Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | s 551 3366 | www.misty.is | Opið kl. 10-18 virka daga og kl. 10-14 laug. Misty BRJÓSTARHALDARAR 2.900kr. – 3.900kr. – 4.900kr. ÚTSALA NÆRBUXUR 1.000kr. – 1.500kr. – 2.000kr. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði fram á Alþingi í gær, er gert ráð fyrir 29 milljarða króna afgangi af rekstri ríkissjóðs árið 2019. Alls aukast heildargjöld ríkissjóðs, samkvæmt frumvarpinu, um 55 milljarða kr. á milli ára, eða um 7% að nafnvirði. Heildartekjur ríkis- sjóðs jukust um tæplega 52 milljarða á sama tímabili og verða 892 millj- arðar króna en gjöldin 863 millj- arðar. Framlög til heilbrigðismála aukast um 12,6 milljarða að raunvirði frá 2018 og vegur bygging nýs Landspít- ala þar þyngst. Í kynningu á fjár- lagafrumvarpinu kemur m.a. fram að framlög til heilsugæslunnar verði aukin, geðheilbrigðisþjónusta efld ásamt því að auka áherslu á upp- byggingu og rekstur hjúkrunarheim- ila. Framlög til félags-, húsnæðis- og tryggingamála aukast einnig veru- lega en þar nemur heildarhækkunin 13,3 milljörðum króna að frátöldum launa- og verðlagshækkunum. Út- gjöld ríkisins til heilbrigðismála hafa nú hækkað úr 153,8 milljörðum kr. árið 2010 í 230,2 milljarða árið 2019. Svipaða sögu er að segja um útgjöld í félags-, húsnæðis- og trygginga- málum, sem voru 134,6 milljarðar ár- ið 2010 og eru fara í 216,7 milljarða árið 2019. Skuldaviðmiði náð árið 2019 Heildarskuldir ríkissjóðs hafa lækkað um 658 milljarða króna á síð- ustu sex árum. Frá miðju ári 2017 til 2018 lækkuðu skuldir ríkissjóðs um 88 milljarða en einskiptis og tíma- bundnar tekjur ríkissjóðs, eins og arðgreiðslur og stöðugleikaframlög, hafa verið nýttar til að lækka skuldir og greiða inn á lífeyrisskuldbind- ingar. Hlutfall skulda af landsframleiðslu hefur þannig lækkað úr 86% árið 2011 í 31% við lok árs. Útlit er því fyrir að hrein vaxtagjöld verði um 26 milljörðum kr. lægri árið 2019 en ár- ið 2011 en munu þó kosta ríkissjóð um 40 milljarða króna á ári sam- kvæmt fjárlögum. „Það verður að segjast alveg eins og er að þrátt fyrir þessa miklu nið- urgreiðslu skulda eru vaxtagjöldin há í alþjóðlegu samhengi. Sem sýnir hversu miklu máli það skiptir að halda áfram að lækka skuldir,“ sagði Bjarni á kynningarfundi um fjár- lagafrumvarpið í gærmorgun. Hins vegar munu þessar aðgerðir valda því að skuldir ríkissjóðs fara undir viðmið fjármálareglna um opinber fjármál í fyrsta sinn árið 2019. Í máli Bjarna kom fram að verið væri að ná því viðmiði á undan áætl- un. „Nú náum við markmiðinu á næsta ári sem er risastórt skref,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið. „Þeg- ar þetta viðmið var sett þótti mörg- um að verið væri að spenna bogann nokkuð hátt og setja sér mjög háleit markmið en núna á árinu 2019 mun- um við ná því markmiði.“ Í næsta mánuði mun ríkissjóður síðan greiða upp síðustu afborganir af skuldabréfaútgáfunni RIKH 18 sem var ætlað að fjármagna endur- reisn fjármálakerfisins á sínum tíma. „Í því felast mikil tímamót fyrir okk- ur. Það má segja að við höfum náð miklum áfanga þegar við gerðum upp öll neyðarlánin á sínum tíma, sem tengdust efnahagsáætlun Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins. Núna erum við að ná nýjum áfanga þegar við gerum upp öll lánin sem tengdust fjármögnun bankakerfisins og á næstu ári náum við síðan skulda- viðmiðinu, sem er mjög stór áfangi.“ Launafólk og barnafjölskyldur Lagt er til að persónuafsláttur hækki á næsta ári um 1% umfram lögbundna 12 mánaða hækkun vísi- tölu neysluverðs á árinu 2019. Per- sónuafslátturinn mun þannig hækka um 4% á næsta ári. Skattleysismörk í staðgreiðslu að teknu tilliti til 4% skylduiðgjalds í lífeyrissjóð hækka einnig og fara mörkin úr 151.978 kr. í 158.103 kr. Jafnframt gerir fjárlaga- frumvarpið ráð fyrir að hækkun þrepamarka efra skattþreps verði miðuð við vísitölu neysluverðs. Verða efri mörk skattþrepsins þannig fest við vísitölu verðlags. Nettóáhrif þessara breytinga verða að heild- arráðstöfunartekjur einstaklinga hækka um 1,7 milljarða kr. á næsta ári. Barnabætur verða samhliða þessu hækkaðar um 1,6 milljarða