Morgunblaðið - 12.09.2018, Page 19

Morgunblaðið - 12.09.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Álftanes Það var haustlegt til loftsins þegar myndin var tekin. Hross var úti í haga og máfar sveimuðu yfir. Sumargestirnir, farfuglarnir, eru ýmist þegar farnir eða að tygja sig til brottfarar. Hari Ein frumskylda stjórnvalda á hverjum tíma er að verja sam- keppnishæfni landsins. Tryggja að íslensk fyrirtæki og launa- fólk verði ekki undir í harðri al- þjóðlegri samkeppni. Það er þess vegna sem ég hef hamrað aftur og aftur á mikilvægi þess að allt regluverk samfélagsins sé einfalt, gegnsætt og sann- gjarnt. Þess vegna hef ég ítrek- að bent á nauðsyn þess að þeg- ar teknar eru ákvarðanir um skatta og gjöld sé hugað að samkeppnishæfni landsins. Og þess vegna hef ég lagt áherslu á að allt skipulag – allt frá heilbrigðiskerfinu, til raforkukerfisins, frá landbúnaði til sjávar- útvegs, frá skipulagi peningamála til mennta- kerfisins – geti annaðhvort gefið okkur forskot eða dregið úr samkeppnishæfni lands og þjóð- ar. Um það verður vart deilt að samkeppnis- staða íslensks atvinnulífs hefur orðið lakari á undanförnum misserum. Um leið og íslenskur almenningur hefur notið sterkrar stöðu krón- unnar hefur staða fyrirtækja í alþjóðlegri sam- keppni versnað. Á sama tíma hefur launa- kostnaður hækkað verulega. En miklu fleiri þættir hafa áhrif á samkeppnisstöðuna en launakostnaður eða gengi krónunnar. Umhverfi sem íslensk fyrirtæki og íslensk heimili búa við þegar kemur að vöxtum vegur þar þungt. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur segir að ríkisstjórnin ætli að vinna að „frekari skilvirkni í fjár- málakerfinu með það að leiðarljósi að lækka kostnað neytenda“. Á vegum stjórnvalda hefur verið unnið að sérstakri Hvítbók um framtíð- arsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi og verður hún lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar áður en stefnumarkandi ákvarðanir verða teknar um fjármálakerfið. Jafnframt hefur verið unnið að endurskoðun peningastefnunnar og þess regluverks sem gildir um Seðlabankann. Ég hef verið talsmaður þess að með nýjum lögum um Seðlabankann verði bankanum gert skylt að taka mið af því við vaxtaákvarð- anir að vaxtamunur milli Íslands og helstu samkeppnislanda sé ekki óeðlilega hár. Með öðrum orðum: Seðlabankinn á ekki aðeins að horfa til verðbólgumarkmiða og gengis- stöðugleika. Vaxtamunur milli Íslands og helstu viðskiptalanda hefur í langan tíma verið óeðlilega mikill og hann dregur úr samkeppnishæfni ís- lenskra fyrirtækja og leggur byrðar á heimilin. Hófsemd eða „getuleysi“ Ekki má gleyma umhverfinu sem íslenskum fyrirtækjum er búið þegar kemur að skattkerfinu. Samkeppnishæfni ræðst ekki síst af þeim ákvörðunum sem Alþingi tekur um álagningu skatta og gjalda. Þegar gengið er til þeirra verka, á næstu vikum, að smíða umgjörð um innheimtu veiði- gjalda – álagningu auðlindagjalda á sjávar- útveg – verður að hafa það að leiðarljósi að skerða ekki samkeppnishæfni sjávarútvegsins sem er í harðri samkeppni við ríkisstyrktan sjávarútveg um allan heim. Og það er vegna þessa sem við getum aldrei leyft okkur að leggja hærri virðisaukaskatt á ferðaþjónustu hér á landi en í helstu samkeppnislöndum okk- ar. Hækkun skatta á einstaklinga skerðir einn- ig samkeppnisstöðu Íslands, ekki síst gagnvart þeim sem hafa alþjóðlega menntun; heilbrigð- isstarfsfólki, verkfræðingum, iðnaðarmönnum og þannig má lengi telja. Það er ekki eftirsókn- arvert fyrir vel menntaða sérfræðilækna að flytja heim til Íslands í óvinveitt skattaum- hverfi. Ekki frekar en fyrir hjúkrunarfræð- inga sem eru eftirsóttir um allan heim. Öflugt heilbrigðiskerfi verður ekki byggt upp án þessara starfsstétta. Fjárfesting í innviðum krefst verkfræðinga, tækni- og iðnaðarmanna. Vinnuafl er orðið óháð landamærum. Því miður er skilningur á nauðsyn þess að gæta hófsemdar