Morgunblaðið - 12.09.2018, Page 2

Morgunblaðið - 12.09.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 a Auðveldara að þrífa penslana aGufar ekki upp aMá margnota sama löginn aNotendur anda ekki að sér eiturefnum a Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum aUNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn Hágæða umhverfisvæn hreinsivara Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Samþykkt var á fundi skóla- og frí- stundaráðs Reykjavíkurborgar að gera breytingar á rekstrarformi leik- skólans Sunnufoldar í Grafarvogi í Reykjavík, en þeim er ætlað að minnka stjórnunarumfang leikskól- ans. Sunnufold er starfrækt í þremur starfsstöðvum í Foldahverfi og sam- einuðust þær undir einn hatt árið 2011. Samtals eru nú yfir 130 börn á sjö deildum í skólanum. Skúli Helgason, formaður ráðsins, segir búið að vinna skýrslu með úttekt á reynslu sameininga á sínum tíma. „Almenna niðurstaðan er sú að sameining tveggja starfsstöðva hefur gengið miklu betur en þegar þrjár starfsstöðvar sameinast, sérstaklega þegar einhver fjarlægð er á milli þeirra,“ segir Skúli í samtali við Morgunblaðið, en starfsstöðvar leik- skólans Sunnufoldar standa við Logafold, Funafold og Frostafold. „Þessi leikskóli er dæmi um það þeg- ar þrjár starfsstöðvar sameinast und- ir eina yfirstjórn og það er talsverð fjarlægð á milli þeirra,“ segir Skúli. Hópur skili af sér tillögum Ákveðið hefur verið að setja á stofn starfshóp með þátttöku stjórnenda leikskólans, starfsfólks og foreldra þar sem lagt verði mat á mismunandi leiðir. Er t.a.m. til skoðunar að kanna þann möguleika að færa starfsemina í tvær starfsstöðvar, stækka starfsein- ingar auk þess sem aðrar skipulags- breytingar eru einnig til skoðunar. „Við erum tilbúin til að skoða betri og skilvirkari leiðir, þær liggja auð- vitað ekki fyrir núna en starfshóp- urinn á að skila af sér niðurstöðu seinna í haust,“ segir Skúli. Vilja breytingar á Sunnufold  Reynslan af sameiningu þriggja starfsstöðva er ekki góð Morgunblaðið/Eva Björk Krakkar Það getur oft verið gaman í leikskólanum. Myndin er úr safni. Blíðuveður var á höfuðborgarsvæðinu í gær og vel viðraði til útivinnu, sem margir þurftu að setja í bið í rigningum sumarsins. Þessi maður greip í viðgerðir á þaki húss í miðborginni í gær og varð mikið úr verki. Getur meira að segja komist lengra, því veðurspá fyrir næstu daga er góð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Málarinn á þakinu í miðborginni Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is „Ef þetta er hugsað sem innlegg í kjaraviðræðurnar, þessi skref sem eru stigin, þá duga þau ekki til,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, innt eftir viðbrögðum við helstu aðgerðum fjárlagafrumvarps- ins til stuðnings við launafólk. Í frumvarpinu er m.a. ráðgerð hækkun barnabóta um 1,6 milljarða og að fjármagn til húsnæðisstuðn- ings, s.s. í formi húsnæðisbóta, vaxta- bóta og stofnframlaga til byggingar almennra íbúða, aukist um ríflega 900 milljónir króna. „Það er ekkert þarna sem ég er í skýjunum yfir. Ef ætlunin var að liðka til, þá hefði þurft að gera miklu meira. Ef við horfum á húsnæðisstuðninginn til dæmis, þá dugir sú hækkun sem fram kemur um vaxtabætur ekki einu sinni til að vega upp þá lækkun sem varð milli síðustu tveggja ára. Þessi hækkun er svo smávægileg að hún er bókstaflega einskis virði þegar við horfum á þær rosalegu hækkanir sem hér hafa orðið á hús- næðismarkaði, þ.e. íbúðaverði og leig- unni,“ segir Sólveig Anna og nefnir að sömu