frá fjár- málaætlun sem felur í sér 16% hækk- un milli áranna 2018 og 2019. Sem dæmi má nefna að bætur til foreldra í sambúð með 2 börn, annað yngra en 7 ára og samanlagðar mánaðartekjur upp á 600.000 kr., hækka úr 482.500 krónum árið 2018 í 653.700 krónur árið 2019 eða um 171.200 krónur. Bætur til einstæðs foreldris með 2 börn, annað yngri en 7 ára, fara úr 817.100 krónum árið 2018 í 931.500 krónur árið 2019 og hækka þannig um 114.400 kr. á milli ára. Í samtali við Morgunblaðið segir Bjarni Benediktsson að með hækkun á persónuafslættinum og barnabót- um sé ríkisstjórnin að teygja sig sér- staklega til barnafjölskyldna. Tryggingagjaldið lækkað Í tengslum við framlagningu fjár- lagafrumvarpsins verður einnig lagt til að tryggingagjaldið lækki um 0,25% í ársbyrjun 2019 og aftur um 0,25% í ársbyrjun 2020. Um er að ræða 8 milljarða skattalækkun fyrir atvinnulífið en tryggingagjaldið var þriðji stærsti tekjuliður ríkissjóðs og myndar um 11% af tekjum ríkisins, alls 100,7 milljarða króna. Auka útgjöld en skuldaviðmiði náð  Fjárlagafrumvarp lagt fram með 29 milljarða króna afgangi  Heildarútgjöld aukast  Barna- bætur hækka um 16%  Útgjöld til heilbrigðismála aukast  Skuldaviðmið ríkissjóðs á undan áætlun Gert er ráð fyrir að hagkerfið vaxi um nærri 3% árið 2018 eftir 3,6% vöxt árið 2017 og 7,5% árið 2016. Efnahagsspár gera hins vegar ráð fyrir rúmlega 2,5% hagvexti á ári næstu árin, að því gefnu að engin óvænt efnahagsáföll verði, sem er talið vera nærri langtímavaxtar- getu hagkerfisins. Þetta kemur fram í athugasemd- um við fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019. „Nú fer að hægja um og ekki má gera ráð fyrir að ríkis- sjóður geti staðið undir jafn mikl- um útgjaldavexti,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, á kynningarfundi um fjárlaga- frumvarpið í gær. Hann benti þó á að áfram væri svigrúm til út- gjaldavaxtar ef gripið yrði til til- tekinna ráðstafana m.a. með því að losa um eignarhlut ríkisins í fjár- málastofnunum. Lánshæfiseinkunn í A-flokki Í athugasemdum með frumvarp- inu er þó áréttað að þrátt fyrir hægari vöxt sé hann enn umtals- verður og talsvert meiri en hjá samanburðarlöndum í Evrópu. Endurspeglast sterk staða Íslands í lánhæfiseinkunn sem hefur hækk- að jafnt og þétt síðustu ár og nú metin í A-flokki hjá helstu lánshæf- ismatsfyrirtækjum, A/A-1 og A hjá S&P Global og Fitch með stöð- ugum horfum en með stöðugum horfum er átt við að einkunn Ís- lands gæti hækkað eða lækkað. Fitch telur þannig að áframhald- andi lækkun skulda hins opinbera og bati ytri stöðu þjóðarbúsins geti leitt til hækkunar á lánshæfis- einkunn landsins. Núverandi eink- unn grundvallast á háum þjóðar- tekjum, sterkum stofnunum, góðum lífskjörum og viðskiptaum- hverfi, segir í athugasemdum með frumvarpinu. Ofhitnun og verðbólguskot Veikleikar Íslands felast í mögu- leikanum á ofhitnun hagkerfisins í formi víxlverkunar verðlags og launa og mögulegs verðbólguskots með tilheyrandi afleiðingum fyrir efnhagsreikninga heimila og fyr- irtækja. Slíkar aðstæður myndu leiða til lægri lánshæfiseinkunnar og verri fjármögnunarkjara fyrir ríkissjóð. Eins gæti mikið útflæði fjármagns leitt til ytra ójafnvægis og þrýstings á gengi krónunnar. mhj@mbl.is Hagvöxtur í eðli- legra horf næstu ár  Útgjaldavöxturinn ekki endalaus Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019 munu framlög ríkisins til Ríkisútvarpsins verða 4.645 milljónir króna á árinu 2019, 535 milljónum meiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum 2018. Þá er gert ráð fyrir 5,5 milljarða kr. aukningu í sam- göngumálum, vegna sérstaks átaks á árunum 2019 til 2021. Heildarútgjöld vegna rekstrar- kostnaðar ríkisstjórnarinnar hækka um 153 milljónir króna vegna fjölgunar aðstoðarmanna ráðherra. Þá hækka útgöld velferðar- ráðuneytisins vegna málefna innflytjenda og flóttafólks um 216 milljónir kr. frá gildandi fjárlögum. Ýmis útgjöld aukast að ári FJÁRLÖG 2019 Morgunblaðið/Hari Fjárlagafrumvarp 2019 Bjarni Benediktsson lagði fjárlagafrumvarp ríkissjórnarinnar fyrir Alþingi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.