Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið STUTT ● Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 0,62% í viðskiptum gær- dagsins þar sem öll félög lækkuðu að Icelandair og HB Granda undanskildum. Mest áhrif til lækkunar höfðu viðskipti með bréf N1. Lækkuðu bréf félagsins um 5,7% í tæplega 508 milljóna við- skiptum. Það sem af er ári hefur vísital- an lækkað um 2,33%. Á síðustu tólf mánuðum hefur hún lækkað um 4,95%. Úrvalsvísitalan gaf eftir Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Flugfélagið Primera Air, sem er að fullu í eigu Andra Más Ingólfs- sonar, er nú að klára langtíma- fjármögnun í skuldabréfaútboði að upphæð 40 milljónir evra, jafnvirði um 5,3 milljarða íslenskra króna. Andri segir að þátttakendur í út- boðinu séu evrópskar fjármála- stofnanir. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að fjármögnuninni sé ætlað að styðja þann vöxt sem verður á næsta ári hjá félaginu. Að hans sögn verður þá um mestu aukningu að ræða í sögu félagsins, en undirbúningur nýs viðskiptalík- ans hefur tekið meira en þrjú ár. Líkanið gengur út á bein flug yfir Atlantshafið frá nokkrum lykilflug- völlum á meginlandi Evrópu, á nýjum sérhönnuðum flugvélum. Tjón vegna afhendingar Félagið varð fyrir 1,5 milljarða króna tjóni fyrr á þessu ári þegar það þurfti að leigja dýrar Boeing 757 og 767 vélar, eftir að afhending á fimm nýjum og mun hagkvæmari Airbus vélum félagsins tafðist. Fyrrnefnd fjármögnun er að sögn Andra að hluta til komin til vegna þessa tjóns. „Fjármögnunin er á móti söluhagnaði af sölu tíu Max9- ER flugvéla sem félagið fékk á ein- stökum kjörum frá Boeing, og verða afhentar næsta vor. Það er litið á þetta sem brúarfjármögnun þar til sá hagnaður verður inn- leystur í maí nk. Þá er einnig verið að klára fjármögnun vegna þessa frá viðskiptabanka félagsins,“ seg- ir Andri og kveðst aðspurður bjartsýnn á að ná að sigla skuldabréfaútboðinu í höfn innan skamms. Primera Air fékk Airbus flugvél- arnar fyrrnefndu afhentar í sumar, Airbus321NEO, en þær hafa að sögn Andra þá flugdrægni að geta flogið yfir Atlantshafið beint án millilendingar, á hagkvæmari hátt en áður hefur þekkst. Vélarnar eru nú allar í verkefnum frá París og London, að sögn Andra, og hafa að hans sögn reynst frábærlega frá fyrsta degi. Max9-ER Boeing vélarnar munu fljúga frá Brussel, Berlín, Frank- furt og Madrid, til New York, Tor- onto, Boston og Washington frá og með næsta vori, og er sala hafin á þeim leiðum. Verður félagið fyrsta félag í heiminum til að nota þessa vélartegund í flugi yfir Atlantshaf- ið, eins og ViðskiptaMogginn hefur áður greint frá. Stefnir á 2,5 milljónir farþega Primera Air flytur um 1,5 millj- ónir farþega á þessu ári, og stefnir á 2,5 milljónir farþega á næsta ári. Velta félagsins á síðasta ári var 24 milljarðar króna og stefnir í 32 milljarða á þessu ári. Hagnaður fé- lagsins fyrir skatta var 166 millj- ónir króna á síðasta ári. Drægni Verið er að ljúka við nýjar langdrægar MAX vélar Primera Air í Boeing verksmiðjunum í Bandaríkjunum. 