Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 9

Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 9
ingu tímans. Umræðan var okkur erfið í vor í að- draganda sveitarstjórnarkosninganna og á sama tíma og við vorum að kynna félagið og skráningu þess á markað. Það var mikið bent á nýju leigufélögin sem eina helstu ástæðu verð- hækkana á fasteigna- og leigumarkaði. Það er auðvitað mjög mikil einföldum að setja málið í þann farveg. Við leggjum áherslu á ábyrga starfsemi og náðum því að bæta við 330 nýjum íbúðum á leigumarkað í fyrra, sem er meira en flestir aðrir gerðu. Eins og öll félög í rekstri þurfum við að ná í jafnvægi í tekjum og rekstr- arkostnaði og auðvitað hefur hækkandi fast- eignaverð haft mikil áhrif á leiguverðið,“ segir Guðbrandur. Hann tekur þó fram að Heimavell- ir séu langt frá því að vera leiðandi í hækkunum á leiguverði og vísar í tölur máli sínu til stuðn- ings að á síðustu 24 mánuðum hafi leiguverð á Íslandi hækkað að meðaltali um 18,9% en leigu- verð Heimavalla um 12,1%. Auðvelt að benda á Heimavelli „Umræðan var hvað hæst snemmsumars og í maí og við áttum ekki auðvelt með að koma okk- ar sjónarmiðum á framfæri á þeim tíma,“ segir Guðbrandur, sem segir Heimavelli hafa verið þægilegt skotmark. „Ég held að þessi gagnrýni og umræða verði til vegna þess að fáir hafa horft á stöðuna á fast- eignamarkaði heildstætt. Það hefur vantað meira framboð af hagkvæmu húsnæði. Mögu- lega gerist það að sumir sem ættu réttilega að hafa aðgang að húsnæði í félagslega kerfinu leita í dýrara húsnæði en ella. Kannski að hluta til hjá okkur. Og af því að við erum „the new kids on the block“ er svo auðvelt að segja: Þetta er allt út af þeim. En í rauninni held ég að bæði hagsmunir allra á leigumarkaði, hagsmunir okk- ar og hagsmunir alls almennings í landinu séu að horfa heildstætt á þetta og segja: Við þurfum að byggja upp fasteignamarkaðinn heildstætt og koma til móts við alla á þessum markaði. Fasteignamarkaðurinn er mjög fjölbreytilegur og aðstæður breytast hratt á honum. Það þarf að bjóða upp á fjölbreytilegar lausnir á honum til að svara þeirri þörf sem er á markaðnum og þeim breytingum sem sífellt verða,“ segir Guð- brandur. „Það eru réttindi hvers og eins sem borgara í þessu landi að hafa aðgang að húsnæði. Það er ein af þessum grunnþörfum sem samfélagið þarf að hjálpa til með. Það hafa orðið miklar breytingar á framboði á húsnæði til hinna tekju- lægstu á undanförnum árum, t.d. þegar verka- mannabústaðakerfið var lagt niður. Það er mik- ilvægt að byggja upp í staðinn gott og sann- gjarnt kerfi sem nýtist þessum hóp í þjóðfélag- inu. Alveg á sama hátt er líka heilmikil sann- girni í því að það séu örugg og sanngjörn úrræði á leigumarkaði fyrir aðra sem falla ekki inn í þennan hóp. Þess vegna segi ég að við eigum miklu meiri samleið en það að við séum einhver andstæður póll í umræðunni,“ segir Guð- brandur og bætir því við að það sé mikilvægt fyrir leigumarkaðinn í heild að stór leigufélög hafi stigið inn á hann. „Ef maður horfir á þetta akademískt þá er verið að búa til ákveðinn stöð- ugleika á markaðnum sem var ekki áður.