Morgunblaðið - 02.03.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 2018
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Veiðigjöld, grásleppa í aflamark og
netaveiðar krókabáta voru meðal um-
ræðuefna á aðalfundi Kletts, félags
smábátaeigenda á Norðurlandi
eystra, á laugardag. Andri Viðar Víg-
lundsson, formaður, segir að vel hafi
verið mætt á fundinn eða 30 manns af
um 100 félögum í Kletti. Á fundinum
hafi gefist tækifæri til skoðanaskipta
við Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegsráðherra, sem mætti á fundinn.
„Varðandi veiðigjöldin þá komum
við því á framfæri einu sinni sem oft-
ar að við teljum smábátaútgerðina
mjög ranglega flokkaða,“ segir Andri
Viðar. „Við viljum greiða veiðigjöld í
samræmi við okkar hagnað og erum
ekkert að biðja um að farið verði
öðruvísi með okkur heldur en aðra.
Það verður einfaldlega að taka tillit til
hagnaðar í greininni og við teljum að
við séum mjög ranglega flokkaðir hjá
veiðigjaldanefnd. Við eigum enga
samleið með ísfisktogurum, sem jafn-
vel eru með fiskvinnslu á bak við sig.
Ráðherra endurtók það sem hann
hefur áður sagt að hann sé ekki tilbú-
inn að lækka veiðigjöld á einn útgerð-
arflokk umfram aðra nema hafa fyrir
því haldbær rök. Við teljum að okkar
forysta hafi margsinnis komið réttum
upplýsingum á framfæri og vonandi
fæst ráðherra til að skoða málið.“
Fylgjandi netaveiðum, en á
móti kvótasetningu grásleppu
Andri Viðar rifjar upp að á aðal-
fundi Landssambandsins í fyrra hafi
mikið verið rætt um netaveiðar
krókabáta. Tvívegis hafi á þeim fundi
verið greidd atkvæði um afstöðuna til
þeirra. Fyrst hafi tillaga fallið á jöfnu
og síðan með naumum meirihluta.
„Við í Kletti erum hins vegar fylgj-
andi því að bátar í krókaaflamarki fái
heimild til netaveiða og þær gætu þá
verið valkostur í erfiðum rekstr-
arskilyrðum. Í LS höfum við í gegn-
um tíðina mikið rætt um krókana og
haldið þeim veiðiskap á lofti, m.a. sem
vistvænum veiðum. Engu að síður
teljum við í Kletti að þetta gæti verið
skref í rétta átt fyrir þá sem það
hentar, en að sjálfsögðu væri engum
gert skylt að veiða í net.“
Nokkrar umræður urðu um mögu-
lega kvótasetningu á grásleppu, en
starfshópur á vegum ráðherra skilaði
áliti um það efni í síðustu viku. „Við
erum á móti þeirri breytingu, eins og
flest smábátafélög að því er mér
skilst. Við sjáum að kvóti sem hefur
farið í aflamark eða krókaaflamark
safnast sífellt á færri hendur. Það er
alveg gefið að slíkt mundi gerast með
grásleppuna líka verði þessi breyting
og nýliðun í grásleppuveiðum myndi
stöðvast,“ sagði Andri Viðar.
Starfssvæði Kletts er frá Ólafsfirði
og austur á Tjörnes. Svæðisfélög inn-
an Landssambands smábátaeigenda
halda þessa dagana aðalfundi sína
víða um land. Aðalfundur LS verður
síðan haldinn á Grand Hótel í
Reykjavík 18. og 19. október.
