Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 2. S E P T E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  214. tölublað  106. árgangur  MANNÁTIÐ Í ÞJÓÐ- SÖGUNUM VIÐAMIKIL SÝNING VEKUR ATHYGLI KEPPNIN UM GULLNA LUNDANN DANH VO 30 RIFF 31DAGRÚN ÓSK 12 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Forsvarsmenn WOW air eru von- góðir um að geta tryggt félaginu aukið fjármagn til rekstrarins. Þetta herma heimildir Morgun- blaðsins. Síðustu vikur hafa þeir í samráði við fjármálafyrirtæki, inn- lend og erlend, unnið að því að tryggja félaginu að minnsta kosti 50 milljónir dollara með útgáfu skuldabréfa. Til stóð að niðurstaða væri kom- in í málið í gær en ekki tókst að ljúka fjármögnunarferlinu innan þess tímaramma. Stjórn WOW air sat langan stjórnarfund í gær en ekki hafa fengist upplýsingar um efni hans. Þá vildi upplýsinga- fulltrúi félagsins ekki staðfesta að fundurinn hefði farið fram. Ekki náðist í Skúla Mogensen, forstjóra félagsins, né Liv Bergþórsdóttur, stjórnarformann þess, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Heimildir Morgunblaðsins herma að stjórnvöld fylgist grannt með stöðu mála og að fundað hafi verið í vikunni, líkt og um helgina, á þeim vettvangi vegna stöðu félagsins. Gengi íslensku krónunnar hefur gefið eftir síðustu daga gagnvart helstu viðskiptamyntum. Þannig hefur gengi krónu gagnvart sterl- ingspundi lækkað um 5,63% á einni viku. Seðlabankinn staðfesti í sam- skiptum við mbl.is í gærdag að bankinn hefði gripið inn í á gjald- eyrismarkaði í gær vegna lækk- unar krónunnar. Greiningaraðilar segja í samtali við Morgunblaðið og mbl.is að lík- lega megi rekja þá þróun til ótta markaðarins við að ferðamönnum muni fækka á komandi mánuðum. Þar spili ekki síst inn í óljósar fréttir af stöðu WOW air. Áhrif- anna gætti einnig á hlutabréfa- markaði í gær. Þannig hækkaði gengi Icelandair Group um ríflega 9,7% í 513 milljóna króna viðskipt- um. Öll önnur félög í Kauphöllinni, að HB Granda undanskildum, lækkuðu og sum þeirra verulega. Mest lækkuðu olíufélögin Skeljung- ur um 3% og N1 um 5,7%. Þá lækkuðu fasteignafélögin Reginn um 4%, Reitir um 1,8% og Eik um 4,8%. Vongóðir um fjármögnun  Forsvarsmenn WOW air enn sagðir vongóðir um að geta tryggt fjármögnun  Krónan og kauphallarfélög lækka  Staða WOW air sögð hluti skýringarinnar Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir fyrirhugaða lækk- un tryggingagjalds í fjárlaga- frumvarpi 2019 um átta milljarða á næstu árum, jákvæða og skref í rétta átt. Breytingar á tekjuskatts- og bótakerfinu séu einnig jákvæðar og beint innlegg í komandi kjara- samninga á vinnumarkaði. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að fjárframlög til stuðnings launafólki dugi ekki til að liðka fyrir í komandi kjaraviðræðum. Barnabætur munu hækka um 1,6 milljarða kr. á milli ára eða sem nemur 16% hækkun. Persónu- afsláttur hækkar síðan um 1% um- fram lögbundna 12 mánaða hækkun vísitölu neysluverðs á árinu 2019. Hækkar persónuafslátturinn þannig um 4% á næsta ári. Heildarútgjöld ríkissjóðs munu samkvæmt frumvarpinu aukast um 7% að nafnvirði og framlög til heil- brigðismála um 12,6 milljarða kr. að raunvirði frá árinu 2018, þar af 7,2 milljarða til byggingar nýs Land- spítala. Framlög til félags-, hús- næðis- og tryggingamála hækka um 13,3 milljarða kr. að raunvirði á sama tímabili. »2, 10-11 & 16 Skiptar skoðanir um fjárlög Morgunblaðið/Hari Fjármálaráðherra Fjárlög rík- isstjórnarinnar fyrir 2019 kynnt.  Ánægja með lækk- un tryggingagjaldsins Karlalandslið Íslands í knattspyrnu tapaði öðrum leik sínum í Þjóðadeild UEFA á Laugardalsvell- inum í gærkvöld, 0:3 fyrir Belgum, og beið þar með sinn fyrsta ósigur í mótsleik á heimavelli í rúm fimm ár. Íslenska liðið réð ekki við Romelu Lukaku, leikmann Manchester United, sem krækti í vítaspyrnu og skoraði síðan tvö mörk. Ísland er því án stiga og hefur ekki skorað mark í fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni. » Íþróttir Morgunblaðið/Eggert Fyrsta tapið í mótsleik í Laugardal í fimm ár  Miðaeigandi í milljónaveltu Happdrættis Há- skólans vann 70 milljónir í gær- kvöldi og er vinn- ingurinn sá hæsti sem greiddur hef- ur verið út í íslensku happdrætti á árinu. Vinningshafinn var „ein- staklega yfirvegaður“ og tók frétt- unum með stóískri ró, að því er fram kemur í tilkynningu frá Happdrætti háskólans. Annar miðaeigandi fékk 25 milljónir í útdrættinum í gær- kvöldi en heildarfjárhæð útgreiddra vinninga var tæpar 196 milljónir. 70 milljónum ríkari  Tækifæri til útflutnings lamba- kjöts til Kína eru miklu takmark- aðri en kynnt var á dögunum. Aðeins er leyfilegt að flytja út lambakjöt frá einu sláturhúsi, Fjallalambi á Kópaskeri sem er með minnstu sláturhúsum lands- ins, auk þess sem ekki er hægt að flytja út innmat, hausa eða kjöt af fullorðnu. Fjallalamb hefur 100-120 tonn af lambakjöti til að flytja út á ári en heildarútflutn- ingur á lambakjöti hefur verið rúm 3.000 tonn. Forsvarsmaður stórs sláturhúss líkir kvöðum Kínverja við tæknilegar innflutn- ingshindranir. Fjallalamb hyggur á útflutning á sælkeramarkað á næstu vikum og vonast eftir góðu verði. »4 Kína ekki eins opið og rætt var um Morgunblaðið/Golli Lambasteik Aðeins brot af íslensku framleiðslunni getur farið til Kína.  Aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins sem annast loftrým- isgæslu við Ísland hafa sjálfdæmi um hvenær á því tímabili sem þeim er úthlutað þau inna skyldu sína af hendi. Ítalski herinn er á Íslandi um þessar mundir og valdi að koma strax í upphafi síns tíma- bils, sem var september-október. Skammt er um liðið síðan Banda- ríkjamenn voru við gæslu á Íslandi og þá hér með um 300 manna lið og fimmtán F-15 orrustuþotur. Umfang gæslu Ítalanna er umtals- vert minna eða 140 hermenn á fjórum þotum auk þess sem starfs- menn frá stjórnstöð NATO í Ue- dem í Þýskalandi koma að málum og leggja á ráðin um framkvæmd gæslunnar. »6 Velja sér sjálfir tímabilin í loftrýmisgæslu Morgunblaðið/Árni Sæberg Heræfing F-15 orrustuþota úr herliði Nato í flugskýli á Keflavíkurflugvelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.