Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Undanfarið ár hefur verið við- burðaríkur tími í lífi Ingigerðar Guðmundsdóttur. Hún flutti til Englands með fjölskyldu sinni þar sem hún stýrir Chip & PIN, dótturfélagi Valitors. Áformað er að sameina félögin um næstu ára- mót ásamt öðrum dótturfélögum undir nafni Valitor og þannig skapa vörumerki með enn sterkari stöðu á alþjóðamarkaði. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Hér á Englandi ríkir hörð sam- keppni og vinnustaðamenning er ólík því sem við þekkjum á Íslandi. Á sviði greiðslumiðlunar er heim- urinn eiginlega einn stór leikvöllur þar sem mismunandi viðmið og menningarheimar mætast. Þar er mikilvægt að aðgreina sig frá keppinautum því að öðrum kosti er eingöngu keppt í verðlagningu og það er mjög erfitt. Við hjá Valitor höfum reynt að gera það með ým- iss konar virðisaukandi lausnum. Það getur einnig skapað áskoranir að eiga við svo fjölbreyttan hóp viðskiptavina en það gerir starfið jafnframt afskaplega spennandi. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Kvenkyns stjórnendur fyrir- tækja hittast reglulega í Lund- únum og sækja í reynslubanka annarra. Þar hlustum við á fyrir- lestra og hefur það reynst mér mjög vel í nýju umhverfi. Þessir fundir hafa komið sér ákaflega vel og styrkt tengslanetið. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Síðasta bók sem ég las var eftir Patrick Lencioni og fjallaði um stjórnun teyma. Það að taka við nýju stjórnendateymi var mikil áskorun og sú bók hefur veitt mér innblástur. Aðra bók verð ég að nefna; The Smallest Efficiency Guide in the World: A guide for busy people who solve problems for a living eftir Geir Ágústsson. Hver myndi leika þig í kvikmynd um líf þitt og afrek? Mér dettur í hug Jennifer Law- rence. Hún virkar á mig sem eðli- leg jarðbundin leikkona sem hefur komist áfram á eigin forsendum, með því að láta verkin tala. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég leita til sérfræðinga í kring- um mig, bæði til fólks sem vinnur hjá Valitor og fólks sem hefur reynslu á markaðnum sem ég starfa á. Það er einnig mikilvægt að halda sér upplýstum í gegnum greinar og markaðsrannsóknir. Hugsarðu vel um líkamann? Ég hef alltaf tileinkað mér hóf- semi en fæ mér að borða það sem ég vil. Ég forðast allar öfgar, bæði í hreyfingu og mataræði. Regluleg hreyfing hefur aðeins setið á hak- anum þetta ár á meðan við höfum verið að koma okkur fyrir hér á Englandi. Ég bæti það upp með hjólatúrum með strákunum mín- um og kvöldstundum á trampól- íninu. Hvað myndirðu læra ef þú feng- ir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég bý 30 mín. frá Cambridge og dáist að fallegu háskólunum þar og sögunni á bak við þá. Einn daginn langar mig að láta þann draum rætast að fara í framhaldsnám þar. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Fólkið sem ég vinn með veitir mér innblástur. Að vinna með ólík- um einstaklingum með ólíkar skoðanir gerir starfið mitt áhuga- vert. Þetta á sérstaklega við hér á Englandi þar sem starfsfólkið er með mjög ólíkan bakgrunn og lífs- skoðanir. Það gefur augaleið að í tuga milljóna þjóðfélagi eru ein- staklingarnir fjölbreyttir og koma úr mjög mismunandi áttum. Að sjá hvernig fólk nálgast viðfangsefnin með ólíkum hætti er bæði orkugef- andi og veitir manni innblástur. SVIPMYND Ingigerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Chip & PIN Mikilvægt að greina sig frá keppinautunum Ingigerður segir það hafa reynst sér vel að mæta reglulega á fundi hjá félagi kvenkyns stjórnenda í London. FARARTÆKIÐ Fyrir ári brugðu hönnuðir japanska bílaframleiðandans Lexus á leik, teiknuðu afskaplega snotran hraðbát og gerðu af honum nokkrar tölvu- myndir. Er skemmst frá því að segja að uppátækið vakti svo mikla hrifn- ingu að Lexus hefur núna ákveðið að láta smíða 65 feta (20 metra) langa smásnekkju í hæsta gæðaflokki. Fleyið hefur fengið nafnið LY 650 og verður sjósett síðla árs 2019. Um borð er 1.800 hestafla vél og svefn- pláss fyrir 6 farþega í þremur káet- um. Sjálf smíðin verður í höndum bandaríska fyrirtækisins Marquis- Larso Boat Group en Lexus sér um hönnunina og lætur hæfustu hand- verksmenn úr bílaverksmiðjum sín- um innrétta bátinn. ai@mbl.is Nú gerir Lexus líka snekkjur FLUTNINGAR Greinilegt er að Volvo Trucks ætl- ar ekki að dragast aftur úr keppi- nautunum. Fyrirtækið svipti fyrir skemmstu hulunni af nýjum hug- mynda-vöruflutningabíl, Volvo Vera, sem minnir þó í útliti á lágan sportbíl meira en nokkuð annað. Vera er sjálfakandi og þarf þess vegna ekki hús fyrir ökumann, heldur bara pláss fyrir öflugar raf- hlöður og snjalla skynjara sem horfa í allar áttir. Þarf einungis að festa venjulegan flutningavagn aft- an á og segja Vera hvert ferðinni er heitið, og fer tækið þá af stað. Sér Volvo fyrir sér að þetta öku- tæki muni henta vel til flutninga á styttri akstursleiðum þar sem flytja þurf mikið magn í einu, s.s. á milli verksmiðja og dreifingar- stöðva. Á bak við Vera væri síðan öflugt tölvukerfi í skýinu sem greinir staðsetningu og ástand hvers flutningabíls auk þess að geyma upplýsingar um farminn. ai@mbl.is Volvo leggur drög að sjálfakandi vörubíl NÁM: Menntaskólinn við Hamrahlíð, stúdentspróf 1998; Há- skólinn í Reykjavík BSc í viðskiptafræði með áherslu á alþjóða- viðskipti og stjórnun 2002; styttri námskeið í HÍ og HR og verð- bréfamiðlunarnám. STÖRF: JPMorgan Bank Luxembourg: umsjónarmaður reikn- ingsskila 2002 til 2005; SPRON: viðskiptastjóri fyrirtækja og síð- ar sérfræðingur í eignastýringu 2005 til 2009; Arion Banki: þjón- ustu og fyrirtækjaráðgjafi 2009 til 2011; Valitor: Viðskiptastjóri, síðar sérfræðingur og hópstjóri á Rekstrasviði 2011-2017; Mar- kadis Ltd.: framkvæmdastjóri rekstar 2017; Chip & PIN Sol- utions Ltd. framkvæmdastjóri rekstrar 2017 til 2018 og fram- kvæmdastjóri frá 2018. ÁHUGAMÁL: Á veturna eru það skíðin, en ég hef því miður ekki jafn góðan aðgang að fjöllum hér í Bretlandi og á Íslandi. Mér finnst gaman að ferðast og upplifa nýja staði. Góðar skáldsögur eru einnig mikið lesnar. Mínum fáu frístundum eyði ég með fjöl- skyldunni og höfum við undanfarið verið að ferðast um England til að kynnast landinu og menningunni. FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er gift Haraldi Eiríkssyni ferðamark- aðsfræðingi og við eigum tvo syni, átta og tíu ára. Að auki á ég yndislega stjúpdóttur og tvö barnabörn. HIN HLIÐIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.