Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 7
„Við höfum verið að ná fínum ár-
angri í Rússlandi og eins í Banda-
ríkjunum. Við erum að fóta okkur á
nýjum mörkuðum og erum komin
með sterka umboðsaðila sem þekkja
þar vel til,“ segir Freyr í samtali við
200 mílur og bendir á að Bandaríkin
séu dæmi um glænýjan markað fyr-
ir fyrirtækið.
„Þar höfum við verið að sækja inn
á að ná að kæla hráefnið hratt niður
og á eins skömmum tíma og mögu-
legt er.“
Í Rússlandi hafi þá myndast mikil
tækifæri eftir að farið hafi verið að
horfa í auknum mæli á framleiðslu
ferskra afurða í stað frosinna.
„Gæði aflans skipta því meira máli
en áður og fyrir vikið er gott fyrir
okkur að hafa öfluga tengingu inn á
þann markað, sem við höfum nú náð
að setja á laggirnar.“
Hjá KAPP starfa 33 manns í
Garðabænum og nú er svo komið að
um 40% tekna fyrirtækisins koma
að utan. Segir Freyr að hlutfallið
fari stækkandi.
„Við höfum meðal annars verið að
sinna þjónustu í Busan í Suður-
Kóreu, fyrir rússneskar útgerðir, og
þróun viðskipta erlendis hefur verið
nokkuð góð að undanförnu.“ Hér
innanlands sé markaðurinn hins
vegar kvikur.
„Það eru ekkert alltof góðir tímar
í sjávarútvegi á Íslandi, það verður
að segjast. Verið er að herja á út-
gerðir með háum sköttum og veiði-
gjöldum og maður finnur það þegar
maður heimsækir viðskiptavini, að
það er þungt hljóðið í sumum
þeirra.“
Flaggskip KAPP er vörumerkið
Optim-Ice, en undir því framleiðir
fyrirtækið meðal annars forkæla og
ískrapavélar og selur um víða ver-
öld. „Undir þessu vörumerki ein-
beitum við okkur að allsherj-
arlausnum við kælingu á hráefni,“
segir Freyr, en vörumerkinu var
komið á fót árið 2003.
Freyr segir fyrirtækið að und-
anförnu einnig hafa sótt mjög á í
ammoníakskerfum og stærri kæli-
og frystibúnaði.
„Við höfum verið að sinna stærri
aðilum á markaði í sambandi við
uppsetningu á frystikerfum og ým-
iss konar búnaði þeim tengdum. Þar
höfum sótt töluvert á, á innanlands-
markaði.“
Spurður hvað KAPP reyni að
hafa fram að færa umfram keppi-
nauta á erlendum mörkuðum er
Freyr snöggur til svars. „Það er
þjónustan. Ef þjónustan er ekki góð
þá selurðu ekki vöruna þína. Það er
það sem þetta gengur út á,“ segir
hann.
„Fyrir okkur er mikilvægt að það
sé stuttur þráður á milli okkar ann-
ars vegar og viðskiptavinarins hins
vegar. Að við séum fljót að bregðast
við ef það er eitthvað sem út af
bregður, og eins ef menn eru í hug-
leiðingum – að þá sé auðvelt að
nálgast okkur til að fá upplýsingar
og þekkingu. Ég veit það fyrir víst
að þetta er að selja fyrir okkur. Ein-
mitt þess vegna er mikilvægt að
hafa öfluga umboðs- og þjónustuað-
ila sem með okkur starfa.“
Gera strandhögg í austri og vestri
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Gengið hefur vel á árinu hjá
kælitæknifyrirtækinu KAPP
í Garðabæ, segir Freyr
Friðriksson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og stofn-
andi. Fyrirtækið, sem áður
hét Optimar-KAPP, fram-
leiðir og selur kælivélar til
notkunar í sjávarútvegi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Freyr segir að þjónustan skipti öllu máli í samkeppni við önnur fyrirtæki. „Það er það sem þetta gengur út á.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Rússlandi kynnti KAPP nýja tegund af ísvélum sem fyrirtækið framleiðir.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 7SJÁVARÚTVEGUR
Afurðaverð á markaði
19. sept. 2018, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 432,64
Þorskur, slægður 330,22
Ýsa, óslægð 341,28
Ýsa, slægð 308,19
Ufsi, óslægður 97,53
Ufsi, slægður 134,92
Gullkarfi 179,45
Blálanga, óslægð 221,00
Blálanga, slægð 205,69
Langa, óslægð 177,98
Langa, slægð 205,37
Keila, óslægð 77,32
Keila, slægð 109,44
Steinbítur, óslægður 241,27
Steinbítur, slægður 318,41
Skötuselur, óslægður 290,00
Skötuselur, slægður 467,85
Grálúða, óslægð 229,00
Grálúða, slægð 251,07
Skarkoli, slægður 268,99
Þykkvalúra, slægð 269,68
Bleikja, flök 1.571,00
Gellur 938,00
Grásleppa, óslægð 16,00
Háfur, óslægður 76,00
Hlýri, óslægður 166,00
Hlýri, slægður 286,50
Lúða, slægð 365,27
Lýsa, óslægð 79,91
Lýsa, slægð 88,00
Náskata, slægð 79,00
Skata, óslægð 87,00
Skata, slægð 106,96
Stórkjafta, slægð 300,00
Undirmálsýsa, óslægð 105,93
Undirmálsýsa, slægð 167,00
Undirmálsþorskur, óslægður 218,00
Undirmálsþorskur, slægður 174,22
KAPP tók á dögunum þátt í al-
þjóðlegu sjávarútvegssýningunni
Global Fishery Forum & Seafood
Expo Russia, sem haldin var í
Sankti Pétursborg. Freyr segir
sýninguna hafa verið langsamlega
þá bestu sem hann hafi sótt.
„Við deildum þarna bás með
Sæplasti frá Dalvík og kynntum
nýja tegund af ísvélum sem við er-
um að framleiða, og bjuggum til
ísinn á básnum til að sýna þeim
sem þangað komu. Það er svo
samdóma álit mitt og Heimis Hall-
dórssonar, þjónustustjóra KAPP,
sem hefur farið á margar sýningar
líka, að sýningin hafi verið virki-
lega góð og vel heppnuð fyrir okk-
ur.“
Besta sýningin
fram til þessa
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum