Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 6

Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 • Betri endurheimt vöðva eftir átök • dregur úr þreytu • gefur aukna orku Recover Nánari upplýsingar á www.geosilica.is Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is Vöðvar og taugar Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og magnesíum í hreinu íslensku vatni. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Þau ríki Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem annast loftrýmisgæslu hér á landi ákveða sjálf hvenær þau hefja gæsluna innan þess tímabils sem þeim er úthlutað. Þetta segir utanríkisráðuneytið í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins um það af hverju flugsveit ítalska hers- ins kemur hingað til lands svo skömmu eftir að loftrýmisgæslu Bandaríkjamanna lýkur. Yfirleitt hefur liðið nokkur tími á milli þess að flugsveitir NATO-ríkjanna komi hingað. „Loftrýmisgæsla Atlantshafs- bandalagsins fer fram alla daga árs- ins hjá öllum aðildarríkjum banda- lagsins nema hér á landi en að jafnaði koma erlendar flugsveitir hingað til lands til loftrýmisgæslu þrisvar til fjórum sinnum á ári. Bækistöðvar flugsveitanna eru á ör- yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og dvelja þær yfirleitt í nokkrar vik- ur í senn. Þjóðirnar sem hingað koma fá úthlutað ákveðið tímabil yf- ir árið og velja sjálfar hvenær þær hefja loftrýmisgæslu innan þess tímabils. Bandaríkjamenn fengu í samráði við Landhelgisgæsluna og utanríkisráðuneytið að ráða hvenær þeir kæmu hingað til lands frá maí til ágúst og völdu að hefja loftrým- isgæslu í lok júlí. Ítalir fengu tíma- bilið frá september til október út- hlutað og völdu að áður höfðu samráði að koma í upphafi síns tímabils,“ segir í svari ráðuneytis- ins. Alls munu um 140 liðsmenn flug- hersins taka þátt í loftrýmisgæsl- unni að þessu sinni auk starfsmanna frá stjórnstöð NATO í Uedem í Þýskalandi, Í flugsveitinni eru fjór- ar Eurofighter Typhoon F-2000 orr- ustuþotur. Umfangið er minna en hjá Bandaríkjamönnum þegar þeir voru hér í ágúst. Alls tóku um 300 liðsmenn bandaríska flughersins þátt í gæslunni þá og fimmtán F-15 orrustuþotur. Ótengt hinni venjubundnu loft- rýmisgæslu er áformað að hluti her- æfingar NATO, Trident Juncture, verði haldinn hér á landi sem und- anfari aðalæfingarinnar sem hefst 25. október nk. í Noregi, stendur í tvær vikur og verður stór í sniðum. Er um að ræða stærstu heræfingu NATO frá lokum kalda stríðsins. Í æfingunni í Noregi taka þátt um 40 þúsund hermenn. Hafa undanfarna daga staðið yfir miklir hergagna- flutningar þangað frá öðrum NATO-löndum. Er hermt að aldrei hafi jafn mikið magn hergagna verið flutt til landsins. Æfinguna mun bera hæst 30. október á Byneset fyrir utan Þrándheim. Þá verður styrkleiki liðsaflans á sjó og landi sýndur Jens Stoltenberg, fram- kvæmdastjóra NATO, sendiherrum frá NATO-löndunum og yfirmönn- um herja landanna. Þess má geta að ráðamenn í Rúss- landi undirbúa einnig stærstu her- æfingu sem haldin hefur verið þar í landi frá því á dögum kalda stríðs- ins. Verður æfingin í austurhluta Síberíu og taka þátt í henni um 300.000 hermenn. Þá munu kínversk stjórnvöld senda 3.200 hermenn, brynvarða bíla og herflugvélar til að taka þátt í æfingunni. Talsverð spenna er á milli NATO- ríkjanna og Rússa vegna þessara heræfinga. Velja sjálf gæslutímann á Íslandi Varnir Íslands Ein ítölsku herþotanna sem nú sinna loftrýmisgæslu á veg- um NATO á Íslandi. Allt eru 140 ítalskir hermenn á landinu þessa dagana.  Loftrýmisgæsla NATO hér 3-4 sinnum á ári  Hluti stórrar heræfingar NATO á Íslandi síðar í haust  Framundan stærstu heræfingar NATO og Rússa frá lokum kalda stríðsins  Spenna ríkjandi Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það er farið að sjá mikið á þessari leikmynd og í raun er þetta orðið að hálfgerðu leiðindamáli – það eru liðin níu ár og þeir eru ekki enn byrjaðir að taka þessa mynd,“ segir Ómar Antonsson, eigandi jarðarinnar Horns í Hornafirði, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til víkinga- þorps sem frá árinu 2009 hefur stað- ið við gamla íbúðarhúsið á Horni. Þorp þetta er leikmynd sem reist var