Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 30

Morgunblaðið - 12.09.2018, Side 30
AF MYNDLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mnl.is Þegar gestir ganga þessa dagana inn í þjóðarlistasafn Dana, Statens Mus- eum for Kunst, tekur á móti þeim grófgerður en þó notalegur setuskáli úr tilhöggnum við að fornri kín- verskri fyrirmynd, þar sem fólk get- ur sest, blaðað í bókum og sýning- arskrám og tekið það rólega. Og víðar í safninu hefur ásýnd ganga og tengirýma verið breytt; á nokkrum stöðum hefur verið stillt fram hópum hvítra klassískra gipsstytta sem yf- irleitt rykfalla í geymslum, víða eru kassar með kryddjurtum sem nýtast í matargerð veitingahúss safnsins, grófgerðir stólar fyrir fólk að tylla sér á hafa stungið upp kollinum, í nýju álmunni hafa marglitar sessur birst í tröppunum við Sviðið svokall- að, einnig til að hafa það notalegt, á nokkrum stöðum hanga hvít pappa- ljós í klösum niður út loftinu og í veitingasalnum hafa klassísk dönsk húsgögnin vikið fyrir öðrum hrárri og grófgerðari. Það er athyglisvert að upplifa þessar breytingar innan veggja safnsins; þær eru á engan hátt frekar en hvetja gesti til breyttrar upplifunar á þessari virðu- legu menningarstofnun. Breyting- arnar eru allar verk danska stjörnu- listamannsins Danhs Vo og fólks og fyrirtækja sem hann hefur fengið til samstarfs. Og þessi viðamikli gjörningur, sem teygir sig um allt safnið, leiðir gestina í raun inn á yfirlitssýninguna á verkum listamannsins sem er í tveimur stórum sölum undir heitinu Take My Breath Away. Fjölskyldusaga listamanns Sýning Danhs Vo var fyrst sett upp í Guggenheim-safninu í New York, reyndar í nokkuð breyttri mynd, og þótti fara afar vel í hinum fræga spíral Franks Lloyd Wright. Og margir sem sáu sýninguna í New York hafa haft á orði að þar hafi þeir hrifist og byrjað að skilja hvað Vo er að fara í listsköpun sinni; marg- brotnar vísanirnar í fjölskyldusögu hans sjálfs, í reynslu flóttamanna, kaþólska trú og vestræna menningu. Sjálfur náði ég engu sambandi við innsetningu Vo í danska skálanum á Feneyjatvíæringnum fyrir þremur árum, þótti hann illskiljanlegur og í raun tilgerðarlegur. En nú hitti ég í Kaupmannahöfn reynda listferða- langa sem höfðu sömu sögu að segja frá Feneyjum en, rétt eins og ég, hrifust hins vegar af sýningunni í Statens Museum. Þar fengum við lykla í hendur, í formi leiðsagnar eins sýningarstjórans og vandaðra upp- lýsinga um verkin og heim lista- mannsins í bæklingi sem allir gestir fá í hendur, en Vo mun vera illa við hverskonar veggtexta eða upplýs- ingar um verkin sem trufla hina sjónrænu upplifun í sölunum. Flóttamenn til Danmerkur Sýning Dahns Vo var opnuð með mikilli fjölmiðlaathygli á dögunum. Einn þeirra fjölmörgu gesta sem mættu í Statens Museum á opn- unardaginn lýsti upplifuninni hæst- ánægður fyrir mér og sagði Vo vera skærustu og bestu ungu myndlistar- stjörnu Dana, á eftir Ólafi Elíassyni. Danh Vo fæddist í Víetnam árið 1975 en kom fjögurra ára gamall til Danmerkur eftir að foreldrar hans höfðu flúið ættjörðina á báti vegna Víetnamstríðsins. Þau dreymdi um að komast til Bandaríkjanna en voru tekin upp í flutningaskip frá Mærsk- félaginu og enduðu í Danmörku. Vo nam myndlist við Konunglega akademíið í Kaupmannahöfn og við listaháskólann í Frankfurt. Ferill hans komst fljótlega á flug eftir nám- ið og hafa sýningar á verkum hans verið settar upp í virtum söfnum víða um lönd. Og sýningin í Statens Mus- eum er sú langstærsta sem sett hefur upp með verkum hans í Danmörku. Hún gefur gott yfirlit yfir verkin sem hann hefur unnið