Morgunblaðið - 29.10.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.10.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Veður víða um heim 28.10., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Akureyri 7 skýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló 0 heiðskírt Kaupmannahöfn 3 rigning Stokkhólmur 0 heiðskírt Helsinki -1 léttskýjað Lúxemborg 5 skýjað Brussel 5 heiðskírt Dublin 8 skúrir Glasgow 7 heiðskírt London 9 skúrir París 6 alskýjað Amsterdam 6 léttskýjað Hamborg 5 skúrir Berlín 7 rigning Vín 11 skúrir Moskva 5 léttskýjað Algarve 16 léttskýjað Madríd 8 léttskýjað Barcelona 11 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 20 léttskýjað Aþena 19 léttskýjað Winnipeg 4 skýjað Montreal 1 rigning New York 10 alskýjað Chicago 10 alskýjað Orlando 19 heiðskírt  29. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:02 17:22 ÍSAFJÖRÐUR 9:18 17:15 SIGLUFJÖRÐUR 9:02 16:58 DJÚPIVOGUR 8:34 16:49 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Gengur í austlæga átt 8-15 m/s, en hægari sunnanlands undir kvöld. Á miðvikudag Austan 5-10 og skúrir eða él, en yf- irleitt þurrt norðanlands. Frostlaust með ströndum. Sunnan 3-8 og skúrir eða él. Þurrt og bjart veður á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig, en hlýrra austanlands fram á nótt. Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök jólagjöf Barna- myndatökur Rjúpnaveiðitíminn hófst formlega á föstudag en á laugardag fóru skyttur á stjá í fallegu veðri. Spáin var allmiklu verri á sunnudeginum en þá færðist veðrið austur yfir landið og var nokkur úrkoma á öllu Suðurlandinu. Að því sögðu er mikilvægt að rjúpnaskyttur fylgist með veðurspám. Í tilkynn- ingu frá vef stjórnarráðsins kemur fram að veiði- dögum verður fjölgað frá í fyrra, en nú eru þeir 15 talsins en ráðlögð heildarveiði er 67.000 rjúpur. Skyttur fóru á stjá í björtu veðri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rjúpnaveiðitímabilið hófst í bjartviðri Banaslys varð á Reykjanesbraut á sjötta tímanum í gærmorgun í hörðum árekstri á milli jepplings og fólksbifreiðar. Varð slysið á móts við Vallahverfið í Hafnar- firði. Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 5.44. Bílarnir voru að mætast. Hinn látni var farþegi í öðrum bílnum en hann var fluttur á Landspítalann og úr- skurðaður látinn við komuna þangað. Báðir ökumennirnir voru sömuleiðis fluttir á slysadeild en talið er að þeir séu ekki alvarlega slasaðir. Einn lést í bílslysi á Reykjanesbraut Nafn misritaðist Rangt var farið með nafn nýkjör- ins 2. varaforseta Alþýðusambands- ins í frétt Morgunblaðsins á laug- ardaginn. Hann heitir Kristján Þórður Snæbjarnarson. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Karlmaður fannst látinn í tjörn við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkju á Strandgötu um hádegisbil í gær. Þetta stað- festir Sævar Guðmundsson, aðal- varðstjóri lögreglunnar í Hafnar- firði. „Það er bara unnið að málinu og ekkert meira að segja um það í bili,“ segir Sævar en að svo stöddu er ekki hægt að veita upplýsingar um aldur eða dánarorsök mannsins. Þó er ekki talið að dauða hans hafi borið að með saknæmum hætti. Fjölmennt lið lögreglu og annarra viðbragðsaðila var sent út þegar til- kynnt var um líkfundinn. Lík fannst við tjörn í Hafnarfirði í gær „Misskiptingin er að aukast og fólk kallar eftir réttlæti í launakröfum,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, ný- kjörinn formaður BSRB, í þættin- um Þingvöllum á K100 í gærmorg- un. Kjaramálin voru einnig aðalumræðuefnið í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni og í Silfri Egils á RÚV. Auk Sonju voru Þröstur Ólafsson hagfræðingur og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka at- vinnulífsins, gestir þáttarins. Sonja sagði að krafa BSRB í komandi kjaraviðræðum væri hækkun lægstu launa til að fólk gæti lifað af og kröfunni væri beint að stjórn- völdum og atvinnurekendum. „Góð- ærið hefur ekki skilað sér til allra og skattbyrðinni hefur verið velt yf- ir á þá tekjulægstu,“ sagði hún. Þröstur sagðist skilja forystu verkalýðshreyfingarinnar og vilja hennar til breytinga. Hann sagði þó að það væri verið að fara í gömul spor og það yrði að temja reiðina. Hann sagði að verkalýðshreyfingin ætti að einbeita sér að samneysl- unni og finna stöðugan grunn fyrir norræna velferðarmódelið. „Hér er flokkur sem er alltaf við völd sem predikar að alltaf eigi að lækka skatta en það þýðir minni sam- neysla. Það ætti að hækka skatta hjá því fólki sem getur borgað þá,“ sagði hann. Ofurlaun stjórnenda komu til umræðu. Eyjólfur sagðist ekki ætla að draga neina línu um það hvað væru ofurlaun. Hann sagði stjórn- endur vinna langan vinnudag, alla daga ársins. „Auðvitað heyri ég eins og aðrir þegar talið berst að mjög háum launum sem ganga fram af fólki. Mér finnst eðlilegt að beina því til stjórnenda og stjórna að horfa inn á við og gæta hófs,“ bætti Eyjólfur við. Hann sagði að 95% launþega í landinu væru með 1,3 milljónir á mánuði eða minna. Mjög fáir væru með yfir tvær millj- ónir í laun á mánuði. „Mér finnst við alltaf vera að velta fyrir okkur jaðardæmum á báða vegu sem trufla umræðu. Þetta lagast ekki með tilskipunum eða upphrópunum,“ sagði hann. Ásmundur Einar Daðason, fé- lagsmála- og jafnréttisráðherra, var gestur á Sprengisandi. Sagði hann holan hljóm í því þegar stjórnendur í atvinnulífinu töluðu um að ekki væri hægt að hækka laun niður alla röðina en efstu laun hækkuðu. Efsta lagið þyrfti að sýna ábyrgð. Ásmundur sagðist vilja gera samkomulag milli ríkis, sveitarfé- laga og verkalýðshreyfingarinnar þar sem samið væri um að sveit- arfélögin á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni skuldbyndu sig til að úthluta ákveðnum fjölda lóða ár- lega á komandi árum. Hugmyndin er komin frá Finnlandi þar sem svipuð aðgerð hefur verið í gangi undanfarin ár á svæðinu í kringum höfuðborgina Helsinki. Almenningur kallar eftir réttlæti  Kjaramálin í brennidepli í þjóðmála- þáttum útvarps og sjónvarps í gær Eyjólfur Árni Rafnsson Ásmundur Einar Daðason Sonja Ýr Þorbergsdóttir Þröstur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.