Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018
Álftanes Það var haustlegt til loftsins þegar myndin var tekin. Hross var úti í haga og máfar sveimuðu yfir. Sumargestirnir, farfuglarnir, eru ýmist þegar farnir eða að tygja sig til brottfarar.
Hari
Ein frumskylda stjórnvalda á
hverjum tíma er að verja sam-
keppnishæfni landsins. Tryggja
að íslensk fyrirtæki og launa-
fólk verði ekki undir í harðri al-
þjóðlegri samkeppni. Það er
þess vegna sem ég hef hamrað
aftur og aftur á mikilvægi þess
að allt regluverk samfélagsins
sé einfalt, gegnsætt og sann-
gjarnt. Þess vegna hef ég ítrek-
að bent á nauðsyn þess að þeg-
ar teknar eru ákvarðanir um
skatta og gjöld sé hugað að samkeppnishæfni
landsins. Og þess vegna hef ég lagt áherslu á
að allt skipulag – allt frá heilbrigðiskerfinu, til
raforkukerfisins, frá landbúnaði til sjávar-
útvegs, frá skipulagi peningamála til mennta-
kerfisins – geti annaðhvort gefið okkur forskot
eða dregið úr samkeppnishæfni lands og þjóð-
ar.
Um það verður vart deilt að samkeppnis-
staða íslensks atvinnulífs hefur orðið lakari á
undanförnum misserum. Um leið og íslenskur
almenningur hefur notið sterkrar stöðu krón-
unnar hefur staða fyrirtækja í alþjóðlegri sam-
keppni versnað. Á sama tíma hefur launa-
kostnaður hækkað verulega. En miklu fleiri
þættir hafa áhrif á samkeppnisstöðuna en
launakostnaður eða gengi krónunnar.
Umhverfi sem íslensk fyrirtæki og íslensk
heimili búa við þegar kemur að vöxtum vegur
þar þungt. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar
Katrínar Jakobsdóttur segir að ríkisstjórnin
ætli að vinna að „frekari skilvirkni í fjár-
málakerfinu með það að leiðarljósi að lækka
kostnað neytenda“. Á vegum stjórnvalda hefur
verið unnið að sérstakri Hvítbók um framtíð-
arsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi og verður
hún lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar áður en
stefnumarkandi ákvarðanir verða teknar um
fjármálakerfið. Jafnframt hefur verið unnið að
endurskoðun peningastefnunnar og þess
regluverks sem gildir um Seðlabankann. Ég
hef verið talsmaður þess að með nýjum lögum
um Seðlabankann verði bankanum gert skylt
að taka mið af því við vaxtaákvarð-
anir að vaxtamunur milli Íslands og
helstu samkeppnislanda sé ekki
óeðlilega hár. Með öðrum orðum:
Seðlabankinn á ekki aðeins að horfa
til verðbólgumarkmiða og gengis-
stöðugleika.
Vaxtamunur milli Íslands og
helstu viðskiptalanda hefur í langan
tíma verið óeðlilega mikill og hann
dregur úr samkeppnishæfni ís-
lenskra fyrirtækja og leggur byrðar
á heimilin.
Hófsemd eða „getuleysi“
Ekki má gleyma umhverfinu sem
íslenskum fyrirtækjum er búið þegar kemur
að skattkerfinu. Samkeppnishæfni ræðst ekki
síst af þeim ákvörðunum sem Alþingi tekur um
álagningu skatta og gjalda.
Þegar gengið er til þeirra verka, á næstu
vikum, að smíða umgjörð um innheimtu veiði-
gjalda – álagningu auðlindagjalda á sjávar-
útveg – verður að hafa það að leiðarljósi að
skerða ekki samkeppnishæfni sjávarútvegsins
sem er í harðri samkeppni við ríkisstyrktan
sjávarútveg um allan heim. Og það er vegna
þessa sem við getum aldrei leyft okkur að
leggja hærri virðisaukaskatt á ferðaþjónustu
hér á landi en í helstu samkeppnislöndum okk-
ar.
Hækkun skatta á einstaklinga skerðir einn-
ig samkeppnisstöðu Íslands, ekki síst gagnvart
þeim sem hafa alþjóðlega menntun; heilbrigð-
isstarfsfólki, verkfræðingum, iðnaðarmönnum
og þannig má lengi telja. Það er ekki eftirsókn-
arvert fyrir vel menntaða sérfræðilækna að
flytja heim til Íslands í óvinveitt skattaum-
hverfi. Ekki frekar en fyrir hjúkrunarfræð-
inga sem eru eftirsóttir um allan heim. Öflugt
heilbrigðiskerfi verður ekki byggt upp án
þessara starfsstétta. Fjárfesting í innviðum
krefst verkfræðinga, tækni- og iðnaðarmanna.
Vinnuafl er orðið óháð landamærum.
