Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 12.09.2018, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2018 „Lykilþáttur í uppbyggingarstarfinu hefur falist í því að vinna, með hjálp löglærðra, að nútímatúlkun á stofn- sáttmála Sænsku akademíunnar frá 1786 með það að markmiði að ná sameiginlegri sýn um hvernig út- færa eigi hann í samtímanum,“ segir í fréttatilkynningu sem Anders Olsson, starfandi ritari Sænsku aka- demíunnar (SA), birti á vef SA í framhaldi af fyrsta fundi SA eftir sumarfrí í liðinni viku. Í tilkynning- unni kemur fram að meðal þess sem skerpt hafi verið á séu atriði eins og trúnaður meðlima við SA og hvernig skuli afgreiða erindi þar sem krafist er brottvísunar meðlima. Per Wäst- berg upplýsti að fundi loknum að nýja túlkunin næði til 48 málsgreina stofnsáttmálans. Í fyrrnefndri tilkynningu kemur fram að afrakstur vinnunnar hafi verið kynntur og samþykktur á fundi SA, en í framhaldinu verði niðustaðan kynnt Karli XVI. Gústafi Svíakonungi sem er verndari SA. „Í ljósi þess að konungurinn er æðsti verndari SA er það aðeins í hans valdi að breyta stofnsáttmálanum,“ segir Margareta Thorgren, upplýs- ingafulltrúi sænsku hirðarinnar, við Expressen og rifjar upp að í maí hafi Svíakonungur breytt stofnsáttmála SA með konunglegri tilskipun á þann hátt að meðlimum var í sjálfs- vald sett hvort þeir vildu hætta í stað þess að vera skipaðir til ævi- loka. „Meðlimir SA geta ekki sjálfir gert breytingar á stofnsáttmálanum, aðeins konungurinn. SA hefur hins vegar heimild til að túlka stofnsátt- málann,“ bætir Thorgren við. Í tilkynningu Olsson kemur fram að markmiðið sé að endurheimta traust á SA og vinnu hennar við að útdeila Nóbelsverðlaunum í bók- menntum. Um miðjan síðasta mánuð birti Dagens Nyheter bréfa- samskipti milli SA og Nóbels- stofnunarinnar (NS) þar sem fram kom að NS gerði kröfu um að SA breytti verklagi sínu í vali á Nóbels- verðlaunahöfum. Kæmi SA ekki upp nýrri valnefnd sem væri algjörlega óháð þeim meðlimum SA sem gegnt hafa lykilhlutverki í krísunni íhugaði NS að svipta SA réttinum til að veita Nóbelsverðlaun. Í svarbréfi Olsson mótmælti hann þessari tillögu NS og staðhæfði að hæfni meðlima SA til að velja verðlaunahafa hefði ekki orðið fyrir áhrifum af krísunni og því væri skrýtið að láta utanaðkomandi nefnd sjá um valið. Að hans mati sé mikilvægast af öllu að fullmanna SA. Í samtali við SVT Nyheter segja Claes Sandgren, prófessor í borg- ararétti við Háskólann í Stokkhólmi, og Martin Sunnqvist, doktor í réttarfarssögu við Háskólann í Lund, vandséð hvernig NS eigi að geta svipt SA réttinum til að veita Nóbelsverðlaun þar sem slík svipt- ing væri í andstöðu við erfðaskrá Alfreds Nobel. silja@mbl.is Getur ný túlkun á sátt- mála endurheimt traust? AFP Starfandi ritari Anders Olsson telur brýnast að fullmanna SA sem fyrst. Fulltrúar Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar hafa undir- ritað samning um framlengingu til þriggja ára um rekstur Borgar- leikhússins. ,,Öflugt menningarlíf eykur lífsgæði borgarbúa og með samningnum er borgarbúum gert kleift að njóta fjölbreyttra sviðs- lista. Starfið í Borgarleikhúsinu einkennist af miklum metnaði og eru gestir um 200 þúsund á ári hverju,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í tilkynningu. ,,Í samn- ingnum er sérstaklega kveðið á um að áhersla skuli lögð á listuppeldi barna og ungmenna og er ánægju- legt að sjá hve leikhúsið hefur sinnt því hlutverki vel í gegnum árin enda er barnamenning mikilvægur hluti af öllu menningarstarfi.“ Markmið samningsins er að í Reykjavík sé rekið fjölbreytt og metnaðarfullt leikhús þar sem er sköpuð og sýnd leiklist í hæsta gæðaflokki. Einnig er tekið fram að Borgarleikhúsið verði lifandi vett- vangur nýsköpunar og kynningar á íslenskri leiklist þar sem erlendri klassík og samtímaleiklist eru einn- ig gerð góð skil. Í tilkynningu segir Kristín Eysteinsdóttir borgarleik- hússtjóri að samningurinn tryggi rekstrargrundvöll leikhússins og geri starfsfólki kleift að halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið í leikhúsinu síðustu ár. ,,Við erum afar þakklát fyrir með- byr síðustu ára og horfum björtum augum fram á veginn. Við hlökkum til að örva hug og hjörtu áhorfenda á komandi leikári og þökkum Reykjavíkurborg fyrir gott sam- starf og mikilvægan stuðning.