að á undanförnum fimmtán árum, hvert hann sækir hugmyndirnar og hvernig hann vinn- ur úr þeim. Margbrotinn og marglaga Þegar gestir ganga inn á sýningu Vo tekur á móti þeim stór kopar- skúlptúr sem reynist vera einn af rúmlega 300 sem mynda verkið We the People. Listamaðurinn vann það með málmsmiðju í Kína á fimm ára tímabili og ef hlutarnir, sem hefur verið dreift á söfn og til safnara út um löndin, væru allir settir saman myndi nákvæm eftirmynd Frelsis- styttunnar í New York-höfn rísa; mótuð í samskonar þunnan kopar- hjúp. Með verkinu vill listamaðurinn vekja fólk til umhugsunar um þau gildi lýðræðis og griðastaðar sem styttunni var ætlað að tákna. Í verkum Vo sem sýnd eru hefur hann valið á afar persónulegan hátt saman hluti úr hversdagslífinu, sem hafa öðlast sértæka merkingu fyrir honum, og sögulega gripi eins og ljósmyndir, sendibréf og önnur skjöl sem vísa ýmist til huglægra frásagna eða stærri sögulegra viðburða. Þarna er firnastór ljósakróna orðin skúlp- túr en hún birtist á fréttamyndum árið 1973 þegar hún hékk yfir mönn- unum sem undirrituðu í París samn- inga um frið í Víetnam. Í klefa sem byggður hefur verið úr krossviði í öðrum salnum má sjá röð sendibréfa sem Henry Kissinger, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna á tíma Ví- etnamstríðsins, skrifaði dans- gagnrýnanda dagblaðs um listrænar upplifanir í New York – á sama tíma og stríðið geisaði með ómældum hörmungum. Einn frægasti skúlptúr Vo er Oma Totem, þvottavél, ísskáp og sjónvarpi staflað upp og stór kross með Kristsmynd á ísskápshurðinni; þessir hlutir biðu ömmu listamanns- ins í íbúð í Þýskalandi þegar hún kom þangað sem flóttamaður og hún kunni vart að nota þá – nema þá að biðjast fyrir. Mörg verkanna byggj- ast á brotum af miðaldastyttum af Guðsmóður og Jesúbarninu; einn skúlptúrinn hefur verið sagaður í sex búta sem passa nákvæmlega í ferða- töskur sem má taka um borð í flug- vélar í dag. Og peningaskápurinn sem faðir listamannsins keypti undir ávöxt vinnu sinnar í nýju heimalandi, og Rolex-úrið sem han verðlaunaði sig með, eru hér sýningargripir. Í verkum Vo birtist margbrotinn og marglaga heimur, úthugsaður, og endurspeglar samtímann sem og söguna á býsna athyglisverðan hátt. Óhætt er að mæla með heimsókn Hafnarfara á Statens Museum for Kunst; þar kunna heimar að opnast. Friðartákn Skúlptúr úr flennistórri ljósakrónu vekur athygli. Hún hékk upphaflega yfir fund- arborði í París þar sem mikilvægir samningar um lok Víetnamstríðsins voru undirritaðir. Christmas, Rome Upplitaðir flauelsfánar sem hanga niður úr loftinu klæddu áður sýning- arskápa í Vatíkaninu. Dekkri form sýna hvar krossar og önnur trúartákn og gripir voru. Persónuleg verk með víða skírskotun  Viðamikil sýning á verkum Danhs Vo í Statens Museum vekur athygli Morgunblaðið/Einar Falur Sögulegt Í einum salnum hefur Vo raðað verkum á stálhillur eins og í geymslu. Hér eru meðal annars hluti Ma- donnustyttu frá 16. öld, fáni og minjagripir frá tíma sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna, frá 1777, og málverk frá 1518 úr safni SMS sem táknar góðverk – kassinn þar hjá er undan sætri niðursoðinni mjólk sem Vo naut ungur. Oma Totem Einn þekktasti skúlptúr Vo úr gripum frá ömmu hans. We The People Á fimm ára tímabili lét Vo endurgera Frelsisstyttuna í New York-höfn í raunstærð úr kopar en dreifði um 300 hlutunum til fjölda safna. Könnun Í hinum ýmsu opnu rýmum safnsins hefur Vo látið koma fyrir gips- styttum, kössum með kryddjurtum, tréstólum og kínverskum setuskálum. 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.