Eigum enga samleið
með ísfisktogurum
Veiðigjöld, grásleppa og netaveiðar meðal umræðuefna á
aðalfundi smábátaeigenda í Kletti Aðalfundur LS undirbúinn
Ljósmynd/Örn Pálsson
Rætt við ráðherra Andri Viðar Víglundsson, formaður Kletts, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, Víðir
Jónsson, Grenivík, Pétur Sigurðsson, Árskógssandi, og Þröstur Jóhannsson, Hrísey, spá í spilin á aðalfundi Kletts.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Íslenska ríkið býður karlmönnum
sem eru í áhættuhóp fyrir HIV-smiti
samheitalyf Truvada-lyfsins sem
kemur í veg fyrir HIV-smit. Í júlí
samþykkti lyfjanefnd Landspítala og
heilbrigðisráðherra að niðurgreiða
lyfið að fullu fyrir karlmenn í áhættu-
hópnum að undangengnu áhættumati
lækna og hjúkrunarfræðinga á
göngudeild.
Bryndís Sigurðardóttir smitsjúk-
dómalæknir segir á sjöunda tug karl-
manna hafa farið í gegnum áhættu-
matið og fengið forvarnarlyfið í
hendur frá því að verkefnið hófst í
sumar, en fram að því hafi það verið
notað sem hluti meðferðar við HIV-
smitaða einstaklinga. Bandaríkin
hófu að nota lyfið 2012 í þeim tilgangi
að fyrirbyggja HIV-smit og í Evrópu
2015.
Að sögn Bryndísar hefur HIV-
smitum farið fækkandi á heimsvísu á
sama tíma og þeim fjölgar hjá karl-
mönnum sem stunda óvarið kynlíf
með öðrum karlmönnum. Það taki
oftast nokkur ár fyrir einstaklinga að
gera sér grein fyrir að þeir séu smit-
aðir af HIV-veirunni og því smiti þeir
aðra án þess að hafa vitneskju um
það. Bryndís segir að með daglegri
notkun á lyfinu megi draga úr líkum á
smiti um 95 til 98 prósent.
„Ef þú ert HIV-neikvæður karl-
maður og stundar óvarin kynmök
með karlmanni sem er HIV smitaður
og ekki á lyfjameðferð þá eru hverf-
andi líkur á að þú sýkist af HIV-veir-
unni ef þú tekur lyfið í forvarnartil-
gangi,“ segir Bryndís en hún bendir á
að séu einstaklingar í lyfjameðferð
gegn HIV-veirunni séu þeir ekki
smitandi, sem gildir um 97 prósent
HIV-sjúklinga á Íslandi.
Lyfið kostar 66 þúsund krónur á
hvern einstakling á mánuði og á
Bryndís von á að hópurinn sem taki
lyfin endi á að telja 80 til 90 karlmenn.
Hún segir að ekki þurfi að koma í veg
fyrir nema eitt til tvö smit á ári til
þess að það borgi sig, það sé í raun
ómetanlegt en þar að auki kosti með-
ferð HIV-smitaðra á milli 150 og 200
þúsund krónur á mánuði út ævina, að
minnsta kosti á meðan ekki hefur
fundist lækning við veirunni.
Forvarnarlyfið er yfirleitt hugsað
sem tímabundið úrræði á meðan
áhættuhegðunin á sér stað. Líkir hún
þessu við pilluna hjá konum, sem al-
mennt séð er aðeins tekin yfir ákveðið
tímabil í lífinu, en ekki varanlega. Þá
segir Bryndís að einstaklingar þurfi
að mæta á þriggja mánaða fresti þar
sem skimað er fyrir HIV og öðrum
kynsjúkdómum. „Við gerum skim-
próf á HIV, klamidíu, lekanda og
sárasótt. Þetta hvetur til ábyrgðar
þar sem fólk er þá að koma reglulega í
skimun,“ segir Bryndís. „Með því að
fá áhættuhegðunareinstaklinga í
skimun á þriggja mánaða fresti þá
pikkum við upp og meðhöndlum
þessa sjúkdóma sem lækkar tíðni
þeirra,“ segir Bryndís.