sögu sé að segja af barnabóta- kerfinu, þar sem framlög hækka um 16% milli ára samkvæmt frumvarp- inu. Þær séu ekki nærri nógu miklar og að hækkun persónuafsláttar muni lítil áhrif hafa. „Þarna er ekkert gert til að bæta þá rýrnun sem varð í kjölfar síðustu kjarasamninga árið 2015. Þá náðust fram hækkanir til lágtekjuhópanna en gögnuðust fólki síðan ekki því það hvarf allt í ríkishítina ef svo má segja,“ segir hún. Leiðrétti ekki kjör öryrkja „Við sjáum að það er eitthvað verið að bæta í, en það dugar ekki til að laga stöðu okkar hóps, öryrkja. Við eigum eftir að setjast betur yfir þetta, en auðvitað er frumvarpið vonbrigði,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. „Við getum verið ánægð með að 900 milljónir séu veittar í heilbrigðishlut- ann og þar af 500 milljónir til að leið- rétta tannlæknaþjónustuna.“ Spurð um 4 milljarða króna inn- spýtingu vegna fyrirhugaðra kerfis- breytinga í almannatryggingum, seg- ir hún að ekki liggi fyrir hvað fjármunirnir verði nákvæmlega not- aðir í. „Við erum ekki alveg farin að sjá hvað þetta raunverulega þýðir. Við vonuðumst til þess að „krónu á móti krónu“-skerðingin yrði tekin út og höfum lengi talað um það, sérstak- lega eftir að ellilífeyrisþegar fengu sína leiðréttingu og þetta var afnumið hjá þeim. Við sjáum ekki í þessu frumvarpi að þeir ætli sér að afnema þetta hjá okkur,“ segir hún. Aukin framlög dugi ekki  Meira þurfi til svo liðka megi fyrir í kjaraviðræðum  Frumvarpið vonbrigði að sögn formanns ÖBÍ  Ánægja með aukin fjárframlög til heilbrigðismála öryrkja Sólveig Anna Jónsdóttir Þuríður Harpa Sigurðardóttir Samkeppniseftirlitið gaf í gær grænt ljós á kaup Haga hf. á Olíuverzlun Ís- lands hf. (Olís) og fasteignafélaginu DGV hf. Samruna fyrirtækjanna eru þó ýmis skilyrði sett, meðal annars að Hagar selja frá sér Bónus við Hallveigarstíg og Faxafen í Reykja- vík og Smiðjuveg í Kópavogi og nokkrar eldsneytisstöðvar, það er þjónustustöðvarnar við Háaleitis- braut í Reykjavík og á Kjalarnesi og þrjár sjálfsafgreiðslustöðvar í aust- urborginni. Einnig verður Olísstöðin í Stykkishólmi seld. Hagar verða, samkvæmt sam- komulagi, að selja nýjum endurselj- endum sem eftir því leita allar teg- undir eldsneytis í heildsölu. Til viðbótar þessu hefur Sam- keppniseftirlitið gert sátt við FISK- Seafood ehf. og móðurfélag þess Kaupfélag Skagfirðinga (KS) um að fyrirtækin selji eignarhlut sinn í sameinuðu félagi niður undir ákveðið mark í kjölfar samrunans. Ráðgjafar kaupanda, Arctica Fin- ance og Landslög, gera ráð fyrir að samlegðarhrifin verði um 3% af sam- anlögðum rekstrarkostnaði samein- aðra félaga, eða um 600 milljónir króna á ári. Heildarkaupverð við- skiptanna nemur 10,6 milljörðum króna. sbs@mbl.is Sameining Haga og Olís heimil Tekjur af út- varpsgjaldi munu hækka um 8,7%, úr um 4,2 milljörðum í 4,6 milljarða kr., skv. fjárlaga- frumvarpinu. Lilja Alfreðs- dóttir, mennta- og menningar- málaráðherra, segir að hækkunin skýrist af fjölg- un greiðenda enda muni gjaldið sjálft ekki hækka umfram 2,5%, þ.e. hækkun samkvæmt þróun vísitölu neysluverðs, og verður því 17.528 krónur í stað 17.100 króna. Fjárframlög til Ríkisútvarpsins samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verða alls um 4,7 milljarðar og þar af eru 175 milljónir vegna samnings frá síðasta ári sem gerður var við Ríkisútvarpið vegna sjóðs sem ætl- aður er til kaupa á efni frá sjálf- stæðum framleiðendum hérlendis. Tekjuhækk- un um 8,7% Lilja Alfreðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.