Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018FÓLK
SPROTAR
PCC Jökull Gunnarsson hefur verið
ráðinn forstjóri kísilmálmverksmiðju
PCC BakkiSilicon hf. á Bakka.
Jökull sem starfaði áður sem fram-
leiðslustjóri hjá félaginu tekur nú við
starfi forstjóra félagsins af Hafsteini
Viktorssyni.
Hafsteinn hefur unnið að byggingu og gangsetn-
ingu kísilverksmiðjunnar á Bakka við Húsavík frá júní
2016 en lætur nú af störfum sem forstjóri.
Hafsteinn mun þó áfram vera félaginu innan hand-
ar og sinna ýmsum verkefnum fyrir félagið sem með-
al annars varða mögulega stækkun kísilverksmiðj-
unnar.
Hluthafar PCC BakkiSilicon hf. þakka Hafsteini
kærlega fyrir það lykilhlutverk sem hann hefur gegnt
síðustu ár og hlakka til að vinna með honum að nýj-
um viðfangsefnum.
Jökull ráðinn forstjóri PCC á Bakka
Origo Sveinn Kristinn Ögmundsson
hefur verið ráðinn forstöðumaður Þjón-
ustumiðstöðvar Origo.
Þjónustumiðstöðinni er ætlað að
gegna vaxandi hlutverki í sölu og þjón-
ustu á notendalausnum frá ýmsum
framleiðendum. Allri verkstæðisþjónustu og lager-
starfsemi Origo er stýrt af Þjónustumiðstöðinni.
Hann hefur starfað sem SAP-sérfræðingur hjá Sím-
anum og Applicon. Hjá Applicon var hann einnig for-
stöðumaður ERP lausna. Nú síðast starfaði hann sem
forstöðumaður Mannauðs- og launalausna hjá Origo
þar sem hann stýrði þróun og sölu á mannauðs- og
viðskiptalausnum Kjarna og SAP. Samhliða því sinnti
hann starfi þjónustustjóra Viðskiptalausna Origo.
Sveinn Kristinn er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands.
Sveinn Kristinn nýr forstöðumaður
Þjónustumiðstöðvar Origo
VISTASKIPTI
Mögnuð rafmagnsverkfæri og frábært verð
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Fyrirvari er settur vegna hugsanlegra ritvillna.
Kíttisgrind 18V
Kr. 67.900,-
með VSK
TVENNU TILBOÐ
600 ml kíttisgrind fyrir poka (pulsur)
300 ml kíttisgrind fyrir kíttistúpur
Stiglaus hraði 0-28 mm/sek.
18 V rafhlaða 2A og hraðhleðslutæki
Vönduð taska fylgir
Þyngd 2,1 kg
HR4013C SDS MAX BOR/BROTVÉL
& VC3011L RYKSUGA
Kr. 138.000,-
með VSK
+
+
HM1203C SDS MAX BROTVÉL
& VC3011L RYKSUGA
Kr. 138.000,-
með VSK
Á Skemmuvegi hefur orðið til
merkilegur klasi smáfyrirtækja og
einyrkja sem saman mynda eina
heild sem getur staðist stærstu
auglýsingastofum snúning.
Freyr Hákonarson segir að
þetta fyrirkomulag eigi erindi við
fleiri greinar, t.d. hugbúnaðargeir-
ann, og hafi mikla kosti í för með
sér bæði fyrir verkkaupa sem vilja
fá mikið fyrir peninginn, og fyrir
frumkvöðla sem fá í gegnum sam-
starfið aðgang að nýjum við-
skiptavinum og verkefnum.
Klasinn heitir Hive Studios
(www.hivestudios.is) og er rekinn
af Frey og Magnúsi Bergssyni
eigendum framleiðslufyrirtækisins
Icon. Saga verkefnisins hófst fyrir
tæpum þremur árum þegar Freyr
átti erindi við ljósmyndara sem
hafði aðstöðu í húsnæði fyrir ofan
verslun Vatnsvirkjans í Kópavogi.
„Þar var að finna hálfgerða
kommúnu fyrir ljósmyndara sem
nýttu saman aðstöðuna, og var ég
um þetta leyti leit að hentugu
vinnurými fyrir sjálfan mig. Ég
spurði hvort þeir ættu nokkuð
laust borð handa mér og til að
gera langa sögu stutta var ég bú-
inn að taka allt plássið á leigu
nokkrum dögum síðar,“ segir
Freyr og upplýsir að samvinna
ljósmyndaranna hefði á þessum
tíma verið við það að renna sitt
skeið á enda.
