðar, sem
byrjaði sem 800 manna hátíð,
orðin að 30 þúsund manna hátíð,
sem er íbúafjöldi Hafnarfjarðar.
Ég horfi björtum augum til næstu
fimm ára í Hafnarfirði.“
Lífið með Pöpum – Hljómsveit í
meira en 30 ár
„Bara strákur úr Vestmannaeyj
um,“ svarar Palli, aðspurður hver
hann sjálfur er. Þar er hann
fæddur árið 1966 og
uppalinn. „Það var
dásamlegt að alast
upp í Eyjum, mikið
frelsi og nóg að gera
og þaðan á ég ótal
minningar.“
Í Eyjum byrjaði
Palli að sýsla við
tónlistina, þrátt fyrir að foreldrar
hans hafi lítið verið í tónlist.
„Pappi var djassunnandi og einn
af frumkvöðlum djasshátíðar um
hvítasunnuna í Eyjum, „Dagar lita
og tóna“, og mamma spilaði á gítar
og var í kirkjukórnum,“ segir Palli.
Hann byrjaði að læra á blokk
flautu og fór aðeins í píanónám og
segist hafa alist upp við tónlistina
frá níunda áratugnum. „Við feng
um gott tónlistarlegt uppeldi hjá
Ragga Sjonna, sem var með plötu
búðina í Eyjum, maður keypti 1–2
plötur í viku og hann var dugleg
ur að halda að okkur músík. Her
mann Ingi, vinur minn og hljóm
sveitarmeðlimur Papanna, kynnti
Bob Dylan, Simon og Garfunkel,
síðan fyrir mér – þetta folkdæmi.“
Palli kláraði grunnskóla og
flutti til Reykjavíkur strax eftir ní
unda bekk. Árið 1986 stofnaði
hann hljómsveitina Papa ásamt
Hermanni Inga Hermannssyni,
söngvara í Logum, og Georg Ólafs
syni. Mannskapurinn hefur breyst
í gegnum árin, Ingvar Jónsson
hætti sem söngvari um aldamótin
og Matti Matt kom inn í stað
inn. „Við spiluðum alltaf ofboðs
lega mikið, fjögur kvöld á hverjum
stað í hverri viku, stundum yfirgaf
maður varla miðbæinn í heilan
mánuð. Upp úr aldamótum
áttum við nokkur risastór
ár, gáfum út plöturn
ar Riggarobb og Þjóð
sögu og báðar urðu
platínuplötur á sama
árinu. Í dag koma
Papar fram nokkrum
sinnum á ári, meira
bara til að halda í félagsskapinn.
Þetta verður eins og allt ann
að í lífinu, þetta verður venjulegt,“
svarar Palli, aðspurður hvernig
hafi verið að vera svona eftirsóttur
og í mikilli keyrslu líkt og Paparnir
voru. „Þetta verður bara rútína og
hluti af manni, á tímabili gerðum
við ekkert annað en þetta. Þetta
var rosagaman og er enn, annars
væri ég hættur því.“
Alþýðuhúsið í Vestmannaeyjum
Ræturnar í Eyjum ollu því að Palli,
ásamt öðrum, festi kaup á Alþýðu
húsinu í Vestmannaeyjum og var
ráðist í gagngerar endurbætur
og húsið opnað í byrjun október
árið 2018 með tónleikum Bubba
og DIMMU. „Þegar þetta tæki
færi kom þá sáum við að þetta
hefur mikil samlegðaráhrif og
er ótrúlega gaman. Alþýðuhús
ið er menningarhúsið í Eyjum,
líkt og Bæjarbíó í Hafnarfirði, það
er eldra, byggt árið 1927 og í báð
um húsum eiga þrjár kynslóðir
minningar um böll, bíó, tónleika
og myndlistarsýningar, og í Eyj
um, Lundaböllin. Við höfum sama
metnað fyrir húsinu, og vinnum
eftir sömu stefnu og í Bæjarbíói.
Þar er framundan metnaðarfull
dagskrá og gaman að sjá hvað
Eyjamenn hafa tekið vel í þetta.
Við leggjum upp úr því að að
staða listamanna sem til okkar
koma sé góð, fullkomin tæki og
tól og að listamenn geti komið
án þess að bera allt með sér. Við
horfum til þess hvernig Haukur á
Græna hattinum á Akureyri hefur
gert hlutina, hann er algjör snill
ingur og við eltum þá stemningu.