“ Leigufélag að norrænni fyrirmynd Heimavellir gefa sig út fyrir að vera leigu- félag að norrænni fyrirmynd sem hefur það að markmiði að bjóða örugga langtímaleigu, sann- gjarnt leiguverð og góða þjónustu. Fyrirtækið er samt sem áður skráð á markað þar sem markmiðið hlýtur fyrst og fremst að snúast um að skila sem mestri arðsemi til hluthafa. Guð- brandur segir að þetta séu ekki endilega mót- verkandi kraftar. En af hverju gengur þetta upp? „Þetta gengur upp af því að góð viðskipti byggjast á því að allir hagnist, en til að það ger- ist þarf að ríkja gott jafnvægi í rekstrinum,“ segir Guðbrandur og nefnir þá þjónustu sem Heimavellir bjóða upp á. Þetta snúist ekki að- eins um að leigja íbúð heldur margt fleira. „Við reynum að vera liðleg við okkar við- skiptavini. Ef eitthvað kemur upp á reynum við að finna lausn sem hentar báðum aðilum. Mikil- væg þjónusta er að hjálpa fólki og fjölskyldum að dafna og þroskast með Heimavöllum. Leigj- endur hafa möguleika á að flytja á milli íbúða sem henta betur ef breytingar verða á högum þeirra, t.d. ef fjölskyldan stækkar eða þegar flutt er á milli svæði. Það er rökrétt fyrir félag eins og okkar að halda í góða leigjendur. Það er mun ódýrara að halda viðskiptavinum en finna nýja. Það er þetta langtímasamband og traust sem skiptir svo miklu máli. Sérstaklega í fast- eignageiranum. Við horfum líka til þess að auka vöruframboðið og aðstoða fólk betur t.d. í tengslum við flutninga. Þannig höfum við samið um afslátt á sendibílum og flutningskössum sem nýtist viðskiptavinum og horfum til ýmissa ann- arra spennandi nýjunga. Það gæti verið hag- kvæmt að geta boðið leigjendum aðgang að deilibílum nú eða tryggt að ljósleiðaratengingar og niðurhal sé virkt um leið og viðkomandi leigj- andi flytur inn. Þess vegna er þessi norræna fyrirmynd svo sársaukalaus fyrir okkur. Af því að hún er svo rökrétt,“ segir Guðbrandur. „En þetta er auðvitað ákveðið jafnvægi. Eins og allur markaður. Það þarf einhver að koma með eitthvað og annar að taka við. Þarna þurfa menn að ná einhverju jafnvægi. Ég held að það séu góðar forsendur fyrir því að við náum fínu jafnvægi að því gefnu að áætlanir okkar um end- urfjármögnun og endurskipulagningu á eigna- safninu gangi eftir. Sérstaklega er það okkur mikilvægt núna að endurfjármagna félagið á því sem ég kalla eðlilegum vaxtakjörum,“ segir Guðbrandur. Endurfjármögnun hafin Í dag stendur yfir endurskipulagning á eigna- safni félagsins og vinna er þegar hafin við að endurfjármagna Heimavelli en sem stendur eru vaxtakjör félagsins um 4,4% að meðaltali á lang- tímalánum. Núverandi langtímafjármögnun fé- lagsins hefur að stórum hluta til verið fjár- mögnuð með lánum frá íbúðalánasjóði sem meðal annars setur þau skilyrði að ekki megi greiða út arð til hluthafa. Það standi hins vegar til bóta og segir Guðbrandur að skuldabréfa- útgáfa hjá félaginu með veðum í fasteignum þess sé fram undan og vonir standi til að fá hag- stæðari langtímafjármögnun. „Árið 2016 gáfum við út skuldabréf á 3,9% vöxtum sem eru skráð hérna í Kauphöll. Við ákváðum sem sagt að bíða eftir skráningunni á markað og fara svo aftur í skuldabréfaútboð og erum að vinna með Arion banka að slíku út- boði,“ segir Guðbrandur sem segir að félagið hyggist búa til útgáfuramma sem gæti staðið á bak við útgáfu fasteignatryggðra skuldabréfa fyrir allt að 20 milljarða. „Þetta eru bréf sem við gefum út til langs tíma og vonumst til að