Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 6

Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Dýrtíð og verðbólga eru öllum í óhag. Nú þegar gengi krónunnar gefur eftir með vísbendingum um breyttar aðstæður í efnahags- málum er brýnt að Neytenda- samtökin séu sterk og geti beitt sér af krafti. Sá kraftur sem býr í samtökunum er mikill, en við vilj- um gera enn betur. Hver áherslu- málin okkar verða er er sameig- inleg ákvörðun nýrrar stjórnar, sem ég kalla saman á næstu dög- um,“ segir Breki Karlsson hag- fræðingur og nýr formaður Neyt- endasamtakanna. Aðalfundur Neytendasamtak- anna var haldinn um helgina og í gær úrslit í formannskjöri kunn- gerð. Alls 429 tóku þátt í kosn- ingum og þar fékk Breki 228 at- kvæði eða 53%. Unnur Rán Reynisdóttir fékk 88 atkvæði eða 21%, Ásthildur Lóa Þórisdóttir fékk 80 atkvæði eða 19% og 7% eða 29 kusu Guðjón Sigurbjartsson. Umboðið er skýrt og verkefnin brýn „Mér finnst vænt um þann mikla stuðning sem ég fékk. Um- boðið er alveg skýrt og verkefnin framundan eru mörg og brýn. Mér finnst mikilvægt að fá fleiri til liðs við okkur. Félagsmenn eru í dag um 7.500 sem er, mviðað við höfða- tölu, svipaður fjöldi og í Tænk, dönskum systursamtökum okkar. Þörf er á að Neytendasamtökin verði breiðfylking og virkur ger- andi með kröftugu samtali og skýrum rökun. Því vil ég til dæmis efla neytendarannsóknir hvers- konar og efna til neytendaverð- launa, til þess að vekja athygli á því sem vel er gert.“ Vinda ofan af reglugerðum Miklar mannabreytingar hafa orðið í helstu samtökum launþegar á síðustu dögum, hvar nú er í stafni fólk með nýjar hugmyndir. Tímanir breytast og mennirnir með. Aðspurður segir Breki að vissulega gæti samstarf Neytenda- samtakanna og verkalýðshreyfing- arinnar komið til greina í einstaka málum, enda séu markmiðin lík. Að Neytendasamtökin séu öllum hagsmunasamtökum óháð sé þó af- ar mikilvægt. „Þó fólk komi úr ólíkum átt- um er samt oft sterkur sam- hljómur. Fyrir nokkrum dögum var haldinn fundur á vegum ráð- herra um mikilvægi nýsköpunar í landbúnaði, þar sem fulltrúar neytenda, verslunar, bænda og fræðasamfélagsins hittust í fyrsta sinn á sameiginlegum vettvangi. Öll vorum við samála um að reglu- gerðarfargan í landbúnaðarmálum sé íþyngjandi og hamli framþróun. Að vinda ofan af því ætti að verða sameiginlegt verkefni okkar, en annað verðum ósammála um svo sem frjálsan innflutning á fersku kjöti sem lengi hefur verið bar- áttumál Neytendasamtakanna. “ Krónan er skopparakringla Lögum samkvæmt er neyt- endum tryggður margvíslegur réttur, svo sem um skil á vörum, upplýsingar um innihald, hollustu- hætti og svo mætti áfram telja. Eigi að síður þarf oft oft að koma athugasemdum á framfæri. Í því sambandi nefnir Breki að á síðasta ári hafi alls um 9.000 erindi borist til Neytendasamtakanna, þar sem félagsmenn óskuðu liðssinnis þeg- ar þeir tölu á sig hallað. „Við kjósum með veskinu á hverjum degi og getum þannig haft mikil áhrif. Eitt af því eru til dæmis loftslagsmálin. Vegna um- hverfissjónarmiða munu og verða neysluvenjur að breytast í náinni framtíð. Svo þurfum við líka að láta sjónarmið neytenda í efna- hagsmálum heyrast hærra. Hér á Íslandi eru einhverjir hæstu vextir sem þekkjast í Evrópu og að vera með skopparakringlu sem gjald- miðil skaðar alla. Því og svo mörgu öðrum verður að breyta.“ Neytendasamtökin séu sterk þegar aðstæður í efnahagsmálum breytast Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samfélag Neytendasamtökin verði breiðfylking með kröftugu samtali, segir Breki Karlsson í viðtalinu. Við kjósum með vesk- inu á hverjum degi  Breki Karlsson er fæddur ár- ið 1971, með meistarapróf í hagfræði og alþjóðaviðskiptum frá Kaupmannahöfn og BS- próf í viðskiptafræði frá HR. Er stofnandi og framkvæmda- stjóri Stofnunar um fjármála- læsi.  