Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ HerafliRússlandshóf í gær stærstu heræfingu í sögu sinni, en hún verður haldin í austurhluta Rúss- lands næstu daga. Að sögn rússneskra hermála- yfirvalda munu um 300.000 rússneskir hermenn, 36.000 skriðdrekar og um 1.000 flug- vélar verða hluti af æfingunni. Fyrir utan þetta mikla umfang hefur það vakið athygli að her- sveitir frá kínverska hernum munu taka þátt í æfingunum við hlið Rússa. Þessi þróun ætti svo sem ekki koma á óvart. Teikn hafa verið á lofti síðustu árin um að Kínverjar og Rússar hafi í sí- fellt meiri mæli snúið saman bökum í öryggis- og varnar- málum sínum, og jafnvel byrj- að að samþætta ýmsa hluti svo sem vopnakerfi og boðleiðir innan hersins. Hefur það raun- ar gengið svo langt, að sumir fræðimenn hafa haldið því fram að herir ríkjanna tveggja þyrftu ekki að gera miklar málamiðlanir til þess að geta myndað með sér formlegt varnarbandalag. Skilaboðin til Vesturveld- anna með heræfingunni verða að teljast nokkuð skýr. Bæði ríki hafa á síðustu árum verið óánægð með núverandi skipan mála í alþjóðamálum, sem þau telja bæði að hygli Bandaríkj- unum og öðrum vestrænum lýðræðisríkjum um of. Ríkin tvö hafa á síðustu árum stór- aukið samvinnu sína í efna- hagsmálum og með því að hefja nánara samstarf í varn- armálum eru bæði Rússar og Kínverj- ar að tilkynna Bandaríkjamönn- um að þeir muni ekki sætta sig við að verða til lengd- ar eftirbátar á al- þjóðavettvangi. Viðskiptasamband ríkjanna tveggja gefur hið sama til kynna. Gert er ráð fyrir að verðmæti viðskipta þeirra verði á þessu ári meira en sem nemur um eitt hundrað millj- örðum bandaríkjadala, en þau voru um 84 milljarðar í fyrra. Ekkert bendir til annars en að ríkin muni leitast við að auka þau tengsl enn frekar á næstu árum, sér í lagi þar sem Rúss- ar búa við viðskiptaþvinganir af hálfu Bandaríkjanna og Kín- verjar horfa fram á tollahækk- anir úr sömu átt. Í þessu samhengi er einnig athyglisvert að Vladimír Pútín Rússlandsforseti lýsti því yfir í gær, á sameiginlegum blaða- mannafundi sínum og Xis Jinp- ing, forseta Kína, að Rússar og Kínverjar væru að skoða leiðir til þess að nota sína eigin gjaldmiðla í viðskiptum sín á milli frekar en bandaríkjadali. Full ástæða er fyrir vestræn lýðræðisríki að huga vel að því hvaða afleiðingar það hefur til lengri tíma ef Rússar og Kín- verjar fara að snúa saman bök- um í sífellt meiri mæli. Og þar sem bæði ríki eru ósátt við stöðu sína innan alþjóða- samfélagsins og hafa hvort með sínum hætti látið reyna á stoðir þess er ástæða fyrir vestræn lýðræðisríki til að vera við öllu búin. Rússar og Kínverjar senda skilaboð til Vesturveldanna með sameiginlegum heræfingum} Bökum snúið saman Ríkisstjórninkynnti á mánudag aðgerða- áætlun í loftslags- málum. Þar sagði að stefnt væri að því að draga úr losun gróð- urhúsalofttegunda af manna- völdum og ýmsar aðgerðir nefndar í því sambandi. Eitt af því sem kynnt var vakti sérstaka athygli og þá sennilega helst af þeirri ástæðu að sú hugmynd virðist fremur borin fram af bjart- sýni en raunsæi. Þar er um að ræða yfirlýsingu um að ný- skráningar bensín- og dís- elbifreiða verði óheimilar árið 2030, með undantekningum þó. Nú er ekki útilokað að tækniframfarir verði með þeim hætti á allra næstu árum að hægt verði að hrinda slíkum áformum í fram- kvæmd. Þó verður að segja að þrátt fyrir hugvitssemi mannsins og hraðar framfarir á liðnum árum í þróun bíla og orkugjafa, þá er fátt sem bendir til að unnt verði að banna nýskráningar bensín- og díselbifreiða eftir rúman áratug. Og það segir raunar sitt að umhverfisráðherra sagði að- spurður að ekki yrði farið út í lagabreytingar á komandi þingi til að lögfesta bannið. En þá má líka velta því fyrir sér hvers vegna slíkar hugmyndir eru bornar fram. Það er