geta selt á hagkvæmari kjörum en við höfum verið með til þessa hjá félaginu,“ segir Guðbrandur og bindur í því samhengi vonir við að stærri lífeyr- issjóðirnir muni koma þar að máli. „Umdeildasta félag landsins“ Heimavellir hafa verið nefndir eitt umdeild- asta félag landsins. Meðal annars vegna þess að stór hluti af fjármögnun félagsins er einmitt frá Íbúðalánasjóði kominn, en það eru lán sem ætl- uð eru til óhagnaðardrifinnar starfsemi. Guð- brandur segir að samstarf Heimvalla við Íbúða- lánasjóð hafi gengið afar vel en stefnan sé að skipta út þeim lánum, eins og fyrr segir, vegna óhagstæðra kjara. „Endurfjármögnin lýtur að hluta til að þess- um Íbúðalánasjóðslánum sem eru með frekar óhagkvæm kjör finnst okkur, frá 4,2% til allt upp undir 5% vaxta,“ segir Guðbrandur. „Við erum með ákveðna áætlun um endur- skipulagningu eignasafnsins sem eru ríflega 10 milljarðar. Stór hluti af þeim eignum er fjármagnaður af Íbúðalánasjóði og hann fer að nokkru leyti út af sjálfu sér. Eftir standa um 10 milljarðar af lánum til þeirra. Ef vel gengur gætum við verið að greiða upp veru- legan hluta þeirra lána sem standa eftir á þessu ári. Við erum til dæmis búin að borga upp Íbúðalánasjóðslán fyrir ríflega tvo millj- arða á þessu ári. Stefnan er að fá hagkvæm- ari lán í staðinn sem hafa hagstæðari skil- mála til að auka sveigjanleika félagsins,“ segir Guðbrandur. „En við erum í mikilli uppbyggingu og í þannig stöðu að félagið mun ekki greiða út arð á þessu eða næsta ári. En það væri eðli- legt að skoða hvort við gætum ekki farið að taka skref í þá átt eftir þann tíma,“ segir Guðbrandur. Ekki rétt að leysa félagið upp núna Í lok júlí birtist skýrsla ráðgjafarfyrir- tækisins Capacent þar sem lágt markaðs- virði Heimavalla var dregið fram í sviðs- ljósið. Að félagið væri svo undirverðlagt á markaði að það borgaði sig hreinlega fyrir hluthafa að leysa það upp og selja eignir. Fé- lagið var eins og fyrr segir skráð á markað á genginu 1,39 en lækkaði niður í 1,24 strax á fyrsta degi. Miðað við gengi félagsins í gær var markaðsverðmæti Heimavalla 12,7 millj- arðar en eigið fé félagsins er 18,6 milljarðar króna. Tölurnar tala sínu máli en Guðbrandur telur það óskynsamlegt og ótímabært að horfa til þess að leysa félagið upp á þessum tímapunkti þótt staðan sé þessi. „Upplausnarverðið er miklu hærra. Það segir sig alveg sjálft,“ segir Guðbrandur. „Þessi skýrsla er skrifuð tveimur mánuð- um eftir að við komum á markað. Lang- tímarekstur er það sem einkennir rekstur félagsins og því er mikilvægt að horfa til langs tíma þegar ákvarðanir eru teknar varðandi það. Félagið er á ákveðinni vegferð og hefur rutt brautina og er samfélagslega mikilvægt á almennum leigumarkaði. Við reyndum að halda því mjög til haga þegar við fórum á markað að menn væru að fara í ákveðna vegferð með okkur til næstu ára. Auðvitað segir það sig sjálft að ef markaður- inn mun ekki verðmeta okkur í takt við verð- mæti eignasafnisns og rekstrarniðurstöðu félagsins getur vel verið að hluthafar taki einhverja svona ákvörðun. En ég held að það væri mikið frumhlaup að fara að leysa upp félagið núna, eftir að hafa eytt miklum tíma og fjármunum í að byggja það upp. Það eru mikil verðmæti í eignasafni félagsins en það eru ekki síður mikil verðmæti í þeim