Að baki á Breki fjölbreyttan starfsferil, meðal annars sem háskólakennari, við markaðs- mál, kvikmyndagerð og í leik- húsi. Hefur skrifað bækur og gert sjónvarpsþætti. Hver er hann? Dómur Mannréttindadómstóls Evr- ópu í síðustu viku þess efnis að það sé ekki skerðing á tjáningarfrelsi einstaklings að dæma hann fyrir að kalla spámanninn Múhameð barna- níðing gæti haft áhrif á störf nefndar forsætisráðherra um umbætur á lög- gjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis. Það er vegna þess að ákvæðum frumvarps sem nefndin leggur fram er ætlað að ná utan um helstu sjónarmið sem lögð hafa verið til grundvallar í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu. Eiríkur Jónsson, prófessor og for- maður nefndarinnar, gat ekki tjáð sig um málið að svo stöddu þegar blaðamaður Morgunblaðsins hafði samband við hann í gærkvöldi. Nefndin sem um ræðir hefur áður lagt fram tillögur sem gera tjáning- arfrelsinu hærra undir höfði innan lagarammans og því er ástæða til að velta því upp hvort umræddur dóm- ur, sem mikla athygli hefur vakið, muni hafa áhrif á stefnu nefndarinn- ar. Giftist sex ára stúlku Mannréttindadómstóllinn úr- skurðaði að austurrísk kona skyldi greiða sekt vegna ummæla sem hún lét falla á fyrirlestri árið 2009. Konan sagði Múhameð barnaníð- ing vegna þess að hann giftist stúlku þegar hún var einungis sex ára og höfðu þau fyrst kynmök þegar hún var níu ára og Múhameð fimmtugur. „Hvað köllum við það annað en barnaníð?“ sagði konan. Hún var sakfelld fyrir ummæli sín fyrir austurrískum dómstólum en þau voru sögð handan marka tján- ingarfrelsis. Hún var dæmd til að greiða 480 evrur í sekt. Konan hélt því fram að ummæli hennar væru innan marka tjáning- arfrelsisins og að trúarhópar yrðu að þola gagnrýni. Sömuleiðis hefur hún haldið því fram að skilgreiningar samfélagsins á því hvað flokkist sem barnaníð séu aðrar nú en þegar Múhameð var uppi. Þrátt fyrir það eigi orð hennar erindi til almennings. Konan var ósátt við dómsniður- stöðuna í Austurríki og sendi málið til Mannréttindadómstólsins sem, eins og áður segir, staðfesti austur- ríska dóminn. Að mati Mannréttindadómstólsins er konan sérfræðingur sem setti fram gildishlaðna fullyrðingu sem hún vissi að væri ekki samkvæmt sannleikanum. Auk þess hefði konan ekki leyft umræðu um ummælin og voru þau skilgreind sem hatursorð- ræða. ragnhildur@mbl.is Refsivert að kalla Múhameð níðing  Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu gæti haft áhrif á frumvarp nefndar forsætisráðherra Dómur Mannréttindadómstóllinn. Sérhæfðir læknar, hjúkrunarfræð- ingar og næringarfræðingar munu fræða gesti og gangandi í Kringl- unni í dag um hvernig hægt sé að fyrirbyggja slag eða heilablóðfall. Framtakið er á vegum Heilaheilla, í tilefni af Alþjóðlega slagdeginum. Rík áhersla er lögð á að almenn- ingur þekki einkenni slags, en skjót viðbrögð geta skipt sköpum hvað varðar batalíkur eftir áfallið, að sögn Þóris Steingrímssonar, for- manns Heilaheilla. „Við munum aðeins vera að „trufla“ fólk og segja því hvaða áhættuþættir geta valdið slagi. Þá er ekki síst verið að tala um rétta næringu.“ Aðalyfirskrift dagsins er því: „Getum við gert eitthvað til þess að koma í veg fyrir slag?“ Fyrir rúmu ári gáfu Heilaheill út samnefnt app, sem hjálpar fórnar- lömbum slags að kalla á bráðaað- stoð. Appið er beintengt Neyðarlín- unni og geta notendur tilkynnt slag í gegnum það, án þess að hringja símtal. Þá gæti það bjargað mörg- um þar sem málstol er eitt ein- kenna slags. Appið er byggt á þremur aðaleinkennunum sem eru: Sjóntruflun, lömun, andlitslömun og glatað mál, en skammstöfun orðanna er S.L.A.G. eða slag. Framtakið hefur borið árangur og hefur eflaust bjargað allt að helm- ingi þeirra sem hafa notað það, að sögn Þóris. Hann segir einnig að miklar framfarir hafi orðið í með- ferð sjúklinga sem fá blóðþurrðar- slag. „Núna í ár var hafið formlegt verkferli innan Landspítalans að framkvæma aðgerðir til að fjar- lægja blóðsega úr heila heilablóð- fallssjúklinga. Þessi aðferð á eftir að bjarga mörgum vegna þess að með henni er strax gripið inn í áður en skaðinn er skeður,“ segir Þórir. Reynt að koma í veg fyrir slag  Slagdagurinn haldinn í Kringlunni í dag Framfarir Sérfræðingar hafa tekið þátt í æfingum á nýja verklaginu að undanförnu, þar sem strax er gripið inn í verði fólk vart við einkenni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.