Sigrún Grendal Magnúsdóttir, for-
maður HIV-samtakanna, fagnar
mjög þessu verkefni og segir samtök-
in hafa barist fyrir því í nokkur ár að
fá það í gegn. „Ég held að þetta hafi
mikil og jákvæð áhrif. Fólk þarf að
taka meiri ábyrgð á kynhegðun sinni
með því að sporna gegn því að smitast
og bera þannig veiruna áfram,“ segir
hún. „Þetta hefur áhrif á meðvitund
fólks um kynsjúkdómavarnir yfir höf-
uð og fækkar smituðum.“
Um 70 karlar taka
HIV-forvarnarlyf
Gjaldfrjálst fyrir
karla Mánaðar-
skammtur 66.000 kr.
Morgunblaðið/Friðrik
Lyf Í Bandaríkjunum var byrjað að
nota lyfið í þessum tilgangi 2012.
Benedikt Hans
Alfonsson, skólastjóri
Siglingaskólans, lést
29. september sl.
Benedikt fæddist á
Garðastaðagrundum í
Ögurhreppi, Norður-
Ísafjarðarsýslu, 25.
ágúst 1928. Foreldrar
hans voru Alfons
Hannesson, sjómaður
og verkamaður, og
Hansína Kristín
Hansdóttir, húsmóðir.
Benedikt stundaði
nám við Stýrimanna-
skólann í Reykjavík og lauk þaðan
fiskimannaprófi 1950, farmannaprófi
1956 og skipstjórnarprófi á varðskip
ríkisins 1958. Benedikt lauk skip-
stjóraprófi frá Stýrimannaskólanum
í Kaupmannahöfn 1961 og stúdents-
prófi frá Öldungadeild Mennta-
skólans við Hamrahlíð 1977.
Benedikt starfaði við sjómennsku
á árunum 1944 til 1960, á fiskibátum,
togurum, flutningaskipum og varð-
skipum, fyrst sem háseti og síðan
stýrimaður. Hann var kennari við
Stýrimannaskólann í Reykjavík frá
1960 til 1991.
Benedikt stofnaði Siglingaskólann
1984 og var frumkvöðull í kennslu í
skútusiglingum á Íslandi. Hann
kenndi bæði á bóklegum og verkleg-
um námskeiðum á vegum Siglinga-
skólans bæði í
Reykjavík og á öðr-
um stöðum á landinu,
allt til ársins 2007.
Benedikt hlaut gull-
merki Siglinga-
sambands Íslands
2008.
Benedikt var virk-
ur í félagsstörfum í
Félagi skipstjórnar-
manna (SKFÍ), fé-
lögum skútu-
siglingamanna og
Kennarasambandi
Íslands. Hann skrif-
aði reglulega um tækninýjungar í
Sjómannablaðið Víking.
Benedikt var kvæntur Katrínu
Jónsdóttur. Börn þeirra eru sex:
Guðleif Hlíf, kennari og ferðasali í
Stokkhólmi, sem gift er Jan Lönn-
quist verkfræðingi; Jón Atli, rektor
Háskóla Íslands, sem kvæntur er
Stefaníu Óskarsdóttur, dósent í
stjórnmálafræði; Kristín, dósent í
lögfræði, sem gift er Jóni Pétri Frið-
rikssyni, formanni Siglinga-
sambands Íslands; Anna Þóra, lög-
giltur endurskoðandi; Helgi,
verkfræðingur sem kvæntur er
Maríu Norðdahl verkfræðingi og
Kjartan, verkfræðingur sem kvænt-
ur er Lísu Libungan, sjávarlíffræð-
ingi. Barnabörn Benedikts og Katr-
ínar eru ellefu.
Andlát
Benedikt Hans Alfonsson
HÓT E L R E K S T U R
Komdu og skoðaðu úrvalið í
glæsilegri verslun að Hátúni 6a
Hágæða rúmföt,
handklæði
og fallegar
hönnunarvörur
fyrir heimilið
Eigum úr
val af
sængurve
rasettum
Percale ofin –
Micro bómul
l,
egypskri og
indverskri bó
mull
Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is