ekki endilega til þess fallið að auka trúverðugleika annars sem finna má í aðgerðaáætluninni. Orkuskipti gerast ekki hraðar en tæknin leyfir} Aðgerðaáætlun um loftslag Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er fjallað um traust á stjórnmálum. Sett var á laggirnar prýðileg nefnd sem skilaði af sér verki í liðinni viku og áfram höldum við. Í gærmorgun ræddust við í morgunútvarpi Rásar eitt þingmenn tveggja flokka, þær Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn, og Bjark- ey Olsen Gunnarsdóttir, VG. Þær ræddu meðal annars traust á stjórnmálum og þar vatt Bjark- ey sér að fjölmiðlum. Sagði hún fjölmiðla eiga sinn þátt í að rýra traust almennings á stjórn- málum og að sér þætti það miður. Sagði hún orðrétt „við þekkjum það í störfum þingsins, þá eru kamerurnar komnar, þá skiptir máli að ein- hver sé með söluvænlega setningu til að kom- ast í fjölmiðlana“. Því næst sagði hún „fjöl- miðlar eru ekki endilega að velta fyrir sér innihaldi þess sem sagt er, heldur; þetta selur, þetta er sniðugt, þetta klikkar á vefinn“. Þáttastjórnendur bentu réttilega á að þingmenn væru með orðið og fjölmiðlanna væri að endurvarpa því til almennings en ekki ritskoða það sem þingmenn segðu. Því miður var ekki hægt að halda áfram með þessa nauðsynlegu umræðu, því fátt er einmitt mikilvægara lýðræðinu en öflugir fjölmiðlar. En hvað ætlum við að gera til að treysta rekstur fjöl- miðla? Í stjórnarsáttmálanum er talað um að ríkisstjórnin muni bæta starfsumhverfi fjölmiðla, t.d. með endurskoðun á skattalegu umhverfi þeirra, en nú, þegar önnur fjárlög þessarar ríkisstjórnar hafa birst okkur má sjá að litlar efndir standa á bakvið holan hljóminn. Ríkis- útvarpið, sem gegnir gríðarlegu menningar- legu hlutverki, er áfram eini fjölmiðillinn sem nýtur beinna ríkisstyrkja á fjárlögum. Vissu- lega má segja að Bændablaðið sem og fleiri hagsmunarit njóti óbeinna styrkja en frjálsir fjölmiðlar eru alfarið undanskildir stuðningi. Íslendingar sem iðulega telja sig með siðuðum Norðurlandaþjóðum mættu líta þangað og læra hvernig gert er þar. Í Danmörku eru heildarstyrkir til fjölmiðla, að undanskildum ríkisfjölmiðlinum DR, 363,5 m. d.kr. sem eru tæplega 6,5 ma. í.kr. Fær Information t.d. 25,5 m. d.kr. eða 450 m. í.kr. og Politiken, Extra bladet og Berlingske fá hvert um sig 17,5 m. d.kr. eða 308 m. í.kr. Sænsk stjórnvöld kynntu metnaðarfulla áætlun sína um stuðning við fjölmiðla í mars sl. Á næsta ári munu þau styrkja frjálsa fjölmiðla um 622 m. SEK og hækka stuðninginn í 677 m. SEK ári síðar eða tæplega 8,5 ma. í.kr. Í lýðræðisríkjum eru frjálsir fjölmiðlar lykillinn að upp- lýstri samfélagsumræðu og eflingu lýðræðis. Við verðum að sýna íslenskum frjálsum fjölmiðlum, sem allir vita að berjast í bökkum, að minnsta kosti smá viðleitni. Það að enn ein fjárlögin séu nú komin fram án nokkurs stuðnings veldur miklum vonbrigðum því við verðum að gera betur. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Slökkvið á myndavélunum Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hlutfall fólks sem er hvorkií vinnu né í skóla eðastarfsþjálfun er lágt í öll-um aldurshópum hér á landi. Stendur Ísland að því leyti best að vígi í samanburði við önnur OECD-lönd. Aftur á móti eru fleiri karlar hér án framhaldsskólamennt- unar á aldrinum 25-34 ára en í flest- um öðrum vestrænum ríkjum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ný- útkominni ársskýrslu OECD um menntatölfræði, Education at a Glance 2018. Í skýrslunni er að finna margvíslegar upplýsingar um stöðu íslenska skólakerfisins, mennt- unarstig þjóðarinnar, fjármögnun skóla og skipulag skólastarfs. Skýrsluna á ensku og íslenska sam- antekt hennar má nálgast á vef mennta- og menningarmálaráðu- neytisins. Félagsleg áhrif sterk Þema skýrslunnar að þessu sinni er