Morgunblaðið - 29.10.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
Ath
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
595 1000
Frá kr.
79.995
STÖKKTU Í HELGARFERÐ
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a. Róm
g
g
y
1. NÓVEMBER Í 4 NÆTUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Telur jafnvægi í forystu ASÍ
Drífa Snædal, nýkjörinn forseti sambandsins, fundar með varaforsetunum í dag
Ný forysta Alþýðusambands Íslands (ASÍ) kemur
saman til fundar í dag en Drífa Snædal, nýkjörinn for-
seti sambandsins, ætlar að hitta varaforsetana Vil-
hjálm Birgisson og Kristján Þórð Snæbjarnarson.
„Við ákváðum að taka helgina rólega og svo byrj-
ar alvara lífsins,“ sagði Drífa í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. Tilgangur fundarins er að
hefja vinnu við úrvinnslu ályktana sem samþykktar
voru á þingi ASÍ fyrir helgina. Þar var m.a. sam-
þykkt að hafna ofurbónusum og óhóflegum arð-
greiðslum til fyrirtækjaeigenda og að fulltrúar
launþega í lífeyrissjóðunum ynnu í samræmi við
stefnu verkalýðshreyfingarinnar. Samtökin vilja að
stjórnarmenn lífeyrissjóða beiti sér fyrir því að
starfsfólk fyrirtækja njóti arðsemi ekki síður en
hluthafarnir.
„Mér líst mjög vel á þetta,“ segir Drífa um nýja
forystu ASÍ. „Það er ákveðið jafnvægi í þessu,
ólíkir einstaklingar en grunnur fyrir góðu sam-
starfi,“ segir Drífa. ASÍ kemur fram fyrir hönd
aðildarsamtaka sinna í sameiginlegum málum
gagnvart stjórnvöldum og samtökum atvinnurek-
enda en kjarasamningagerð er í höndum lands-
sambanda og félaga. Drífa telur sterka einingu á
bak við nýja forystu ASÍ, og segir hún það skipta
miklu máli að formenn stærstu verkalýðshreyf-
inga landsins eigi sæti í miðstjórn. Nefndi hún sér-
staklega í því sambandi þau Ragnar Þór Ingólfs-
son, formann VR, Sólveigu Önnu Jónsdóttur,
formann Eflingar, Hilmar Harðarson, formann
Samiðnar, og Björn Snæbjörnsson, formann Ein-
ingar og SGS.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alþýðusambandsþing Ný forysta ASÍ kemur
saman á morgun og fer yfir samþykktir þingsins.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Veðurfræðingur á Veðurstofu Ís-
lands gaf í gærkvöldi lítið fyrir að
veturinn væri genginn í garð þrátt
fyrir að fyrsti vetrardagur hefði ver-
ið síðastliðinn laugardag. „Ég vil
meina að það sé enn haust en svo
getur náttúrlega komið vetrarlegt
og sumarlegt veður á haustin,“ sagði
hann.
Vetrarlega haustveðrið var ein-
mitt að finna á norðanverðu landinu í
síðastliðinni viku. „Það snjóaði fyrir
norðan en síðan hvarf snjórinn með
stormi aðfaranótt sunnudags og það
sló í um 10 stig yst á Tröllaskaga
með sunnanáttinni.“
Veðrið verður rólegt í byrjun vik-
unnar en það gæti kólnað þegar líður
á hana. „Úrkomusvæðin sem fara yf-
ir landið eru frekar lítil um sig, það
er úrkoma af og til í flestum lands-
hlutum. Hitinn er svo nærri frost-
marki að úrkoman getur verið ýmist
rigning, slydda eða snjókoma þegar
hún nær að falla svo það má búast við
öllu hvað það varðar. Á milli þess
sem úrkomusvæðin ganga yfir þá
eru líka bjartir kaflar. Í skammdeg-
inu kólnar reyndar þar sem það eru
engin ský til að halda varmanum
inni. Þá getur myndast hálka þannig
að það verður kannski svolítil hálku-
tíð framan af næstu viku.“
Lítið hefur snjóað í þéttbýli að
sögn veðurfræðingsins en snjórinn
heldur sig aðallega í fjöllum og á há-
lendi enn sem komið er.