Hann hugsar einstaklega vel um
listamennina.“
Umboðsmennskan og
samstarfið við Bubba
Palli hefur ekki bara verið hljóm
sveitarmeðlimur Papanna, því
hann hefur ávallt verið beggja
vegna borðsins, sem meðlimur og
umboðsmaður sveitarinnar. Og í
gegnum tíðina hefur hann verið
umboðsmaður fjölda hljómsveita
og tónlistarmanna, þar á meðal
konungs rokksins, Bubba. „Í dag
er ég bara umboðsmaður minn
ar sveitar og Bubba, sem er stórt
og mikið starf á ársgrundvelli, en
ég tek að mér verkefni fyrir fjölda
listamanna og vinn mikið heild
rænt fyrir fyrirtæki, en fyrst og
fremst rek ég Bæjarbíó.“
Árið 1999 stofnaði Palli um
boðsskrifstofuna Promo, ásamt
Tómasi Tómassyni. „Þá hafði ekk
ert svona verið til þannig að við
byrjuðum á að vera umboðsmenn
vel flestra hljómsveita, svo þegar
við vorum búnir að vera það í smá
tíma þá tókum við að okkur að sjá
um ballstaðina og réðum inn all
ar sveitir þar, gerðum auglýsinga
pakka og allan fjandann,“ segir
Palli. Árið 2002 skildi leiðir og Palli
stofnaði eigin umboðsskrifstofu,
Prime, sem hann á enn í dag. „Í
kjölfarið var ég með töluvert af
hljómsveitum, en eftir því sem
tíminn leið þá fór ég að draga úr
því og fór meira í verkefnavinnu.“
Aðspurður af hverju listamenn
þurfi umboðsmann, segir Palli að
þeir þurfi oft hagsmunagæsluað
ila sér við hlið. „Fjármál eru ekki
endilega fremst á listanum hjá
þeim, og oft ekki þeirra sterkasta
hlið, þeir eru svo uppteknir í sköp
uninni og þurfa pláss til að skapa.
Svo er oft erfitt að semja fyrir sjálf
an sig. En margir sjá um þetta
sjálfir og gera það mjög vel.“
Hvernig er samstarfið við
Bubba?
„Samstarf okkar Bubba hefur
alltaf haldið og það er engin tilvilj
un að hann er stærstur, hann hef
ur svo mikla yfirburði á svo mörg
um sviðum. Það er gott að vinna
fyrir hann, hann ber svo fullkom
ið traust til samstarfsins, það gera
ekki allir, og það er aðdáunarvert
að sjá hvað hann er öflugur í að
velja sér samstarfsfólk. Hann er
óhræddur við að taka áhættu, frjór
og skapandi, það er gríðarlega
skemmtilegt að vinna með svo
leiðis fólki. Þegar tíminn líður þá
mun Bubbi vera á hillu með Lax
ness bókmenntanna og Kjarval
myndlistarinnar, hann er það stór.
Svo hefur samstarf okkar þróast,
með okkur hefur myndast fóst
bræðralag og dýrmæt vinátta.“
Edrúmennskan langbesta
ákvörðunin
Palli hefur verið óvirkur í 20 ár, en
hann fór í meðferð árið 1999. „Ég
held að maður velji sér ekki tíma
til að fara í meðferð, allavega var
það ekki þannig í mínu tilviki.
Stundum er talað um að maður
nái botninum, minn var að tveir
vinir mínir fóru í meðferð, sem ég
skildi ekki þá, þar sem ég var sjálf
ur að nota mun meira. Þarna varð
ég pínu einn eftir og hugsaði að ég
gæti eins farið í meðferð eins og
fara til Kaupmannahafnar að dópa
eins og ég gerði undir það síðasta,
því ég var búinn að reyna að sann
færa annan af þessum edrú vinum
mínum, og mig þá meira um að ég
væri hættur að dópa á Íslandi.
Ég var lengi búinn að leita að
ástæðu þess að ég var eins og ég
var. Ég vissi að það var eitthvað að
mér, en ég vissi ekki að ég ætti í erf
iðleikum með áfengi og önnur eit
urlyf, eins og kom svo í ljós. Þegar
ég rankaði við mér eftir einhverja
daga á Vogi þá var ég rosalega feg
inn að vita loksins hvað var að mér,
þó að margir hefðu sagt mér það í
mjög mörg ár. Ég var alkóhólisti og
það var rosalegur léttir að komast
loksins að því. Edrúmennskan er
ferðalag sem er geggjað, einn dag í
einu, og hefur gefið mér mikið.
Það fylgir oft tónlistarlífinu að
drekka, og sérstaklega áður fyrr,
þetta er öðruvísi í dag. Það er ekk
ert mál að vinna í þessum bransa
innan um fólk sem er að drekka,
löngunin í áfengi var algjörlega
tekin frá mér og maður breytir bara
aðferðafræðinni, er ekki jafn mikið
innan um næturlífið og áður, mað
ur gerir ekki ákveðna hluti, ég er
ekki úti á nóttunni. Ég er svolítið
búinn að fara á djammið, ég hef
gríðarlega reynslu af djamminu
og stundaði það mjög lengi og ég
er bara að gera annað í dag. Edrú
mennskan er langbesta ákvörðun
sem ég hef tekið í mínu lífi.“
Er tími fyrir eitthvað annað en
vinnuna?
„Já, ég hef gaman af laxveiði,
en geri minna af því en áður. Ég
ferðast og geri það mikið og svo
eru Papar áhugamálið í seinni tíð.
Fyrir þremur árum fór ég að iðka
jóga og það breytti aftur lífi mínu.
Ég hafði aldrei losnað við inngró
inn ótta og kvíða eftir neysluna,
en jógað er það fyrsta sem ég hef
fundið sem slekkur á því. Ég varð
svo hugfanginn af þessu andlega
ferðalagi að ég tók 200 tíma jóga
réttindi fyrir tveimur árum.
Ég er að skapa með því að gera
það sem ég er að gera, búa til við
burði, fylgja þeim eftir og vera í
sambandi við listamennina. Mér
finnst ég aldrei vera í vinnunni af
því að það sem ég er að gera, er ég
að gera af ástríðu og af því að ég
elska það.“ n
Palli er með mörg
járn í eldinum og
svona má oft sjá
hann, í símanum að
skipuleggja. Mynd:
Einar Bárðarson.