tækifæri til náms þar sem sér- staklega er tekið mið af heimsmark- miðum Sameinuðu þjóðanna um menntun. Helstu niðurstöður skýrsl- unnar eru meðal annars að fé- lagslegur bakgrunnur fólks hefur meiri áhrif á menntun þess eftir því sem líður á skólagönguna og starfs- ævina, að kynjamunur er konum í hag í menntakerfinu en körlum í hag í atvinnulífinu, og að borgarar af er- lendum uppruna eru líklegri til að hverfa frá námi og eiga erfiðara upp- dráttar í atvinnulífinu. Meðal þess sem fram kemur um íslenskt menntakerfi er að á ára- bilinu frá 2010 til 2015 hefur aukn- ingin á útgjöldum á hvern nemanda til grunnskóla og framhaldsskóla verið um 14 prósentustig og á há- skólastigi hefur aukningin verið um 27 prósentustig þegar tekið er mið af fjölda nemenda. Aukningin er talsvert meiri hér á landi en á Norð- urlöndunum og flestum löndum OECD. Í samantekt ráðuneytisins um skýrsluna er nefnt að eitt helsta vandamálið sem mörg lönd innan OECD og Evrópusambandsins stríða við sé hátt atvinnuleysi meðal ungs fólks sem hverfur frá námi og fær ekki vinnu. Hlutfall ungs fólks sem er hvorki í námi né í vinnu hækki með aldrinum frá 18 ára til 30 ára aldurs. „Ísland stendur áberandi best að vígi að þessu leyti, þrátt fyrir að brotthvarf frá námi hafi verið við- varandi vandamál á framhalds- skólastigi. Ef litið er á aldursbilið 18 til 24 ára þá eru 5% ungmenna á þessum aldri hvorki í skóla né vinnu og er það lægsta hlutfall innan OECD. Munur milli kynja er vart marktækur að þessu leyti. Meðaltal OECD er aftur á móti um 15% og það er alls staðar á Norðurlöndum hærra en hér á landi.“ Fleiri án framhaldsmenntunar Á mínushliðinni hér á landi er sú staða að á Íslandi eru fleiri karlar án framhaldsskólamenntunar á aldr- inum 25-34 ára en í flestum öðrum vestrænum ríkjum. Staða karla er aðeins verri á Ítalíu, Spáni og Portú- gal af löndum Evrópu sem eiga aðild að OECD-menntatölfræðinni. Um 24% karla á þessum aldri hafa ekki lokið námi eftir grunnskóla en hlut- fallið er 15% fyrir konur. Munurinn milli kynjanna er óvíða jafn mikill og á Íslandi eða níu prósentustig og að því leyti svipar Íslandi einnig til landa í sunnanverðri álfunni. Þetta hlutfall hefur þó verið að minnka. Árið 2007 var hlutfall karla án fram- haldsskólamenntunar í aldurs- flokknum 25-34 ára 31% og hefur því lækkað um sjö prósentustig á einum áratug. Þetta hlutfall hefur reyndar farið lækkandi almennt innan OECD. Sterk staða háskólamenntunar Staðan á Íslandi er mun betri þeg- ar litið er til háskólamenntunar. Í aldursflokknum 25-64 ára hafði 21% Íslendinga lokið bakkalársgráðu ár- ið 2017. Meðaltalshlutfall OECD var 17%. Hér stöndum við betur að vígi en hinar norrænu þjóðirnar, hlut- fallið var 19% í Noregi, 17% í Sví- þjóð og Finnlandi, en 21% í Dan- mörku eins og hér. „Þessar tölur koma á óvart,“ segir í samantektinni, „því yfirleitt hefur þeim tölum verið slegið fram sem hafa sýnt að Norðurlöndin standi mun framar en Ísland. En þessar tölur sýna að munurinn hefur aðal- lega verið fólginn í styttri náms- gráðum, diplómagráðum, sem eru mun algengari á hinum Norðurlönd- unum“. Á Íslandi voru 3% sem luku diplómagráðu en engri annarri æðri gráðu, en hlutfallið í Noregi, Svíþjóð og Danmörku var á bilinu 10-12%. Sömu sögu er að segja af þeim sem hafa hlotið meistaragráðu. Á Íslandi höfðu 17% af mannfjölda á aldrinum 25-64 ára lokið meistaragráðu árið 2017. Meðaltal OECD var 12% og annars staðar á Norðurlöndum var hlutfallið lægra en á Íslandi, 13% í Danmörku, 11% í Noregi, 14% í Sví- þjóð og 15% í Finnlandi. Lágt hlutfall hér hvorki í vinnu né námi Morgunblaðið/Eggert Menntun Háskólamenntuðum hér á landi hefur fjölgað og stendur Ísland nú jafnfætis öðrum Norðurlandaþjóðum í fjölda háskólamenntaðra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.