Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 26

Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Rock Star umgjarðir kr. 11.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum fyrir krakka á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Jón Karl Ólafsson viðskipta-fræðingur á 60 ára afmæli ídag. Hann hefur starfað lengi í flugbransanum, var m.a. forstjóri Flugfélags Íslands, Ice- landair, Primera Air og var síðast framkvæmdastjóri innanlands- flugvallasviðs Isavia, en hætti störfum þar fyrir rúmum mánuði. „Nú er bara verið að skoða í kringum sig og sinna fjölskyld- unni og áhugamálunum. Maður er búinn að koma víða við og kannski kominn tími til að taka smá pásu.“ Áhugamál Jóns Karls eru mörg, meðal annars golf, stangveiði og tónlist, en hann er m.a. hljóm- borðsleikari hljómsveitarinnar Basil fursti, sem kemur enn fram öðru hverju. „Ég er líka í góðri hljómsveit sem heitir Tíglar, þar sem við spilum reglulega fyrir þá sem hafa gaman af því að koma saman og dansa.“ Jón Karl er með 13 í forgjöf í golfinu og getur því spilað skamm- laust eins og hann orðar það. „Ég fer töluvert út að spila,“ segir Jón Karl aðspurður. „Ég á dóttur í Þýskalandi og hef aðeins spilað þar og fer með vinum til Bandaríkjanna og Spánar. Ég spila samt langmest hér heima og og við erum komin með svo góða golfvelli hérna að það þarf ekki að fara mikið út til að spila.“ Veiðitímabilinu er ekki lokið hjá Jóni Karli en næsta mánudag fer hann að veiða í Sandá í Þistilfirði. „Ég er í hópi sem er með leigu- samning um þá yndislegu á og hef farið þangað einu sinni til tvisvar á ári frá árinu 1984. Við hjónin fórum fyrst að veiða þarna með for- eldrum mínum og ég hef haldið því síðan við eftir að faðir minn hætti veiðum. Maður er farinn að þekkja þarna hverja þúfu. Það er hægt að lenda í alls konar veðri á þessum tíma, þolanlegu haustveðri, finu sumarveðri og snarvitlausu vetrarveðri. Ég og Vala veiðum saman í ýmsum öðrum ám líka og reynum að komast í veiði eins mikið og við getum. Ég fékk veiðiáhugann frá föður mínum en hann var mikill veiðimaður og ég dróst með inn í þetta.“ Eiginkona Jóns Karls er Valfríður Möller, hjúkrunarfræðingur á Sóltúni. Börn þeirra eru Guðrún, Anna Sigrún, Edda Björg og Jón Valur og barnabörnin eru orðin fjögur. Það er lítið planað í dag annað en að fara í golf með Völu, en svo nær hún þessum góða áfanga í byrjun næsta árs og þá ætlum við að bjóða stórfjölskyldunni með okkur til útlanda og hafa það gott.“ Afmælisbarnið Jón Karl. Fer að veiða í Þistilfirði eftir helgi Jón Karl Ólafsson er sextugur í dag S verrir Páll Guðnason fæddist á sjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð 12.9. 1978, þar sem foreldrar hans voru í háskólanámi, en flutti til Íslands með fjölskyldunni er hann var fjögurra ára. Sverrir gekk í Melaskóla og þegar hann var 11 ára var hann valinn úr hópi drengja til að leika Ólaf Kára- son ungan í leikgerð Kjartans Ragn- arssonar á Ljósi heimsins, eftir Hall- dór Laxness. Þá varð ekki aftur snúið: Í kjölfarið lék hann Emil í sjónvarpsmynd um Emil og Skunda, eftir bók Guðmundar Ólafssonar. Ár- ið 1990 flutti fjölskyldan til Tyresö, fyrir sunnan Stokkhólm, og Sverrir fór í prufur fyrir hlutverk í kvik- myndum áður en hann hafði lært málið. Sverrir lauk grunnskólanámi í Tyresö, fór á leiklistarbraut mennta- skólans St. Eriks inni í Stokkhólmi, fór fljótlega að vinna með áhuga- leikhópnum Replica, undir stjórn pólska leikstjórans Jureks Sawka, og tók þátt í mörgum uppfærslum með honum. Síðan fékk hann aðal- hlutverk í sjónvarpsmyndinni Jesus Sverrir Guðnason, leikari í Svíþjóð – 40 ára Beðið eftir matnum Sverrir með dætrunum, þeim Sölku Uggla, Blönku Ljungman og Sísí Uggla Sverrisdætrum. Ein af skærustu kvik- myndastjörnum Svíþjóðar Nafnarnir Sverrir með afa sínum, Sverri, ráðherra og bankastjóra. Hann var mælskur og kannski góður leikari, enda slyngur stjórnmálamaður. Sólveig Kristín Borgars- dóttir og Guðrún Sjöfn Kulseng söfnuðu 5.895 kr. fyrir Rauða kross Íslands með því að semja lag og texta. Þær gengu svo í hús og sungu fyrir fólk. Vin- konurnar eiga heima á Hvanneyri og var afar vel tekið af þeim íbúum sem þær heimsóttu. Lagið þeirra er stutt og fjörugt og fjallar um ljúfa lífið í sveitinni. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.