fyrir fyrirhugaða víkingamynd sem Baltasar Kormákur átti að leikstýra. Til stóð að taka upp myndina að stórum hluta hér á landi og áttu tök- ur að hefjast 2010. Greiða ekki lengur leigu Að sögn Ómars eru tökur hins vegar ekki enn hafnar. „Þeir segja alltaf við mig að hlutir fari að gerast á næsta ári og nú greiða þeir mér ekki einu sinni leigu fyrir þetta leng- ur,“ segir hann, en að sögn Ómars hefur framleiðandi myndarinnar, 26 Film í Los Angeles í Bandaríkjun- um, ekki greitt leigu fyrir afnot af landinu í tvö ár. „Það gengur illa að innheimta hana,“ segir hann. Þorpið samanstendur af nokkrum húsum og er víkingaskáli þeirra stærstur, 38 metra langur og eru sjö metrar upp í mæni hans. Önnur hús eru t.a.m. hof, hesthús, smiðja, brugghús og þrælageymsla. Þá eru einnig nokkrir minni kofar í þorpinu. Að sögn Ómars er byrjað að brotna upp úr hluta leikmyndarinnar og tel- ur hann slysahættu auðveldlega geta skapast á svæðinu. „Ég er nú eigin- lega hræddastur um það.“ Víkingaþorpið staðið autt í níu ár  Ónýtt leikmynd á Horni illa farin Loftmyndir/map.is Loftmynd Víkingaþorpið á Horni er nokkuð stórt og eru þar mörg hús. urinn sé 10-20% eftir tegundum. Aðrir garðyrkjubændur telja sig verða fyrir enn meira fram- leiðslutapi. Kanna möguleika á stækkun Gunnar skilur ekki af hverju ver- ið er að flytja inn kolsýru sem framleidd er með því að brenna gasi eða olíu þegar nóg sé af henni í borholum á Hæðarenda. Nær væri að framleiða hana hér og flytja út. Guðmundur Rafnsson segir að kannaðar hafi verið borholur víða um land en hvergi fundist kolsýra í vinnanlegu magni. Hins vegar sé verið að kanna möguleika á að nýta eina holu til viðbótar á Hæðarenda og byggja aðra verksmiðju þar. Þá sé hugsanlegt að nýta útblástur frá gufuaflsvirkjunum en hingað til hafi hann ekki verið nógu hreinn til þess að það borgaði sig. Guðmundur tekur það fram að ekki sé hægt að byggja upp fram- leiðslu til útflutnings með góðu móti. Ísland sé of langt frá aðal- markaðssvæðinu og of mikil upp- gufun verði við flutninginn. verið að klárast, bæði hjá Ísaga og notendum og orðið að skammta. Hann nefnir að fyrirtæki sem rækti þörunga hafi verið látin ganga fyrir því lífverurnar drepist ef þær fá ekki kolsýru. Þá stöðvist drykkjar- vöruframleiðsla og ýmis mat- vælaframleiðsla ef hún fær ekki kolsýru. Þess vegna hafi verið farin sú leið, eins og í Skandinavíu, að hætta sölu til garðyrkjunnar. Plönt- urnar drepist ekki þótt kolsýru vanti. Hann segir að kolsýrufram- leiðslan sé komin á fullt skrið og meira flutt inn en venjulega þannig að allir eða langflestir notendur eigi að hafa fengið kolsýru. Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda, segir að það sé mjög bagalegt fyrir garð- yrkjubændur að fá ekki kolsýru í langan tíma. Kolsýran er notuð við ræktunina samhliða gróðurlýsingu því plönturnar nýta ljósið betur með hjálp hennar. Það hafi slæm áhrif á ræktunina að fá ekki kolsýru. Plönturnar vaxi hægar og telur Gunnar að mun- Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Garðyrkjubændur sem nota lýsingu til að framleiða grænmeti og blóm hafa orðið fyrir framleiðslutapi und- anfarnar vikur vegna þess að þeir hafa ekki fengið kolsýru til að bæta andrúmsloftið í gróðurhúsunum á meðan lýsingin er á. Ísaga sem þjónar markaðnum hér vonast til að erfiðleikar sumarsins séu að baki og að hægt verði að útvega öllum not- endum þá kolsýru sem þeir þurfa. Ísaga framleiðir kolsýru í verk- smiðju sinni á Hæðarenda í Gríms- nesi. Hún dugar ekki fyrir mark- aðinn hér og hefur verið flutt inn viðbótarmagn. Guðmundur K. Rafnsson, fram- kvæmdastjóri Ísaga, segir að önnur borholan sem notuð er til öflunar á kolsýru hafi verið ónothæf í langan tíma eftir hefðbundið viðhald í vor. Á sama tíma hafi skrúfast fyrir inn- flutning frá tveimur stórum verk- smiðjum í Skandinavíu sem ekki náðu að sinna eigin markaði. Hann segir að birgðirnar hafi Morgunblaðið/Hari Rósir Kolsýra er notuð við ræktun grænmetis og blóma í gróðurhúsum til þess að plönturnr geti nýtt ljósið betur. Hægir á vexti plantna vegna skorts á kolsýru  Garðyrkjubændur fengu ekki kolsýru til ræktunar í sumar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.