Morgunblaðið - 02.03.2018, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 231. tölublað 106. árgangur
MIKILVÆGI
KUNNÁTTU ER-
LENDRA MÁLA ÓLÍKAR SKUTLUR
BESTUR AÐ
MATI MORGUN-
BLAÐSINS
HÁDEGISTÓNLEIKAR 33 GÍSLI EYJÓLFSSON ÍÞRÓTTIRPETRÍNA RÓS 12
Morgunblaðið/Sverrir
Forvarnarlyf HIV-forvarnarlyfið dregur
úr líkum á HIV-smiti um 95 til 98 prósent.
Karlmönnum sem eru í áhættu-
hóp fyrir HIV-smit stendur til boða
án endurgjalds samheitalyf Tru-
vada-lyfsins sem kemur í veg fyrir
HIV-smit. Bryndís Sigurðardóttir
smitsjúkdómalæknir segir á sjö-
unda tug karlmanna hafa farið í
gegnum áhættumat og fengið for-
varnarlyfið í hendur frá því að
verkefnið hófst í sumar.
„Ef þú ert HIV-neikvæður karl-
maður og stundar óvarin kynmök
með karlmanni sem er HIV-
smitaður og ekki á lyfjameðferð
eru hverfandi líkur á að þú sýkist af
HIV-veirunni ef þú tekur lyfið í for-
varnartilgangi,“ segir Bryndís.
Lyfið kostar 66 þúsund krónur á
hvern einstakling á mánuði. Að
sögn Bryndísar dregur dagleg
notkun lyfsins úr líkum á HIV-smiti
um 95 til 98 prósent. »14
Ósmituðum býðst
frítt lyf sem kemur
í veg fyrir HIV-smit
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Samtök atvinnulífisins (SA) sendu
seint í gærkvöldi bréf til allra við-
semjenda sinna í komandi kjaravið-
ræðum. Er þar óskað eftir formleg-
um viðræðum um atriði sem meðal
annars eru tengd lífskjörum og sam-
keppnishæfni íslenskra fyrirtækja.
„Það er mikilvægt að ramma inn
umræðuna í upphafi og mikilvægt að
ná til verkalýðshreyfingarinnar með
þau mál sem brenna sameiginlega á
atvinnurekendum og launþegum.
Með þessu erum við að stíga það
skref en það þarf tvo til að dansa,“
segir Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri SA, við
Morgunblaðið. „Nálgun atvinnurek-
enda er sú að næstu samningar snú-
ist um að bæta lífskjör okkar allra og
lífskjör eru samsett úr fleiri þáttum
en launaliðnum. Aðalatriðið núna er
að standa vörð um þann mikla árang-
ur sem náðst hefur á undanförnum
árum. Það á að vera sameiginlegt
markmið okkar allra.“
Í bréfinu bendir SA á versnandi
samkeppnisstöðu íslenskra fyrir-
tækja, meðal annars vegna hás
launakostnaðar. Á síðustu árum hef-
ur launakostnaður á Íslandi hækkað
um 55% umfram erlenda keppinauta
og innlent verðlag um 31% umfram
verðlag í viðskiptalöndum Íslands,
allt mælt í sömu mynt, samkvæmt
SA.
Lífskjör meira en launaliður
SA sendi viðsemjendum í komandi kjaraviðræðum bréf Sameiginlegt mark-
mið að standa vörð um árangur sem hefur náðst, segir framkvæmdastjóri SA
MMikið undir í viðræðum »2
Morgunblaðið/Guðmundur Ingólfsson
Glötuð Lágmynd Sigurjóns Ólafs-
sonar á Síðumúla 20 er nú horfin.
Lágmynd sem myndlistarmaðurinn
Sigurjón Ólafsson vann inn í stein-
steyptan norðurgafl Síðumúla 20 ár-
ið 1977 þegar húsið var í byggingu er
horfið á bak við klæðningu auk þess
sem gluggi hefur verið settur í gegn-
um verkið.
„Þetta er óafturkræf eyðilegging,“
segir Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns.
Rétthöfum höfundarréttar lista-
mannsins var ekki gert viðvart að til
stæði að eyðileggja verkið, svo þeir
gætu skráð það, tekið af því mót eða
gert aðrar ráðstafanir. Lögmaður
Eikar fasteignafélags, sem á húsið,
segir í bréfi til Myndstefs að tilgang-
ur viðhalds hússins hafi ekki bara
verið „að eyðileggja listaverkið eða
hylja það þó að sú hafi orðið raunin í
reynd“. Harpa Fönn Sigurjónsdótt-
ir, lögmaður Myndstefs, segir visst
vandamál að lagaramminn um höf-
undarrétt sé þröngur hérlendis og að
lögin þyrftu að vera skýrari. »30-31
„Óafturkræf eyðilegging“
Gluggi settur gegnum listaverkið og veggurinn klæddur
„Líkt og blóm í haga“ er fyrsta einkasýning
kvikmyndagerðarmannsins Jonasar Mekas á Ís-
landi og er haldin í Ásmundarsal í tengslum við
kvikmyndahátíðina Riff. Sýningin „hverfist um
augnablik úr ævisögu Mekasar,“ segir í kynn-
ingu. Þá eru sýnd myndskeið á þremur skjáum
úr þremur stuttmyndum og stóru gluggar gall-
erísins sýna 45 glærumyndir af blómum sem
kunna að kæta landann í haustkvíða sínum.
Glærumyndir af blómum lífga nágrenni Ásmundarsalar
Morgunblaðið/RAX
Fyrsta einkasýning Jonasar Mekas á Íslandi
Til greina kemur að óska eftir því
að úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála fresti réttaráhrifum
nýfallins úrskurðar um ógildingu
rekstrarleyfa tveggja fyrirtækja
um laxeldi. Tíminn myndi verða
notaður til að bæta úr þeim ágöllum
á umhverfismati sem nefndin
grundvallaði úrskurð sinn á. Stofn-
anirnar þrjár sem um ræðir eru enn
að skoða hver viðbrögð þeirra ættu
að vera og ekki fengust upplýs-
ingar um áform laxeldisfyrirtækj-
anna. Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegsráðherra telur líklegast að
fyrirtækin reyni að hnekkja úr-
skurðinum fyrir dómstólum og tel-
ur eðlilegt að þau leitist við að fá
réttaráhrifunum frestað. »10
Til greina kemur að
óska eftir frestun
Isavia, sem að fullu leyti er í eigu ís-
lenska ríkisins, mun tapa fjármunum
vegna gjaldþrots Primera Air sem
tilkynnt var um í gær. Þetta hefur
fyrirtækið staðfest við Morgunblað-
ið. Á sama tíma og fréttist af því að
fyrirtækið ætti sér ekki viðreisnar
von var flugvél þess á Stansted-flug-
velli kyrrsett vegna ógreiddra lend-
ingargjalda. Engin vél á vegum fé-
lagsins var hins vegar á
Keflavíkurflugvelli á þeim tíma.
Isavia gefur ekki upp hversu háum
fjárhæðum fyrirtækið verður af
vegna gjaldþrotsins.
Í gær barst tilkynning frá Pri-
mera Air þess efnis að viðskiptavinir
íslenskra ferðaskrifstofa, sem átt
hafa í viðskiptum við Primera, muni
ekki verða fyrir áhrifum af gjald-
þrotinu. Hins vegar er ljóst að marg-
ir farþegar urðu strandaglópar í
Evrópu í gær þegar starfsemi fyr-
irtækisins lagðist af. »16
Áhrifa af gjaldþroti
Primera gætir víða