“ Samningur framlengdur til þriggja ára Ljósmynd/Sigurjón Sigurjónsson Undirritun Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri og Eggert Benedikt Guðmundsson, stjórnarform. LR. Stjórn Listaháskóla Íslands hefur endurráðið Fríðu Björk Ingvars- dóttur sem rektor Listaháskólans til næstu fimm ára, en samkvæmt stofnskrá skólans má endurráða rektor einu sinni án auglýsingar. „Næstu ár eru skólanum einstak- lega mikilvæg þar sem unnið er hörðum höndum að framtíðar- skipulagi húsnæðismála og því mik- ilvægt að samfella verði í starfinu,“ segir Magnús Ragnarsson, formaður stjórnar LHÍ, í tilkynningu og fagn- ar því að Fríða Björk skuli hafa gef- ið kost á sér til áframhaldandi starfs. „Síðastliðin fimm ár hafa verið einstaklega ánægjuleg, enda varla til áhugaverðari vinnustaður á sviði lista hér á landi en Listaháskólinn. […] Fram undan er kynning á nýrri stefnu Listaháskólans sem vonandi mun fleyta listnámi á háskólastigi hér á landi inn í þann anda og um- hverfi sem starfsemin þarfnast til að geta blómstrað af fullum styrk undir einu þaki í fullhönnuðu og faglegu framtíðarhúsnæði. Það eru því mikl- ar áskoranir fram undan, ekki ein- ungis fyrir Listaháskólann heldur einnig það samfélag sem hann þjón- ar sem þjóðarskóli okkar í listum,“ segir Fríða Björk. Fríða Björk endurráðin rektor LHÍ Ljósmynd/Gunnar V. Andrésson Rektor Fríða Björk Ingvarsdóttir Nýjar hendur - Innan seilingar Bíó Paradís 18.00 Kvíðakast Bíó Paradís 22.00 Söngur Kanemu Bíó Paradís 20.00 Whitney Bíó Paradís 17.40, 17.45, 22.00 Utøya 22. júlí Bíó Paradís 18.00, 20.00 The Last Reform- ation: The Beginning Bíó Paradís 20.00 The Nun 16 Metacritic 55/100 IMDb 6,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.10, 17.40, 19.30, 20.00, 21.50, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 17.30, 19.40, 21.50 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 19.40, 22.00 Lof mér að 16 Þegar 15 ára Magnea kynn- ist 18 ára Stellu breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn Smárabíó 15.50, 16.20, 19.00, 19.30, 22.00, 22.30 Háskólabíó 18.00, 21.00 Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.40 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 21.40 Slender Man 16 Smárabíó 20.10, 22.40 KIN 12 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40 Alpha 12 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 63/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 17.20, 19.50, 22.10 Háskólabíó 20.50 Borgarbíó Akureyri 22.15 Crazy Rich Asians Þegar Rachel Chu fer með kærastanum til Singapore til að vera viðsödd brúðkaup kemst hún að því að hann á fáránlega ríka fjölskyldu með myrka sögu. Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 18.00 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30 Sambíóin Keflavík 19.30 Mile 22 16 Laugarásbíó 22.15 Smárabíó 17.40 The Spy Who Dumped Me 16 Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.25 The Happytime Murders 16 Háskólabíó 20.30 Kona fer í stríð Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10 Bíó Paradís 22.00 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 18.30 Össi Össi er mjög heppinn hund- ur. Hann býr hjá góðri fjöl- skyldu sem elskar hann af- skaplega mikið og lifið er gott. En einn góðan veð- urdag fer fjölskyldan í ferða- lag og skilur Össa eftir í pössun. Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.10, 17.40 Christopher Robin Christopher Robin hittir skyndilega gamlan vin sinn Bangsimon, og snýr með honum aftur í ævintýraheim bernskunnar. Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Kringlunni 17.20, 19.40 Sambíóin Akureyri 17.15 Hin Ótrúlegu 2 Helen Teygjustelpu er boðið nýtt starf sem hún getur ekki hafnað. Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að þá annast Jack-Jack, Dash og Violet á meðan Teygjustelpa , fer og bjargar heiminum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.30 Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í neðansjávarrannsóknarstöð. Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 22.00 Sambíóin Akureyri 19.30 Sambíóin Keflavík 22.00 The Meg 12 Mamma Mia! Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og lærir um fortíð móður sinnar á sama tíma og hún er ófrísk sjálf. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.30, 19.50 Smárabíó 17.30, 20.00 Háskólabíó 18.20, 21.10 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 Mission Impossible -Fallout 16 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn eiga í kappi við tímann eftir að verkefni mis- heppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.30 Sambíóin Egilshöll 21.00 Sambíóin Kringlunni 22.00 Sambíóin Akureyri 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.