Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 12

Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég bý norður á Ströndum rétt utanvið Hólmavík og titla mig sem yfir-náttúrubarn, því ég sé þar á sumrinum náttúrubarnaskóla. Í þann skóla koma börn og læra um náttúruna úti í náttúr- unni. Skólinn er staðsettur á Sauðfjársetrinu á Ströndum og þar hef ég verið viðloðandi, ég setti þar upp sýningu fyrir nokkrum árum um álagabletti á Ströndum og þá kviknaði áhugi minn fyrir samlífi manna og náttúru,“ segir Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur sem opnaði s.l. mánudag sýninguna, Skessur sem éta karla, á bókasafninu í Spönginni í Reykja- vík. Þau voru hæg heimatökin fyrir Dagrúnu, því BA-ritgerð hennar í þjóðfræði fjallar um mannát í íslenskum þjóðsögum. „Mannát er langalgengast í tröllasögum, en næstalgengast er það í útilegumannasögum. Og til er ein saga sem ég flokka sem sjóræn- ingjasögu, en þar segir af íslenskum manni sem fer burt í víking og skipshöfnin öll er tekin til fanga af fólki frá framandi landi. Þetta fólk borðar skipverjana hvern af öðrum, en sögu- hetjunni tekst að sleppa á síðustu stundu ásamt skipstjóranum og þeir eru því til frásagnar um mannátið, sem vissulega ber með sér ákveðna fordóma um aðrar þjóðir.“ Mannshönd á diski eða í potti Dagrún segir að mannátssögur byggist al- mennt á skiptingu í „okkur“ og „hina“. „Þar eru tröllin gerð dýrslegri en mann- fólk og sögur af útilegumönnum sem stunda mannát eru til að setja þá í flokk með villimönn- um, gera þá ólíka „okkur hinum“ og sýna þá hættulega. Í útilegumannasögum villist fólk oft til útilegumanna og er þá gjarnan boðinn matur þar sem liggur kannski mannshönd efst á diski eða í potti.“ Aðeins í einu tilfelli fann Dagrún sögu þar sem fórnarlambið í mannátinu var kvenkyns, annars voru það alltaf karlar sem voru étnir. Í þeim tilfellum þar sem tröllkarlar lögðu manna- kjöt sér til munns, þá sóttu þeir það oftast ekki sjálfir heldur sendu tröllskessur konur sínar út á mannaveiðar. Þær voru því líka gerendur í þeim sögum, þær útveguðu mannakjötið.“ Grýla er sennilega frægust allra trölla þegar kemur að mannáti, hún borðar jú mann- anna börn. „Mér finnst mjög áhugavert að íslensk tröll ólíkt erlendum tröllum, sjóða sitt manna- kjöt áður en þau leggja það sér til munns. Þá er ekki verið að taka alla leið þetta með að gera tröll og útilegumenn dýrsleg, þau borða ekki hrátt kjöt, eins og dýrin. Soðið mannakjöt er líka einverskonar hátíðarmatur, því mest er um mannakjötsát um jólin, Grýla gerir sér daga- mun um hátíðirnar með því að sækja börn til að setja í pott og sjóða til veislu. Tröllin virðast gera vel við sig með þessum hætti, sem er líka skrýtið í ljósi þess að tröll eru rammheiðin.“ Sýning Dagrúnar byggist á einum kafla BA-ritgerðarinnar sem fjallar um tröllskessur sem borða karla. „Ég skoða þetta í samhengi við nútímann og feminisma. Með því að taka eitthvað svona gamalt eins og þjóðsögur og finna þar kynja- halla, þá endurspegla þær hugmyndaheim karla, því þarna er ákveðin birtingarmynd kvenna sem karlar þess tíma skapa. Þjóðsög- urnar eru jú flestar skrifaðar og sagðar af körl- um og þeim var safnað af körlum. Í þessum mannátssögum má lesa ýmislegt um samfélag þess tíma, þarna birtast átök kynjanna. En mannátið tekst yfirleitt ekki, körlunum sem lenda í klóm tröllskessna tekst yfirleitt að leika á þær og sleppa. En oftast eru skessurnar háls- höggnar eða þær verða að steinum. Skilaboðin eru að konur eigi ekki að reyna að brjótast gegn því sem er samþykkt í menningunni, þær eiga ekki að vilja neitt upp á dekk. Þessar gömlu sögur sýna okkur hvað hugmyndir um konur geta legið víða og eru rótgrónar í sam- félaginu. Við eigum alltaf að vera vakandi fyrir því, líka í nútímanum. Þetta sýnir okkur líka ótta karla um að konur geti tekið af þeim völdin og það feli í sér eyðingu þeirra, að þeir verði gleyptir með húð og hári. Á sýningunni er ég með vangaveltur um það að þessi ótti sé óþarf- ur.