í álögum á fyrirtæki og ein- staklinga takmarkaður. Við sem viljum koma böndum á skattagleði hins opinbera erum sak- aðir um „getuleysi“ til að afla tekna. Hinir skattaglöðu setjast niður og reikna „nettóeft- irgjöf tekna“ vegna þess að skattar eru ekki háir og þeir vilja og brigsla öðrum um að „af- sala“ ríkissjóði tekjum með því að hækka ekki skatta eða aðrar álögur. Orka, samkeppnishæfni og náttúruvernd Ísland er eyland, langt frá öðrum mörk- uðum. Flutningskostnaður og annað óhagræði sem fylgir fjarlægðinni gerir það að verkum að samkeppnishæfni landsins er lakari en ella. Þetta á jafnt við um útflutning sem innflutn- ing. En það er líka margt sem spilar með okk- ur – við höfum forskot í ýmsu á aðrar þjóðir. Aðgangur að hreinni og hlutfallslega ódýrri orku eykur samkeppnishæfni atvinnulífsins og styrkir ímynd landsins sem perlu náttúru og hreinleika. Ein dýrmætasta auðlind okkar Ís- lendinga er hrein orka. Skipulag raforkumála er spurning um sam- keppnishæfni íslensks atvinnulífs og þar með lífskjara almennings. Þess vegna getum við aldrei gengið fram með þeim hætti að við afsöl- um okkur fullum yfirráðum yfir orkuauðlind- um – fallvötnunum og jarðvarma. Þegar Al- þingi tekur til umræðu hvort rétt sé að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara vegna þriðju orku- tilskipunarinnar – viðauka við EES-samning- inn – vega þessir þættir þyngst í mínum huga. Yfirráð yfir skipulagi auðlinda sem tryggja okkur hreina orku skipta ekki síður máli þegar við tökumst á við áskoranir í loftslagsmálum og náttúruvernd. Það vill oft gleymast að nátt- úruvernd getur verið ágætlega arðbær og skynsamleg frá sjónarhóli hagfræðinnar. Eitt besta dæmið um samþættingu náttúruverndar og arðbærrar nýtingar náttúruauðlindar er fiskveiðistjórnunarkerfið. Hreint vatn og heil- næm matvæli verða aldrei að fullu metin til fjár. Metnaðarfull aðgerðaáætlun ríkisstjórn- arinnar í loftslagsmálum, sem kynnt var síð- astliðinn mánudag, væri óframkvæmanleg ef við hefðum ekki aðgang að orkuauðlindum okkar og fulla sjálfstjórn um nýtingu þeirra. Samkeppnishæfni um starfsfólk Líkt og á flestum sviðum er skipulag heil- brigðisþjónustunnar ekki aðeins spurning um hvort okkur tekst að uppfylla loforð um að tryggja öllum nauðsynlega þjónustu óháð efnahag, heldur ekki síður spurning um sam- keppnishæfni landsins um sérmenntað vinnu- afl. Fábreytni í rekstrarformi innan heilbrigðis- kerfisins leiðir ekki aðeins til lakari og dýrari þjónustu heldur dregur hún úr samkeppnis- hæfni Íslands – ekki síst í að laða til landsins að nýju hæfileikaríkt starfsfólk, sem hefur sótt aukna menntun og þekkingu til annarra landa. Það er ekki hlutverk mitt og getur ekki ver- ið hlutverk annarra þingmanna að leggja steina í götur einkaframtaksins. Verkefnið er miklu fremur að fjölga valmöguleikum al- mennings og stuðla að hagkvæmri nýtingu sameiginlegra fjármuna um leið og öllum er tryggð örugg og góð heilbrigðisþjónusta. Hið sama á við í menntakerfinu. Allt sem hér er sagt skiptir hins vegar litlu ef opið aðgengi að erlendum mörkuðum er ekki tryggt, samhliða eðlilegum og sann- gjörnum aðgangi erlendra aðila að íslenskum markaði. EES-samningurinn, með öllum sín- um kostum og göllum, hefur tryggt Íslandi öruggan og nauðsynlegan aðgang að mikil- vægum mörkuðum. Gagnkvæmir fríversl- unarsamningar við önnur ríki hafa reynst okk- ur vel og byggt undir bætt lífskjör. Íslensk stjórnvöld, fyrirtæki og almenn- ingur þurfa að vera vakandi við að gæta hags- muna þjóðarinnar með náinni samvinnu við aðrar þjóðir. Markmiðið er að fjölga valkostum þjóðar en ekki fækka þeim. Eftir Óla Björn Kárason » Það er ekki hlutverk mitteða annarra þingmanna að leggja steina í götur einka- framtaksins. Verkefnið er að fjölga valmöguleikum al- mennings. Óli Björn Kárason Þetta snýst allt um samkeppnishæfni Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.