Því miður er skilningur á nauðsyn þess að
gæta hófsemdar í álögum á fyrirtæki og ein-
staklinga takmarkaður. Við sem viljum koma
böndum á skattagleði hins opinbera erum sak-
aðir um „getuleysi“ til að afla tekna. Hinir
skattaglöðu setjast niður og reikna „nettóeft-
irgjöf tekna“ vegna þess að skattar eru ekki
háir og þeir vilja og brigsla öðrum um að „af-
sala“ ríkissjóði tekjum með því að hækka ekki
skatta eða aðrar álögur.
Orka, samkeppnishæfni
og náttúruvernd
Ísland er eyland, langt frá öðrum mörk-
uðum. Flutningskostnaður og annað óhagræði
sem fylgir fjarlægðinni gerir það að verkum að
samkeppnishæfni landsins er lakari en ella.
Þetta á jafnt við um útflutning sem innflutn-
ing. En það er líka margt sem spilar með okk-
ur – við höfum forskot í ýmsu á aðrar þjóðir.
Aðgangur að hreinni og hlutfallslega ódýrri
orku eykur samkeppnishæfni atvinnulífsins og
styrkir ímynd landsins sem perlu náttúru og
hreinleika. Ein dýrmætasta auðlind okkar Ís-
lendinga er hrein orka.
Skipulag raforkumála er spurning um sam-
keppnishæfni íslensks atvinnulífs og þar með
lífskjara almennings. Þess vegna getum við
aldrei gengið fram með þeim hætti að við afsöl-
um okkur fullum yfirráðum yfir orkuauðlind-
um – fallvötnunum og jarðvarma. Þegar Al-
þingi tekur til umræðu hvort rétt sé að aflétta
stjórnskipulegum fyrirvara vegna þriðju orku-
tilskipunarinnar – viðauka við EES-samning-
inn – vega þessir þættir þyngst í mínum huga.
Yfirráð yfir skipulagi auðlinda sem tryggja
okkur hreina orku skipta ekki síður máli þegar
við tökumst á við áskoranir í loftslagsmálum
og náttúruvernd. Það vill oft gleymast að nátt-
úruvernd getur verið ágætlega arðbær og
skynsamleg frá sjónarhóli hagfræðinnar. Eitt
besta dæmið um samþættingu náttúruverndar
og arðbærrar nýtingar náttúruauðlindar er
fiskveiðistjórnunarkerfið. Hreint vatn og heil-
næm matvæli verða aldrei að fullu metin til
fjár.
Metnaðarfull aðgerðaáætlun ríkisstjórn-
arinnar í loftslagsmálum, sem kynnt var síð-
astliðinn mánudag, væri óframkvæmanleg ef
við hefðum ekki aðgang að orkuauðlindum
okkar og fulla sjálfstjórn um nýtingu þeirra.
Samkeppnishæfni
um starfsfólk
Líkt og á flestum sviðum er skipulag heil-
brigðisþjónustunnar ekki aðeins spurning um
hvort okkur tekst að uppfylla loforð um að
tryggja öllum nauðsynlega þjónustu óháð
efnahag, heldur ekki síður spurning um sam-
keppnishæfni landsins um sérmenntað vinnu-
afl.
Fábreytni í rekstrarformi innan heilbrigðis-
kerfisins leiðir ekki aðeins til lakari og dýrari
þjónustu heldur dregur hún úr samkeppnis-
hæfni Íslands – ekki síst í að laða til landsins
að nýju hæfileikaríkt starfsfólk, sem hefur sótt
aukna menntun og þekkingu til annarra landa.
Það er ekki hlutverk mitt og getur ekki ver-
ið hlutverk annarra þingmanna að leggja
steina í götur einkaframtaksins. Verkefnið er
miklu fremur að fjölga valmöguleikum al-
mennings og stuðla að hagkvæmri nýtingu
sameiginlegra fjármuna um leið og öllum er
tryggð örugg og góð heilbrigðisþjónusta. Hið
sama á við í menntakerfinu.
Allt sem hér er sagt skiptir hins vegar litlu
ef opið aðgengi að erlendum mörkuðum er
ekki tryggt, samhliða eðlilegum og sann-
gjörnum aðgangi erlendra aðila að íslenskum
markaði. EES-samningurinn, með öllum sín-
um kostum og göllum, hefur tryggt Íslandi
öruggan og nauðsynlegan aðgang að mikil-
vægum mörkuðum. Gagnkvæmir fríversl-
unarsamningar við önnur ríki hafa reynst okk-
ur vel og byggt undir bætt lífskjör.
Íslensk stjórnvöld, fyrirtæki og almenn-
ingur þurfa að vera vakandi við að gæta hags-
muna þjóðarinnar með náinni samvinnu við
aðrar þjóðir. Markmiðið er að fjölga valkostum
þjóðar en ekki fækka þeim.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það er ekki hlutverk mitteða annarra þingmanna
að leggja steina í götur einka-
framtaksins. Verkefnið er að
fjölga valmöguleikum al-
mennings.
Óli Björn
Kárason
Þetta snýst allt um samkeppnishæfni
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.