kerfum og stærðarhagkvæmni sem félagið hefur byggt upp á síðustu árum,“ segir Guð- brandur. Sérstakar aðstæður á markaði En af hverju er trú markaðarins ekki meiri? „Já, þá verður þú eiginlega bara að spyrja markaðinn,“ segir Guðbrandur. En hvað telur þú sjálfur? „Ég veit það ekki. Ég held að það séu um margt sérstakar aðstæður á markaði í dag. Það hefur komið fram að það sé lítið af nýju fjármagni að koma á markaðinn. Svo hafa auðvitað stór félög á markaði verið að lenda í ákveðnum rekstraráföllum sem hefur endurspeglast í verði þeirra og almennum óróa á markaðnum. En við höfum séð það oft að aðstæður á hlutabréfamarkaðnum breyt- ast mjög hratt. En miðað við eignastöðuna hjá okkur og það sem er framundan í rekstrinum erum við lágt verðlögð.“ Aðspurður hvort honum hafi fundist þetta á einhverjum tímapunkti vandræðalegt seg- ir hann svo ekki vera. „Ég myndi nú ekki segja vandræðalegt; ég myndi segja að þetta væri óheppilegt en sveiflur á markaði eru ekki óþekktar. En maður er auðvitað mjög meðvitaður um það hvaða verkefni eru fram undan hjá félaginu. Það er líka mikilvægt að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að félagið endur- spegli þau verðmæti á markaði sem það raunverulega stendur fyrir,“ segir Guð- brandur. Morgunblaðið/Eggert nni ” Félagið er ungt og það fór auðvitað mikil orka í að byggja það upp, ryðja brautina og koma því á markað. Ég held að það sé ekkert fyrirtæki á Íslandi sem á sér styttri rekstr- arsögu og hefur farið á markað,“ segir Guðbrandur. „Ég held að á einhverjum tíma- punkti fari markaðurinn að sjá að þetta félag á mikið inni,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 9VIÐTAL Heildarmat fasteigna hækkar um 12,8% á næsta ári og allt að 98% á sumum svæðum eins og á Ásbrúarsvæðinu, en þar eiga Heimavellir um 700 eignir. Auk þess koma rúm 36% leigutekna félagsins frá Suðurnesjum þar sem hækkunin var að meðaltali 28,3%. Aðspurður segir Guð- brandur að hækkun leiguverðs í kjölfar þessara hækkana sé augljós afleiðing. „Hækkun fast- eignamats hjá okkur er ígildi þess að við þurfum að hækka leigu um 4.000 krónur á samning á mánuði að meðaltali sem við munum þurfa að velta út í leiguverðið,“ segir Guðbrandur. Hann segir hækkunina á Ásbrúarsvæðinu nokkru hærri en hann átti von á. „Sérstaklega varðandi stærri íbúðirnar þar sem þær eru ekki að seljast á almennu fasteignamatsverði næsta árs,“ segir Guðbrandur. Spurður hvort þessar miklu hækkanir hafi verið áfall fyrir félagið segir hann svo ekki vera. „Við áttum von á hækkunum í kjölfar mikilla fasteignaverðshækkana en ég við- urkenni að hækkunin á Ásbrúarsvæðinu var meiri en ég átti von á.“ En er leiguverð á Íslandi hátt? „Leiguverð endurspeglar að einhverju leyti það jafnvægi sem ríkir milli framboðs og eft- irspurnar á hverjum tíma en jafnframt tekur það mið af fasteignaverði og fjármagnskostnaði. Fasteignaverð hefur hækkað mikið á stuttum tíma og nokkru meira en húsaleiga og á þann hátt er því ekki óhagstætt að leigja í dag,“ segir Guðbrandur. „Það skiptir hins vegar miklu máli að leita allra leiða til að lækka byggingarkostnað og auka framboð á hagkvæmum íbúð- um, sem yrði til heilla fyrir alla á fasteignamarkaði. Hærra fasteignamat hækkar leigu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.