Spurður út í veturinn fram undan
segir veðurfræðingurinn: „Spár fyrir
heilar árstíðir eru mjög óáreiðanleg-
ar og því eyðum við á Veðurstofunni
ekki miklu púðri í að gefa þær út. Við
einbeitum okkur frekar að því sem
er gagnlegra fyrir landann.“
Veturinn heilsar með rign-
ingu, slyddu og snjókomu
Hitastig nálægt frostmarki og úrkoman því óútreiknanleg
Morgunblaðið/Golli
Hálka Hitastig við frostmark gæti
kallað fram hálkutíð á landinu öllu.
Karlmaður á sex-
tugsaldri var í
fyrradag í Hér-
aðsdómi Reykja-
víkur úrskurð-
aður í vikulangt
gæsluvarðhald,
til 2. nóvember,
á grundvelli
rannsóknarhags-
muna að kröfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu í þágu rann-
sóknar hennar á meintu peninga-
þvætti.
Samkvæmt tilkynningu frá lög-
reglunni var lagt hald á verulega
fjármuni vegna málsins og þá var
einnig lagt hald á fasteign manns-
ins sem og bankareikninga og öku-
tæki hans.
Lögreglan lagði einnig hald á
töluvert magn af lyfseðilsskyldum
lyfjum sem hún hefur grun um að
hafi verið ætluð til endursölu á
svörtum markaði.
Verðmæti eigna og fjármuna
sem hafa verið kyrrsett vegna
málsins hleypur á tugum milljóna.
Maðurinn, sem hefur áður komið
við sögu hjá lögreglu, var handtek-
inn í umdæminu á fimmtudag, en
húsleit var framkvæmd á heimili
hans í kjölfarið.
Tugmillj-
óna eignir
kyrrsettar
M.a. lagt hald á
fasteign og ökutæki
„Síðast þegar ég vissi voru þeir ekki
búnir að verða sér úti um leyfi eða
kennitölu,“ sagði Gunnar Hilmars-
son, aðalvarðstjóri lögreglunnar í
Kópavogi, í gær um írska farand-
verkamenn sem hafa undanfarna
daga gengið í hús og boðist til að
spúla innkeyrslur, glugga eða þök
gegn gjaldi. Fólk hefur ítrekað
kvartað til lögreglu yfir mönnunum.
Í upphafi bjóða þeir lágt verð en
þegar verkinu er að ljúka tilgreina
þeir hærra verð.
„Þeir eru búnir að vera mikið á
ferðinni og fólk er duglegt við að láta
vita af þeim,“ segir Gunnar og bætir
við: „Það er mikilvægt að fólk viti að
þeir hafa ekki leyfi til að vera með
rekstur hér.“
ragnhildur@mbl.is
Leyfislausir
þvottamenn
Kjötsúpudagurinn var haldinn hátíðlegur á
Skólavörðustíg á laugardaginn, fyrsta vetrar-
dag, 16. árið í röð. Margir lögðu leið sína í bæ-
inn og fengu sér heita kjötsúpu, en hátíðin var
haldin á sjö „súpustöðvum“. Hver og einn veit-
ingastaður var með um 200-500 lítra af súpu.
Dagskráin hófst klukkan 14 og átti að standa
til 16 en að sögn Bolla Ófeigssonar, sem er
meðal þeirra sem hafa staðið að viðburðinum,
kláraðist súpan um þrjúleytið. „Þetta gekk
mjög vel eins og við var að búast, það mæta
margir á kjötsúpudaginn á ári hverju,“ sagði
hann. Kjötsúpudagurinn í ár var tileinkaður
minningu Úlfars Eysteinssonar, matreiðslu-
manns á Þrem frökkum.
Öll súpan kláraðist á kjötsúpudeginum
Morgunblaðið/Eggert
Fjölmenni á Skólavörðustígnum á laugardaginn