Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 1

Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 1
EINN STÓR LEIKVÖLLURSAMEINA SÉRHÆFINGU lvo stefnir á að setja mannlausa vörubíla á göturnar. 4 Fagfólk á ýmsum sviðum auglýsinga– gerðar markaðsmála og miðlunar safnast saman á Skemmuvegi. 14 VIÐSKIPTA 4 Vo Unnið í samvinnu við Ingigerður Guðmundsdóttir, sem stýrir Chip & Pin Solutions á Englandi, segir samkeppni ekki eingöngu snúast um verðlagningu. FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Kanna aðkomu Kínverja „Ég get ekki tjáð mig um það á þess- um tímapunkti hvaða aðila við erum í viðræðum við um mögulega aðkomu að uppbyggingunni en áhuginn er sannarlega til staðar.“ Þetta segir El- liði Vignisson, bæjarstjóri sveitarfé- lagsins Ölfuss, þegar ViðskiptaMogg- inn innir hann eftir svörum um hvaða leiðir sveitarfélagið kanni í tengslum við uppbyggingu á hafnarmann- virkjum í Þorlákshöfn. Viðskipta- Mogginn hefur heimildir fyrir því að í hópi þeirra fjárfesta sem sveitarfélag- ið ræði nú við séu kínverskir aðilar. Elliði segir að mikil fjárfestingar- þörf sé nú í hafnarmannvirkjunum og að sveitarfélagið muni leita leiða til þess að tryggja þá uppbyggingu með hagsmuni svæðisins að leiðarljósi. „Það er ljóst að við viljum ráðast í framkvæmdir sem kosta munu að lág- marki 6 til 8 milljarða. Ölfusið er eitt mest spennandi svæði á landinu hvað framtíðartækifæri varðar. Við höfum stærsta jarðorkusvæði á landinu, stærstu ferskvatnslindirnar, nálægð við alþjóðaflugvöll, endalaust land- svæði og að sjálfsögðu nálægð við markaðssvæði borgarinnar. Þegar þetta kemur allt saman má ljóst vera að frekari uppbygging hafnarinnar leysir úr læðingi krafta sem við höfum ekki áður þekkt,“ segir Elliði. Hann bendir á að færeyska skipa- félagið Smyril Line Cargo, sem á og rekur farþega- og vöruflutningaferj- una Norrænu, hafi nú haldið uppi vikulegum siglingum flutningaskips- ins Mykines frá því á síðasta ári. Skipið siglir m.a. til Rotterdam og er 19 þúsund tonn. Skipið tekur 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð. Hefur skipið m.a. þjónustað tals- verðan hluta bílainnflutnings til landsins frá því að siglingarnar hóf- ust. Elliði segir að siglingar Mykines sýni að tækifæri séu í þessum sigl- ingum og að með uppbyggingu í Þor- lákshöfn megi auka samkeppni á flutningamarkaði, enda sé þetta stysta siglingaleiðin frá höfuðborg- arsvæðinu á erlendan markað. „Það fer svo eftir því hversu mikið fjár- magn er sett í framkvæmd af þessu tagi, m.a. með tilliti til dýpkunar, stækkunar á hafnargörðum og fleira, hversu mikil umsvifin geta orðið.“ Hann segir að framlög til uppbygg- ingar hafnarmannvirkja séu í raun af alltof skornum skammti og því sé nauðsynlegt fyrir sveitarfélagið að leita annarra leiða til þess að tryggja viðunandi uppbyggingu í ljósi þess að ríkið hefur hingað til ekki tryggt nægt fjármagn til verksins. „Það er ljóst að flest sveitarfélög á landinu eiga erfitt með að bakka upp risaframkvæmdir á hafnarmann- virkjum. Í þessu eins og öllu öðru þarf að láta reyna á hið fornkveðna um að þeir fiska sem róa. Þess vegna skoðum við þann möguleika að fá fleiri að borðinu með okkur. Það verður svo að koma í ljós hvaða lend- ing næst í þeim efnum.“ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Meðal þeirra sem sýnt hafa áhuga á að leggja fjármagn í uppbyggingu hafnar- aðstöðu í Þorlákshöfn eru kínverskir fjárfestar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Elliði segir að mikil tækifæri felist í uppbyggingu hafnarinnar í Þorlákshöfn. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 1.400 20.3.‘18 20.3.‘18 19.8.‘18 19.9.‘18 1.766,57 1.636,81 135 130 125 120 115 122,35 128,9 „Auðvitað segir það sig sjálft að ef markaðurinn mun ekki verðmeta okkur í takt við verðmæti eignasafns- ins og rekstrarniðurstöðu félagsins getur vel verið að hluthafar taki ein- hverja svona ákvörðun. En ég held að það væri mikið frumhlaup að fara að leysa upp félagið núna, eftir að hafa eytt miklum tíma og fjármunum í að byggja það upp,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri leigu- félagsins Heimavalla, í samtali við ViðskiptaMoggann. Heimavellir voru skráðir á markað í maí en í dag er markaðsvirði félagsins töluvert undir bókfærðu eigin fé fyrirtækisins. Hann segir að mikil verðmæti séu ekki aðeins í eignasafni fyrirtækisins sem býr yfir mikilli stærðarhag- kvæmni heldur einnig í þeim kerfum sem félagið hefur byggt upp og hefur trú á því að Heimavellir séu álitlegur fjárfestingarkostur þegar til lengri tíma er litið. Ekki rétt að leysa félagið upp Morgunblaðið/Eggert Það yrði mikið frumhlaup að leysa Heimavelli upp á þessari stundu að sögn Guðbrands Sigurðssonar. Heimavellir eiga mikið inni að sögn Guðbrands Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra félagsins. 8 Þegar ríki nota Schengen- samstarfið sem vopn í innan- landspólitík vakna spurningar um hvort halda megi því til streitu. Reyna á þolrif Schengen 10 Marc Benioff, stofnandi Sales- force.com, hyggst kaupa Time Magazine af Meredith Corp og nota sem skraut- fjöður. Lex: Dagblaða- draumur Benioff 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.