Fljótlega breyttist starfsemin í
Vatnsvirkjahúsinu og einu og
hálfu ári eftir að Finnur undirrit-
aði leigusamninginn höfðu tæplega
30 manns komið sér þar fyrir með
fyrirtæki sín og verkefni, og allt
fólk með einhverja tengingu við
auglýsingagerð s.s. ljósmyndarar,
forritarar, grafískir hönnuðir,
textasmiðir, markaðsfræðingar og
upptökufólk. Freyr gantast með
að þar með hafi orðið til sósíalísk
auglýsingastofa þar sem allir voru
jafnir og gátu tekið þátt í stórum
auglýsingaverkefnum á eigin for-
sendum. „Með alla þessa sérhæf-
ingu undir einu þaki getur hóp-
urinn tekið að sér nánast hvaða
verkefni sem er, frá þeim allra
smæstu upp í þau allra stærstu.“
Árið 2016 flutti Hive Studios í
nýtt og enn betra húsnæði á
Skemmuvegi þar sem auglýsinga-
stofan Expo hafði áður verið. „Þar
lögðum við undir okkur 500 fer-
metra með vinnuaðstöðu fyrir 30
manns og allt rýmið sniðið að
þörfum auglýsingastofu með
ljósmyndastúdiói, hljóðveri og
fundarherbergi.“
Enginn með fleiri
en fjóra starfsmenn
Smám saman hafa mótast
ákveðnar reglur í kringum það
samstarf sem á sér stað innan
Hive Studios. Freyr segir alla sem
þar starfa hafa fullt sjálfstæði, og
þeim beri ekki nein skylda til að
taka þátt í verkefnum þar sem
kraftar þeirra gætu nýst. Þá eru
fyrirtækin í klasanum ekki heldur
skyldug til að finna sér samstarfs-
aðila innanhúss. „Hver og einn
hefur val um hvort hann nýtir
samfélagið eða ekki, og allir sem
koma hingað inn eru þegar með
einhverja viðskiptavini fyrir,“ út-
skýrir Freyr.
Leigan er 50.000 kr. á hvert
skrifborð og má hvert fyrirtæki í
Hive Studios ekki vera með fleiri
en fjóra starfsmenn. „Ástæðan
fyrir þessari stærðartakmörkun er
að ef eitt fyrirtækið verður mikið
stærra en þetta þá byrjar það að
hafa takmarkandi áhrif á hin. Við
lentum t.d. í því að öflugur sproti
sem leigði hjá okkur óx svo hratt
að á skömmum tíma voru starfs-
mennirnir orðnir tólf talsins og
það var farið að kæfa niður aðra
starfsemi.“
Freyr segir að það hafi tekið
tíma og kallað á stöðugar breyt-
ingar að ná fram réttri samsetn-
ingu fólks og fyrirtækja. „Hive
Studios á einkar vel við ungt og
öflugt fólk sem er ferskt í hugsun
og kann að nálgast hlutina með
nýjum hætti, en við sækjumst líka
eftir að fá hingað til okkar ein-
staklinga með mikla reynslu og
djúpa þekkingu,“ útlistar hann.
„Fyrir þá sem eru að stíga sín
fyrstu skref er ákaflega góður
kostur að koma hingað, enda einn
stærsti þröskuldur ungs og efni-
legs fólks í auglýsinga- og mark-
aðsgeiranum að koma sér upp
góðri aðstöðu og sterku baklandi.“
Freyr bendir á að fyrirkomulag
samstarfsins skapi töluvert aðhald
enda veltur velgengni allra þátt-
takenda á þeirra eigin frammi-
stöðu, og enginn fái verkefni sís-
vona upp í hendurnar. „Skipulagið
þýðir líka að yfirbyggingin er mun
minni en hjá auglýsingastofum af
sömu stærð og starfsorka allra og
hæfileikar eru nýtt miklu betur.“
Morgunblaðið/Eggert
„Með alla þessa sérhæfingu undir einu þaki getur hópurinn tekið að sér nánast hvaða verkefni sem var, frá þeim
allra smæstu upp í þau allra stærstu,“ segir Freyr um það fyrirkomulag sem er á samstarfinu innan Hive Studios.
Sjálfstæð
en með gott
bakland
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Undanfarin þrjú ár hefur
áhugaverð tilraun farið
fram hjá Hive Studios. Þar
á fagfólk á ýmsum sviðum
auglýsingagerðar, mark-
aðsmála og miðlunar í
nánu samstarfi en hefur
um leið mikið frelsi.