“ Mannát táknar stundum kynlíf Dagrún ætlar í tengslum við sýningu sína um mannakjötsátið að flytja fyrirlestur undir yfirskriftinni „Fáir hafa notið bónda síns betur en ég“ og er það vísun í sögu af Maurhildi sem var tröllskessa og mjög skæð mannæta. „Hún giftist mennskum presti og segir þessa setn- ingu þar sem hún situr á kletti og nagar haus- kúpu eiginmannsins, klerksins. Þetta er mjög tvíræð setning því kannski er hún ekki aðeins að vísa til þess að kjötið af honum smakkist vel, heldur gæti hún líka verið að vísa til þess að hann hafi staðið sig vel í bólinu. Margar freud- ískar kenningar eru til um að mannát tákni kynlíf,“ segir Dagrún og bætir við að samband manna og trölla sé mjög áhugavert því stund- um sé erfitt að vita hvað er raunverulegt mannát. „Stundum er aðeins sagt frá blóðslóð sem liggur upp í fjall, en þá er mögulega verið að geta í eyður með því að fullyrða að það sé mannát. Stundum virðast tröll drepa fólk sér til ánægju en stundum taka tröllskessur upp á því að giftast mennskum mönnum, eins og í tilflelli Maurhildar. Skessurnar reyna þá gjarnan að teygja karlana í allar áttir til að reyna að stækka þá, svo þeir henti betur sem eiginmenn, í ljósi stærðar þeirra sjálfra.“ Í framhaldi af því er vert að velta fyrir sér hversu mikil vinna það hefur verið fyrir mennskan lítinn karl að full- nægja tröllskessu. Eldaði súpu úr blóði ömmunnar Dagrún tekur fram að mannát birtist víðar í menningunni, það þekkist t.d. í goðsögum, æv- intýrum, þjóðsögum, fornritum, við helgiat- hafnir, í dægurmenningunni, nútímaflökkusög- um og auðvitað í raunveruleikanum. „Í eldri útgáfum af sögunni um Rauðhettu eldar úlf- urinn til dæmis súpu úr blóði ömmunar og gef- ur Rauðhettu að borða. Í Eddukvæðunum drepur Guðrún Gjúkadóttir syni þeirra Atla Húnakonungs og gefur honum að borða í hefndarskyni. Sagan segir líka að þegar móðir fjöldamorðingjans Axlar-Bjarnar var ófrísk að honum hafi hún fengið þráláta löngun í manna- blóð á meðgöngunni og dreymt að hún æti mannakjöt. Í nútímanum birtist mannátið svo í flökkusögum af veitingahúsum sem er síðan lokað vegna þess að það finnst mannakjöt í ískápnum.“ Hefur mikinn áhuga á mannáti Í nútímanum birtist mannát í flökkusögum af veitingahúsum sem er lokað vegna þess að mannakjöt finnst í ísskáp. Dag- rún Ósk hefur rannsakað mann- át í íslenskum þjóðsögum þar sem gerendur eru yfirleitt kven- kyns en fórnarlömbin karlkyns. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Útlagar Dagrún við styttu Einars Jónssonar af útlögum, sem stóðu utan við samfélag manna. Skessur sem éta karla: Veggspjaldasýning um mannát í íslenskum þjóðsögum, stendur til 3. október í bókasafninu í Spönginni. Í tengslum við sýninguna heldur Dagrún Ósk fyrirlestur á sama stað undir yfirskriftinni „Fáir hafa notið bónda síns betur en ég“, mánudaginn 24. september kl. 17:15. Gömul munnmæli segja að til forna hafi tröllkarlinn Þórir búið í helli einum í kletta- ásum sem kallaðir eru Skersli. Skessa mikil fylgdi Þóri en ekki er getið um nafn hennar. Þau lifðu mest á veiði úr vatni skammt það- an, en um hver jól reyndu þau til hátíða- brigða að seiða til sín prest og tókst það oft. Á jólanótt skiptu þau með sér verkum. Þórir fór að dorga sil- ung í vatninu en skess- an fór á Fornastaði að reyna að taka bónda sem þá var orðinn einn, en aðrir höfðu annaðhvort fallið í hendur tröllanna eða flúið. Þegar skessa kom að bænum lagði bóndi á flótta að Kirkjubæ og skessan elti, bóndi komst í kirkju og var þá klukk- unum hringt. Við það brá skessu svo að hún spyrnti stóru stykki úr kirkju- garðsveggnum og sagði: „Og stattu aldrei, skítur minn.“ Hún sneri síðan að vatninu en Þórir hafði frosið þar fastur við ísinn og var dauður. Lagði hún þá á vatnið að þar myndi aldrei veiðast silungur framar. Því næst reif hún Þóri upp af svellinu, kastaði á bak sér og gekk upp á ásinn en varaði sig ekki á því að þá rann upp dagur. Urðu þau því bæði að steinum. Heit- ir efri steinninn Skessusteinn, en vatnið heitir síðan Þórisvatn og ásinn Þóris- ás. Eftir þetta var aldrei aftur búið á Fornastöðum. Þórir og skessa hans vildu mannakjöt á jólum „Og stattu aldrei, skítur minn“ Gripinn Teikning Sunnevu Guðrúnar Þórðardóttur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.