5 milljarðar í lánsfé  Skuldabréfaútboð Primera Air til þess gert að bregðast við tapi og byggja undir aukinn vöxt félagsins á komandi ári BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is „Það sem er jákvætt í frumvarpinu er lækkun tryggingagjaldsins, enda höfum við talað mikið fyrir efndum á því loforði yfirvalda,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, í samtali við Morgunblaðið, innt- ur eftir viðbrögðum við fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem lagt var fram í gær. „Þarna er verið að lækka trygg- ingagjaldið um átta milljarða á tveimur árum, 0,25 prósentustig í ársbyrjun 2019 og aftur í ársbyrjun 2020. Það telur mikið fyrir atvinnu- rekendur, enda eru tryggingagjöld að skila 100 milljörðum króna í rík- iskassann á árinu 2018,“ segir Hall- dór. Á vef Fjármálaráðuneytisins segir að samanlagt þýði þetta um 9,3% lækkun á tryggingagjaldinu. Er að- gerðinni sagt ætlað að stuðla að jafn- vægi á vinnumarkaði og því að launa- hækkanir á næsta ári leiði síður til verðbólgu. Halldór segir aðspurður að lækk- un tryggingagjaldsins gangi skemmra en SA hafi kallað eftir, en um mikilvægt skref í rétta átt sé að ræða. „Svo eru skuldir ríkissjóðs að lækka áfram og við fögnum því. Í fljótu bragði sýnist mér að vaxta- gjöldin á næsta ári verði 26 milljörð- um minni en árið 2011, sem er ótrú- lega mikið og mjög glæsilegt.“ Halldór nefnir einnig jákvæðar breytingar á tekjuskatts- og bóta- kerfinu, sem séu beint innlegg í kom- andi kjarasamninga á vinnumarkaði. SA fagni þessum breytingum. Í frumvarpinu er lagt til að per- sónuafsláttur hækki um eitt pró- sentustig umfram lögbundna 12 mánaða hækkun vísitölu neysluverðs á árinu 2019. Jafnframt er gert ráð fyrir því að hækkun þrepamarka efra skattþreps verði miðuð við vísi- tölu neysluverðs. Þá verða barnabætur hækkaðar um sem svarar 1,6 milljörðum króna frá gildandi fjárlögum, sem er 16% hækkun milli áranna 2018 og 2019. Vaxtabætur hækka einnig um sem nemur 13% frá áætlaðri útkomu 2018. Sannkölluð þenslufjárlög Spurður hvað hann sjái neikvætt í frumvarpinu segir Halldór að frum- varpið feli í sér botnlausa útgjalda- aukningu, eins og hann orðar það. „Útgjöldin vaxa um 7% að nafnverði og 4% að raunverði.“ Gagnrýna má harðlega, að sögn Halldórs, að siglt sé inn í mikinn út- gjaldavöxt, nú þegar toppi hagsveifl- unnar sé náð. „Það er enginn að hugsa um hvernig eigi að búa í hag- inn til mögru áranna. Þetta eru sannkölluð þenslufjárlög og atvinnu- lífið kallar eftir meiri ráðdeild í rík- isrekstri.“ Halldór segir að staða ríkissjóðs sé óneitanlega sterk og fjárlögin beri þess merki. „Það má ekki gleyma því að sú staða byggir á því að skattpró- sentur og skattstofnar eru fullnýttir. Treyst er á áframhaldandi hagvöxt, og ég held að sviptingar í hagkerfinu sýni að sú sviðsmynd geti hæglega breyst, og forsendur fjárlaga brostið mjög hratt.“ Lækkun tryggingagjaldsins er jákvæð og skiptir miklu  Framkvæmdastjóri SA gagnrýnir harðlega útgjaldaaukningu á toppi hagsveiflu Atvinnulíf Lækkun tryggingagjalds er sögð mikilvægt skref í rétta átt. Morgunblaðið/Ómar 12. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 111.6 112.14 111.87 Sterlingspund 144.28 144.98 144.63 Kanadadalur 84.55 85.05 84.8 Dönsk króna 17.314 17.416 17.365 Norsk króna 13.312 13.39 13.351 Sænsk króna 12.333 12.405 12.369 Svissn. franki 114.61 115.25 114.93 Japanskt jen 1.0036 1.0094 1.0065 SDR 155.78 156.7 156.24 Evra 129.14 129.86 129.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 153.8908 Hrávöruverð Gull 1195.8 ($/únsa) Ál 2028.0 ($/tonn) LME Hráolía 77.08 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.